Alveg sé ég Kastljósfólk fyrir mér: Hey, fjöllum um bloggara, en bloggið er einmitt á slóðinni blog.is.
Hvað um það. Ég er ósofin núna. Mamma og pabbi eru í Ameríku og því hef ég alið konuna í Barmahlíðinni undanfarna daga, enda þarf blessaður heimiliskötturinn félagsskap, helst allan sólarhringinn. Í nótt sváfum við Júlía, Kamilla og dætur hennar allar í Barmahlíðinni, en ég passaði litlu stelpurnar í gærkvöldi þegar Kamilla fór upp á Akranes. Því lagðist ég til hvílu með þeim tveimur í stóra rúminu í svefnherberginu, Júlía svaf í litla herberginu og Kamilla frammi í stofu. Kötturinn var náttúrulega afskaplega ánægður með allan þennan félagsskap og hélt Kamillu vakandi svo að segja í alla nótt, en dætur hennar sváfu á sínu græna eyra inni hjá mér allan tímann. Sem er gott fyrir þær en ekki mig af því að sú yngri bæði byltir sér í sífellu ásamt því sem hún er víst með fullöflugt innbyggt hitakerfi. Þetta var eins og að reyna að sofa við hliðina á grilli.
segi það með þér! mætti halda að þau vissu ekkert um blogg. vandræðalegt - eins og svo margt í kastljósinu.
Kannski halda þau að mbl.is hafi fundið upp bloggið.