í skýjunum
nú erum við í fjöllunum í enn einni paradísinni. æðislegur bær og fyndið að bara í dag er ég tvisvar búin að rekast á fólk sem ég þekki síðan í puerto (sem var sörfaraparadísin).
bærinn sem við vorum í síðast og ég kallaði óvart helvíti (tek það algjörlega til baka) heitir zipolite og er líka paradís. allir staðir sem við erum búnar að fara á so far eru æði. zipolite er pínkulítill hippastrandbær, rólegur og ótrúlega fallegur, og daginn eftir að ég bölvaði honum svona hræðilega fyrir rigningu kom sól.
fullt af sól.
við stöllurnar létum ekki segja okkur það tvisvar heldur brunuðum niður brekkuna og hentum okkur í sjóinn og svo beint á sandinn. þar sem við vorum ekki búnar að sjá sólina í alltof marga daga og spáin sagði okkur að þetta væri eini sólardagurinn í bili ætluðum við aldeilis að nýta hann.
“ertu eitthvað búin að vera á júllunum?” spurði inga mig -því eins og glöggir lesendur vita þá er zipolite nektarströnd og planið var að vinna í því að vera ekki með hvíta rassa…né aðra líkamshluta.
“neee, ég hef nú ekki séð neinn allsberann enn…” sagði ég og settist upp til að halda samtalinu og pælingunum áfram.
það fyrsta sem ég sé þegar ég sveifla sandklepruðu hárinu frá augunum er nakinn karlmaður. ekki alveg nakti karlmaðurinn sem ég vildi sjá samt. ekki einn af þessum sem voru á puerto escondido. ekki sörfari. ónei, þessi var vel hringlóttur, með miklu stærri brjóst en ég og bumban náði svo langt niður að ég þurfti að stara heillengi bara til að skera úr um það hvort þetta væri karl eða kona.
við ákváðum að halda okkur bara í þeim litlu spjörum sem við vorum í.

6 Responses to “í skýjunum”
Hahahhahaha!!!! Sá þennan gaur svo mest fyrir mér. Pínkulítill vinur svo þarna einhvers staðar undir bumbunni
Sakna þín sætasta mín og njóttu þess ógeðslega að vera þarna :*
Það er svoooo gaman að lesa það sem þú ert að skrifa;)haha
ENJOY elskan:*:*
Jæja nú þarf ég nú að fara að heyra í þér. ER VISS um að þú sést búin að gera eitthvað af þér by now og þú veist að þá er möst að spill the beans til mömmu í Edinborg..
sakna tin lika bara…og va hvad styttist i roomie time!
takk agusta…madur reynir;)
og gebbukrus, hvenaer verdur tu eiginlega a landinu? i have a innflutningsparty to plan you know…
Hvað er að frétta elskan mín???
Halllllóóó…ertu þarna einhversstaðar??;)
Comments are closed for this entry.