göfugt starf
ég er orðin svolítið leið á því að heyra fólk dásama þetta göfuga starf sem við vinkonurnar erum að vinna hér á munaðarleysingjaheimilinu í mexíkó.
jújú, við meintum vel og allt það. en…
fyrst var planið að fara til afríku. ég sá okkur fyrir mér brunandi um slétturnar á safarí trukki, dreifandi matarbirgðum og alnæmislyfjum í strákofana á svæðinu á meðan öskrandi ljón glefsuðu í bílinn okkar. svo myndum við dansa við varðeldinn á kvöldin áður en við leggðumst til hvílu á gólfinu í strákofanum okkar.
nei.
hér vöknum við klukkan sex á morgnana til að greiða litlu skvísunum áður en þær fara í skólann. allar þurfa þær að vera með strekkt hár í mörgum teygjum og nógu mikið gel til að hárið líti örugglega út fyrir að vera úr plasti. hárgreiðsla er klárlega ekki okkar fag og litlu greyin eru farnar að fela sig og biðja um miskunn þegar við nálgumst þær með hárburstann. enda lítum við báðar út eins og reyttir hænurassar og þær eru ekki feimnar við að segja okkur það.
og ef ég hefði viljað eyða sumrinu í að greyða barnahausum þá hefði ég verið kyrr heima á íslandi og fengið lánuð nokkur börn hjá honum bróður mínum.
starfið sjálft er alls ekki það sem við bjuggumst við. í byrjun var talað um að við ættum að kenna þeim ensku og sund. nunnurnar settu enskutímana inn í stundaskrárnar hjá þeim, þrisvar í viku klukkutíma í senn. gott og vel. oftar en ekki falla enskutímarnir hins vegar niður því það er svo mikið annað í gangi hjá stelpunum. þeim er boðið á bíósýningu, farandleikhús kemur með sýningu til þeirra, fréttamenn koma í heimsókn osfrv. það er einfaldlega ekki tími fyrir okkur og því eyðum við mestum tímanum í að lesa og hanga. reyndar skráði ég mig í spænskuskóla svo ég hef það til að hafa ofan af fyrir mér á milli 10 og 12 á morgnana, en þar fyrir utan, hanga. síðasti tíminn í skólanum er í fyrramálið og þá verð ég formlega orðin altalandi á spænsku. me gusta!
við erum fyrstu sjálfboðaliðarnir sem þær fá hingað og þær vita bara ekkert hvað þær eiga að gera við okkur.
svo við ákváðum að fara bara.
ætlum til mexíkó city um helgina, svo acapulco í næstu viku og svo þangað sem ævintýrin leiða okkur.
spennóspennóspennó!
viajamos en mexico.
tengo comprar un bikini.
quiero ensalada de fruta con yogurt y granola…pero sin miel.
sjitt hvað ég er orðin klár!

2 Responses to “göfugt starf”
Rock on!
& í guðsbænum passaðu þig á að verða ekki ólétt.
jiminn…fyrst er mér sagt að koma ólétt heim, og svo að gera það ekki.
ég veit ekki hverjum ég á að hlýða!
Comments are closed for this entry.