Regla í mannlegum samskiptum

Það er til mjög skynsamleg, einföld regla sem hægt er að fylgja varðandi mannleg samskipti. Þessari reglu fylgi ég:

Maður á að vera góður við börn og dýr. Og maður á líka að vera góður við fólk sem er gott við börn og dýr.

Gæti varla verið rökréttara.

9 Responses to “Regla í mannlegum samskiptum”

  1. Óli Gneisti says:

    Hvað ætlarðu þá að gera fyrir mig?

  2. Hildur Edda says:

    Tja, ef þú ert góður við börn og dýr, sem ég ætla að vona og gera ráð fyrir, þá ætla ég að leggja mig sérstaklega fram við að koma fram við þig af kurteisi.

    Finnst þér þetta annars ekki góð regla?

  3. Óli Gneisti says:

    Ég var að vonast eftir einhverju meira.

  4. Hildur Edda says:

    Allt í lagi. Viltu nammi?

  5. Óli Gneisti says:

    Já. Geturðu skutlast með það til mín?

  6. Hildur Edda says:

    Ég gef þér sælgæti við fyrsta tækifæri.

  7. Óli Gneisti says:

    Það er eins gott því annars mun ég hætti að púkka upp á börn og dýr.

  8. frú Birna says:

    og muna líka að vera góður við fólk sem hagar sér eins og börn eða dýr

  9. Hildur says:

    Já, að minnsta kosti ef þau ráða ekki við það!