Vísindamönnum hefur loksins tekist að finna dásamlegustu setningu í heimi. Hún heyrðist öskruð af sklíkum fídómskrafti að bergmálaði milli fjalladalanna á norðvesturhorni lítillar eyju í Atlantshafi nú síðdegis. Við það að mæla þessa setningu og meina hana af öllu hjarta fær maður fiðring í magann, fyllist bjartsýni og trú á allt hið góða í lífinu og svífur um í sjöunda himni líkt og væri maður ástfanginn. Það er einfaldlega ekki til dásamlegri tilfinning en að geta sagt:
“ÉG ER HÆTT AÐ VINNA Í KS VARMAHLÍÐ!!!!”
Archive for August, 2005
Best í heimi
Sunday, August 28th, 2005“Enga helvítis mótmælendur”
Friday, August 26th, 2005Mótmæli eru í tísku í sumar, án efa. Upp úr hádegi í dag klifruðu tveir menn uppá þak Stjórnarráðsins, drógu niður Íslenska fánan og ætluðu að flagga öðrum fána sem á stóð “Engin helvítis álver”. Heimildum ber ekki saman um hvort þeim hafi tekist það, en það er alla vega alveg pottþétt að löggan kom og stakk þeim í steininn. Það er strax búið að slá því föstu (samkvæmt visir.is) að þetta sé Kárahnjúkaliðið, enda ekki séns á að neinir aðrir séu á móti álveri, hvað þá að þeir myndu grípa til svona drastískra aðferða til að tjá hug sinn.
Margt leitar á hugann við þessar fréttir. Ein pæling er hvort að piltunum hefði verið stungið í steininn ef þeir hefðu flaggað borða sem á stæði: “Enga helvítis mótmælendur á Kárahnjúkum!” eða “Engan helvís skítalaun handa fólki í umönnunarstörfum!”. Gaman væri að framkvæma þetta og sjá viðbrögðin, hjá lögreglu, fjölmiðlum og fólkinu í landinu. Maður ætti kannski að setja sig í klifurgírinn?
Nú verður skemmtilegt að sjá hvort að menn ganga aftur af göflunum yfir öllum þessum athyglissjúku mótmælendum. Þeir voru náttúrulega að leggja sig í stórhættu með því að klifra uppá þetta háhýsi, vá maður. Þeir hefðu meiraðsegja getað skemmt þakplöturnar, jesúspéturmaríajósep! Og lögreglan, hún þurfti bara að hætta að borða kleinuhringi og fylgja gömlum konum yfir götuna til þess að fara og draga niður þessa hryðjuverkamenn. Gott ef við þurfum ekki að taka upp siði Lundúnarlögreglunnar bráðlega, þ.e. að skjóta fyrst og spyrja svo! Þetta náttúrulega er gersamlega óþolandi ástand.
Tyrklandsfarar athugið
Thursday, August 25th, 2005Þið vitið vonandi allt eftirfarandi, eða það stendur á þessu blaði sem við fengum í vor en ég er því miður búin að týna. En ef ekki, vona ég að þetta verði gagnlegt:
- Í Tyrklandi gilda strangar reglur um erlenda gjaldmiðla og þess vegna getum við ekki tekið út evrur eða dollara þegar á staðinn er komið. Allan erlendan gjaldeyri verðum við þess vegna að taka út hérlendis. Bæði evrur og dollarar ganga, en þær á ferðaskrifstofunni mæltu með evrum.
- Á hinni annars ágætu aboutmarmaris.com stendur að við gætum átt í erfiðleikum með að taka út af kreditkortum í hraðbönkum. Slík vandamál hafa aldrei komið upp í ferðum hjá þessari ferðaskrifstofu, frekar hafa verið vandamál með að taka út af debetkortum. Það ætti þess vegna að nægja að fara út með þessi fínu kreditkort sem við fengum frá KB-banka.
- Ef ferðin hefur verið borguð a.m.k. til hálfs með þessum kreditkortum, fylgir líka ferðaslysatrygging með. Ef þið hafið ekki borgað ferðina með kortinu, er kannski ráðlegt að hringja í tryggingarfélagið sitt. Tímabundin ferðatrygging kostar ekki mikið ef þið eruð ekki þegar tryggð, t.d. í F+ tryggingarpakkanum sem ég er víst í…
- Talandi um þetta fína kreditkort, ef þið eruð eins og ég, og hafið verið að spara kortið, þá mæli ég með að þið grafið PIN-númerið upp… hið snarasta!
- Ljósritið endilega vegabréfið ykkar, það getur verið hentugt að hafa afrit af því ef frumritið skyldi glatast.
