upper west side, manhattan
þar erum við. 103rd and broadway nánar tiltekið.
búin að vera hér í tvo daga og orðin algjör new york skvísa. fer ekkert nema að hafa starbucks í hönd og er alveg komin með lingóið á hreint. labbaði einmitt 33 blocks til að komast aftur heim á hótel í gær. 33 blocks! það er langt sko.
skrapp svo niður í brooklyn í dag með vini mínum til að vera viðstödd photoshoot á nýju fatalínunni hans (vá, sjáiði hvað ég er nálægt því að breytast í ásdísi rán?!). kom mér svo alveg sjálf tilbaka með subwayinum, þurfti að skipta 3svar um lest og villtist ekkert.
ég er alveg með þetta!
ok…
afhenti leigjendunum íbúðina mína síðasta sunnudag, í dag var síðasti dagurinn með börnunum í vinnunni og svo er frágangur á morgun.
ég á enn eftir að pakka fullt af dóti og koma fyrir í geymslu áður en ég fer, redda tryggingum og ýmsum peningamálum og svo auðvitað að pakka fyrir ferðina.
samt verð ég mætt til NY á föstudaginn.
ég hef semsagt tvo daga…nema annar þeirra fer í vinnu.
very smart sirl.
svaf í tvo tíma í nótt.
note to self:
ekki leggja af stað í tveggja mánaða utanlandsferðina sína tveimur dögum eftir að maður klárar vinnuna og vera að flytja í nýja íbúð og leigja hana út allt á sama tíma.
bara alls ekki.
mála íbúð- tékk
næst ætla ég að taka dísu vinkonu mína til fyrirmyndar og ráða atvinnumenn til verksins.
vil aldrei aftur mála neitt. aldrei.
og ef einhver ætlar að setja út á handverkið, mun afsökunum eins og beygluðum veggjum, lélegri birtu og vondum rúllum verða borið við. og svo fer viðkomandi í ævilangt heimsóknarbann.
en svona í alvöru, rúllan sem maðurinn seldi mér í morgun var rugl. þetta var eins og að mála með kafloðnum smáhundi.
ellisif
ha?
ellisif?
elli as in ‘elliheimili’?
eða
elli as in ‘hann er nú meiri vitleysingurinn hann elli’?
verð nú bara að opinbera fávísi mína. hef aldrei heyrt þetta nafn áður og geri mér virkilega ekki grein fyrir hvernig það er sagt.
hvort er það?
fyrra?
live high
svo skemmtilegt.
*var að taka við íbúðinni minni áðan. hún er fííín.
*fékk nýja vinnu í síðustu viku sem ég byrja í eftir sumarfrí…draumavinnan eins og er.
*ooog ipodinn minn, sem ég aulaðist til að gleyma í laugum í fyrradag, fannst! var alveg ofursvekkt yfir að týna honum því ég er búin að vanda mig rosalega við að fara vel með hann þar sem ég brussaðist til að skemma gamla.
og nú er ég ofurkát yfir að hafa fengið hann aftur.
lífið er svo skemmtilegt!
fyrir utan það að ég þarf að fara að mála þessa íbúð. það finnst mér ekki skemmtilegt.
sjálfboðaliðar?
anyone?
ekki?
bahama
bahama með veðurguðunum er iðulega spilað minnst einu sinni á meðan ég keyri í vinnuna…minnst.
fyrst þegar ég heyrði það hristi ég hausinn og ranghvolfdi augunum eins og ég gat og hreytti í útvarpið hvaða hálfvitar þetta væru eiginlega. kláraði samt að hlusta á viðtalið bara svona til að hneykslast.
næst; skipti um rás. pirruð.
svo; stóð sjálfa mig að því að hækka í botn, dilla mér í sætinu OG syngja með!
ég á mér nefnilega það leyndarmál að ég breytist svolítið í fm skvísu á sumrin…leyfi útvarpinu að stjórna tónlistarsmekknum, laumast til að hlusta á justin og r’n'b og finnst gaman að fara út að dansa. andstætt við það að í vetur er ég búin að sitja svartklædd á ölstofunni, drekka bjór og spjalla. ekki dansa.
(þessu má samt ekki taka sem svo að ég ætli að fara að láta sjá mig á oliver eða hverfis…það eru takmörk).
það er bara svo mikið sumar í þessu lagi…
*…þoli ekki svona barnaskóladrama…ætlað pakkí töskurnar og flytja tiiiiiiil bahama….*
love it!
nýjasta uppáhaldið mitt…
… hún ásdís rán er mikið í sviðsljósinu þessa dagana. hún er ekki alveg að átta sig á því að hennar styrkur liggur í því að þegja og vera sæt…með aðaláherslu á að þegja.
henni varð á þau mistök að opna munninn fyrir monitor.
“Það er alveg hard work að byggja upp vinsældir meðal dyravarða.”
“En ég þarf enga taktík í dag, ég er orðin það þekkt að ég þarf þess ekki.“
atli, plís gerðu hana að fastagesti í monitor…allavega einn gullmola frá henni í hverju blaði.
i beg!
í dag…
…er megrunarlausi dagurinn. veit ekki alveg hver ákvað það, en ég sá það í blaðinu og ætla að taka hann mjög alvarlega.
ég fór ekki í ræktina í morgun og ætla ekki heldur eftir vinnu.
ég er búin að fá mér morgunmat, hádegismat, OG ætla að fá mér kvöldmat.
lúxus maður!
…deeejóóók!
ætla samt að fá mér nammi í tilefni dagsins.
back to school
sit á kaffihúsi með ba ritgerðir frá ester og báru og er að fara yfir og kommenta.
þjónninn kom áðan og bauðst til að lækka í tónlistinni fyrir mig og allt. lít greinilega út fyrir að vera að gera eitthvað mjög mikilvægt. sem ég er að gera auðvitað. og nördinn sem ég er finnst þetta geðveikt skemmtilegt. það er svo langt síðan ég var í skólanum að mér finnst æði að fá smá útrás fyrir stafsetningarsmámunasemina og að geta skipt mér soldið af.
tek mig mjög vel út í þessu prófessorshlutverki þykir mér.
er þetta laust? nei!
mikið rosalega finnst mér það pirrandi þegar einhver illa lyktandi miðaldra karlmaðurinn hlammar sér á upphitunartækið við hliðiná mér í ræktinni, þótt öll bölvuð línan sé laus…
…og er það einhver regla hjá afgreiðslufólki í sundlaugum að láta mann fá skáp alveg við hliðiná einhverjum þótt það sé fullt af lausum?
ég vil hafa pláss!
