flutningar
ég er búin að flytja sirka fimmtán sinnum undanfarin 6 ár og mér finnst alltaf allt vera komið þegar ég set ísskápaseglana á ísskápinn. það er svona final touch.
núna er eldhúsið mitt orðið voða fínt, herbergið allt að koma en stofan er enn mjög ljót. tveir hornsófar, fimm sjónvörp (ég á samt ekkert) og alltof mörg borð…og engar hillur. allt ljótt og ekkert í stíl.
og fyrst ég get ekki gert stofuna fína ætlaði ég að svindla og setja ísskápaseglana strax upp, en þá finn ég þá hvergi. og ég er samt búin að opna alla kassa.
glaaatað!
August 14, 2008
• Posted in: Uncategorized

3 Responses to “flutningar”
HÆ! hlakka til að koma og sjá nýju húsakynnin þín / er nú tæknilega búin að sjá þau galtóm, en það er nú ekki alveg það sama, finnst þér?
Svona sirka átta vikur, babycakes. Elska þig ógeðslega mikið.
xx
ónei það er sko ekki það sama…nú er allt að verða svooo fínt! þú verður eiginlega bara að vera hjá mér næst þegar þú kemur:D
ohh.. sweet… til hamingju með þetta sæta
annað, mamma á fullt af svona ískápa drasli.. steldu bara nokkrum þegar þú ferð þangað næst.. sér ábyggilega ekki högg á vatni
Comments are closed for this entry.