útsala
ég fór í warehouse í dag til að skipta kjól. hann kostaði 7.990 kr. þegar ég keypti hann (í apríl) en búðarkonan sagði mér að ég fengi ekki nema 2.000 kr. inneign fyrir hann því hann væri kominn á útsölu.
NEMA ég færi í bankann og fengi útprentun af færslunni, þá fengi ég fullt verð. svo ég gerði það að sjálfsögðu og labbaði út alsæl með tvennar nýjar buxur, eina peysu OG inneign upp á helminginn af kjólverðinu. hah!
eeen! ég sá alveg nákvæmlega eins kjól í búðinni, sama snið, sama efni, sama merki, en annað munstur.
bara nýrri týpa semsagt. og hann kostaði 10.990 kr.
eru verð á öllu búin að hækka svona rosalega eða er það bara svona sem útsölur virka?
August 18, 2008
• Posted in: Uncategorized

2 Responses to “útsala”
Góð saga, Sirline.
Keep’em coming!
Æjj fíl jú.. hata búðir
Djók.. en veit svo sannalega hvað þú ert að meina..
Kv. Hafrún
Comments are closed for this entry.