Ég er komin í svoleiðis. Hvenær ég sný aftur veit ég ekki, en ég treysti því að þið bíðið og vonið.
Blogghlé
January 29th, 2009Ekkert lýðræði, segir löðruglan
January 21st, 2009Á mótmælunum í gærkvöldi heyrði ég löggu tala við einhvern kunningja sinn, og akkúrat þegar ég átti leið framhjá sagði hann: „Nei, það ER ekkert lýðræði í landinu.“
Spáið í því að vinna við að taka slaginn við mótmælendur sem maður er alveg sammála!
Viltu byrja með mér?
January 20th, 2009Sko ég er að spyrja húmoristann sem kommentaði svona skemmtilega við síðustu færslu, hver sem hann/hún er.
Oh
January 19th, 2009Ég nenni ekki að blogga
Megadans
January 17th, 2009Sem við vinkonurnar sátum að sumbli í gærkvöldi tókum við allar ákvörðun um að byrja að æfa þennan dans. Tilefnið er ærið.
Þetta segir stjórnmálafræðingur..
January 16th, 2009Alltaf þegar leitað er álits „hjá stjórnmálafræðingi“ finnst mér sá aldrei segja neitt nema eitthvað sem annað hvort er á allra vitorði, eða að minnsta kosti ætti að vera það. Ætli það sé vitleysa í mér?
Borgarbarn
January 14th, 2009Í gær fórum við í Húsdýragarðinn í vinnunni, en fyrir þá sem ekki vita upplýsist að ég vinn hjá ÍTR með börnum með einhverfu, sem er mjög gaman. Börnin stóðu sig eins og hetjur í garðinum og klöppuðu dýrunum alúðlega á kollinn, en ég var hins vegar smeyk við svo að segja öll nema kisuna. Sérstaklega fundust mér nautið, geithafurinn og gyltan vera óárennileg.
Já ég hef víst ekki mikið breyst síðan ég var svona 7-8 ára og fór í dagsferð í sveit með bekkjarfélögum mínum. Ég var með sólgleraugu og skærbleikar grifflur og þegar mannskapnum var skipað að labba inn í fjósið harðneitaði ég og stóð þess í stað fyrir utan og hélt fyrir nefið.
Anti-Kristur
January 13th, 2009Nú hef ég heyrt úr nokkrum áttum að á sjónvarpsstöðinni Omega sé ítrekað sýnd heimildamynd um það að Evrópusambandið sé samfélag Anti Krists.
Og þið sem voruð mótfallin inngöngu Íslands í ESB…?
Sushi
January 12th, 2009Á laugardaginn var haldið upp á það að systir mín, sem er bara rétt rúmlega ári eldri en ég, varð gömul kona. Af því tilefni var étið sushi. Ég kann ekki að éta sushi, mér finnst það skrítið og kinkí. Samt át ég það af því að það á ekki að forsmá veitingar.
Nema hvað, ég er auðvitað ennþá með Wasabi-sósubragð í vitum mínum, sérstaklega þegar ég ropa. Ég held ég álykti að ég hafi ekki náð þroska fyrir svona fínerí.
Viðbót 13.janúar: Fyrir þá sem kunna að vera móðgaðir yfir því að hafa ekki verið boðið í Sushi og meððí hjá Kamillu, þá var þetta óvænt uppákoma þannig að það skrifast frekar á mig og Hildi Fr heldur en afmælisbarnið að ykkur var ekki boðið.
Fáránlegar hugmyndir um hvalveiðar!
January 10th, 2009Stundum fyllist ég vonleysi og held að við eigum aldrei eftir að rífa okkur upp úr kreppu og óstöðugleika. Það gerðist síðast núna í gær í umræðunum um að taka aftur upp á að veiða hvali. Þessi hugmynd er í fyrsta lagi augljóslega vond og í öðru lagi einkennist rökstuðningurinn af blekkingum og lýðskrumi.
Það er sagt að hvalir éti um tvær milljónir tonna af fiski á ári. Það getur verið að það sé satt, en það er ekki þar með sagt að fyrir hvern hval sem er drepinn sé hægt að veiða allan fiskinn sem hann hefði annars étið, hefði hann fengið að lifa. Fæðukeðja sjávarins er mun flóknari en það, og bent hefur verið á að til þess að hafa einhver marktæk áhrif á fiskistofna með hvalveiðum þyrfti sennilega að veiða tugi þúsunda dýra. Og hvaða áhrif ætli það myndi hafa á ímynd Íslands út á við? Hryðjuverkalögin væru smámunir miðað við það.
Í besta falli myndu hvalveiðar einungis hafa lítinn kostnað í för með sér, og engan ávinning.