Fyrir 10 árum síðan bauð Vinstrihreyfingin – grænt framboð fyrst fram til Alþingis. Hópur vinstrisinnaðra karla og kvenna ákvað þá að bjóða kjósendum uppá valkost við krataflokkinn Samfylkinguna. Almenningi gafst því kostur á að setja X-ið til vinstri – við velferð, kvenfrelsi, friðarstefnu og náttúruvernd. Að tíu árum liðnum sitja Vinstri græn í ríkisstjórn og sinna því erfiða, en nauðsynlega verkefni, að moka flórinn eftir 18 ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins – valdatíð sem einkenndist af spillingu, siðleysi og nýfrjálshyggjugeðveiki. Hún endaði í efnahagshruni sem afhjúpaði þá gjaldþrota stefnu sem flokkurinn stendur fyrir.
Vinstri græn hafa verið meðvituð um að flokkur miðaldra karlmanna getur ekki boðið konum uppá raunhæfan valkost, og hefur því sem betur fer haft róttæka jafnréttisstefnu að leiðarljósi við uppröðun á lista. En á sama hátt og miðaldra karlar geta ekki verið fulltrúar kvenna, þá getur miðaldra þingflokkur ekki verið fulltrúi ungs fólks. Meðalaldur þingflokks VG er 54 ár, og aðeins einn þingmaður VG er undir 48 ára aldri. Þessi hái meðalaldur þingflokksins endurspeglar ekki kjósendur flokksins sem lengi hefur átt mikinn stuðning hjá ungu fólki, en um þriðjungur flokksfélaga eru 30 ára og yngri.
Í vor ráðast úrslit kosninga af því hversu dugleg við verðum að moka Sjálfstæðisflokksflórinn. En ekki af því einu. Eins og fyrir 10 árum þá er það mikilvægt nú að fólk hafi alvöru valkost. Í kjölfar hrunsins varð ungt fólk meðvitara um það hver það eru sem að raunverulega gæta hagsmuna þeirra – það gerir það náttúrulega enginn betur en við sjálf. Þess vegna þarf ungt fólk sína fulltrúa á þingi. Og það er valkosturinn sem við verðum að bjóða ungum kjósendum í vor. Flokkur sem að stillir ungu fólki aðeins upp sem „listaskrauti“ er ekki raunverulegur valkostur fyrir ungt fólk.
Að því sögðu lýsa undirrituð hér með yfir stuðningi við unga og öfluga konu, Auði Lilju Erlingsdóttur, í 2. til 3. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík 7. mars. Auður Lilja er 29 ára gömul, stjórnmálafræðingur með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og starfar sem mannauðsráðgjafi. Hún var formaður Ungra vinstri grænna á árunum 2006-2008 og undir hennar stjórn efldist ungliðahreyfing Vinstri grænna og gat hreyfingin sér gott orðspor fyrir að vera fylgin sér, öflug, skemmtileg og hugmyndarík.
Auður Lilja hefur víðar lagt lóð sín á vogarskálar Vinstri grænna, en hún sat m.a. í stjórn Vinstri grænna í Reykjavík og er nú varamaður í stjórn Vinstri grænna. Þá er hún fyrsti varaþingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og hefur í tvígang tekið sæti á Alþingi á yfirstandandi kjörtímabili. Þar lagði hún meðal annars fram frumvarp um breytingu á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna og þingsályktunartillögu um úttekt á kjörum og réttindum námsmanna. Auður Lilja er nýr varaformaður Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Auður Lilja er stjórnmálakona með ástríðu fyrir því að berjast fyrir betra samfélagi. Það hefur hún gert í grasrót Vinstri grænna um áraraðir og verið okkur félögum hennar stuðningur, innblástur og góður félagi. Við treystum engum betur til að vera okkar fulltrúi á Alþingi Íslendinga og hvetjum fólk til að veita henni og ungu fólki stuðning í forvali Vinstri grænna í Reykjavík 7. mars nk.
Steinunn Rögnvaldsdóttir, formaður Ungra vinstri grænna
Þórhildur Halla Jónsdóttir, ritari Ungra vinstri grænna
Erlendur Jónsson, gjaldkeri Ungra vinstri grænna
Andrés Rúnar Ingason, meðstjórnandi í stjórn UVG
Höfundar sátu í stjórn UVG með Auði Lilju Erlingsdóttur á árunum 2006-2008
Greinin birtist á Smugunni 5. mars 2009