california
smá u-beygja á ferðina og við erum lentar í L.A.
victorias secret, urban outfitters og macys hafa aðeins komið við sögu og disney land er að sjálfsögðu á planinu. í dag var sörfara-, hjólabretta-, hjóla- og motorcross keppni á ströndinni og yours truly létu sig ekki vanta. verð að viðurkenna að ég gæti alveg vanist því að allir karlmenn séu með sixpack og gangi um berir að ofan alltaf. ég gæti hins vegar líka alveg vanist því að borða á cheesecake factory, ihop (international house of pancakes) og häagen-dazs á hverjum degi…sem passar ekki alveg inn í stæltir-beriraðofan-karlmenn myndina.
um daginn fórum við á orange county fair og sáum heimsins stærsta hest. sáum líka heimsins stærstu belju og borðuðum heimsins fáránlegasta mat. það sem hafði vinninginn í fáránlegheitum var crispie creme donut sem var skorinn í tvennt og með kjúklingabringu á milli. hverjum dettur svona í hug? fengum okkur líka reyktan kalkúnslegg sem maður hélt á eins og kjúklingalegg og beit í, apple fries- sem eru bara epli skorin niður eins og franskar, hituð, kanelsykur stráð yfir *slef*, rjómi sem ídýfa og ó svo gott. smökkuðum líka djúpsteikt ravíólí, frosinn súkkulaðihúðaðan banana, karmelluepli -sem mig hefur alltaf langað að prófa og er svooo gott, og funnel cake sem var alveg punkturinn yfir i-ið. djúpsteikt deig svipað og í kleinuhringjum, með svona gulu eins og er í vínarbrauðum ofaná, rjómi ofan á því og svo súkkulaðisósa. je-sús-minn!
bannað að benda og hlæja ef ég kem rúllandi heim.

7 Responses to “california”
Ha ha HA HA! Ég hló upphátt þegar ég las þetta litli snillingurinn minn .. Hlakka ÓGEÐSLEGA til að sjá þig. Ég er á klakanum nefnilega. En fer aftur heim eftir Verzló líklega, eða þegar Skotinn hættir að hanga í lunch og fokking tengir internetið heima hjá mér…
hvenær hvenær HVENÆR ferðu???
ég lendi á mánudagsmorgun um versló…plííííís ekki vera farin…
hlakka til að sjá þig sæta
Þú verður að æfa þig í að segja öll þessi matarheiti með brjáluðum ammrískum hreim …cryspy, crunchy, creamy caramel apple… muna bara að maður verður að nota nóg af lýsingarorðum þegar maður talar um mat á ammrísku 
kv. Ester
nægur tími til að megra sig hérna heima (…ertu ekki örugglega búin að fá þér beyglu með cream-cheese?? …og ískaffi á starbucks, algjört möst)
Sennilega verð ég fyrir sunnan um næstu helgi, svo þá sé ég þig vonandi, Linda fer því miður á laugardaginn svo þú hittir hana ekki núna. Njótið síðustu daganna og eigið góða ferð heim,
knús mamma : )
Úúúúú!!! Gaman hjá þér stelpa. Hlakka til þegar við förum í svona ævintýri næsta sumar
Ég sprakk úr hlátri þegar ég las um allan þennan mat. Verður ekkert mál því við ætlum að vera svo ógó hollar, er þaggi?
Hlakka til að knúsa þig :*
Vá hvað ég sé mig í anda þarna hjá þér.. Slefandi og umm-landi með þér í kór, við svo hvetjandi hvor aðra til að fá sér ekki meira en gefast svo upp SAMAN réttlæta á einhvern hátt þetta góðgæti og slefa og umla meira…
Elska þig og hlakka til að heyra ferðasöguna gullið mitt :*
JEG verð hérna þegar þú kemur, ljúfust. OG vil meina að ég sé í frickin forgangi í hitting þar sem ég verð ekki hér að eilífu.
ég skal EKKI benda og hlæja, ég lofa.
MUNDU að kaupa bús í tollinum..!
og saltpillur!
mikil ást til þín, kleinuhringjakonan mín
Comments are closed for this entry.