- Ef þið eruð ekki búin að vera að bryðja B-vítamínið ykkar síðustu 2-3 mánuðina, þá þýðir ekki að byrja núna. Sorrí, þið eruð flugnamatur. Mæli þess vegna með því að þið takið eitthvað með ykkur til að smyrja yfir bitin og brunnu axlirnar (sem enginn ætlar sér að fá, en margt fer öðruvísi en ætlað er). Einhver (Anna Guðrún) minntist á Aloa Vera forte. Aðrar uppástungur eru hins vegar líka vel þegnar.
Ég er…
Monday, August 22nd, 2005![]() |
You scored as Ginny Weasley. You definitely share your mother’s (Molly Weasley) fiery resolve and slowly but surely people are learning to respect you because of it.
|
Your Harry Potter Alter Ego Is…?
created with QuizFarm.com
“To live would be an awfully big adventure…”
Sunday, August 21st, 2005Þegar veðrið er vont og vinnan leiðinleg má finna mig einhversstaðar í þungum þönkum á memory lane eða í besta falli hangandi yfir sjónvarpinu. Síðustu tvo daga hef ég ekki gert neitt nema að horfa á nýjustu tilraunina til að koma Pétri Pan yfir á hvíta tjaldið… tvisvar. Myndin er síðan 2003 og er bara mjög góð, allavega ansi mikið betri heldur en hin hræðilega “Hook”, síðan þarna um árið. Það var náttúrulega sögumisþyrming af versta tagi…
Myndin leiddi mig að sjálfsögðu niður minningaslóð, og fékk mig til að muna þegar ég heyrði fyrst söguna um Pétur Pan. Það var ekki eins og hver önnur bók sem var lesin fyrir svefninn heima. Nei, þessi var lesin á sjúkrahúsi fyrir sunnan. Ég var pínulítið skott og í hálskirtlatöku. Nóttina eftir að kirtlarnir voru teknir, las mamma fyrir mig söguna og ég var svo spennt og fyrirferðamikil að ég held að við höfum haldið vöku fyrir öllum á sömu stofu. Þetta voru góðir dagar, ég mátti ekki borða neitt annað en eitthvað kalt og fljótandi, svo auðvitað lifði ég á ís eins lengi og ég gat komist upp með það og naut þess að horfa á My little pony og Hróa hött á Stöð Tvö, sem var til þarna í stóru höfuðborginni, en ekki heima. Ég varð miður mín þegar ég komst að því að það voru ekki miklar líkur til þess að hálskirtlarnir myndu vaxa svo mikið aftur að hægt væri að fjarlægja þá í annað sinn…
Það var ánægjulegt að rifja upp þessa sögu sem eldist ekki eða deyr, frekar en sögupersónan sjálf. Mæli með henni, því öll höfum við eitt sinn verið börn og verið fegin því að vera laus við áhyggjur þær sem þjaka fullorðna. En öll börn vaxa úr grasi…
nema eitt…
Góðar ömmur og fleira
Thursday, August 18th, 2005Ég er “flutt inn” í Þórunnarstrætinu. “Flutt inn” þýðir að ég er búin að hlaða inn í herbergið rúmi og stól og fullt af borðum í öllum stærðum og gerðum. Hins vegar eru öll föt, bækur, dót og svo það mikilvægasta, ég sjálf, ennþá föst í Skagafirði. Því miður.
EN, það eru bara 7 vaktir eftir í KS Varmahlíð. Sem þýðir að mér mun kannski mögulega takast að bjarga sál minni úr vítislogum þess helvítis, kannski til þess eins að týna henni á fylleríi í Tyrklandi, sem nota bene er aðeins hálfur mánuður í að ég og tugir annarra MA-inga sækjum heim. En við skulum vera bjartsýn, það er alltaf von til þess að ég endi ekki upp sem sálarlaus óþverri…
Annars var ég að máta upphlutinn hennar ömmu í dag, sem ég ætla að fá lánaðan fyrir árshátíð MA… í desember. Gott að vera snemma í hlutunum, og passlegir þjóðbúningar vaxa nú ekki á trjánum, alla vega ekki ókeypis. Þessi passaði hins vegar ágætlega, þótt ég fyllti kannski ekki alveg útí hann þá kemur það ekki að sök. Mér leið eins og prinsessu þegar ég var komin í öll herlegheitin. Amma tók bara loforð af mér að vera betur greidd og í skóm á sjálfri árshátíðinni og lánaði mér svo allt heila klabbið. Gott að eiga góða að.
Boðorð dagsins
Wednesday, August 17th, 2005En það bar til að um þessar mundir fór Steinunn að lesa Arabíukonur eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur.
Afleiðingar þess eru að hún er sérstaklega feminísk þessa dagana.
Far þú og gjör slíkt hið sama.
Frímerkjaskandall
Tuesday, August 16th, 2005Í vinnunni í dag var ég að taka upp dót frá Íslandspósti fyrir útibú póstsins hjá okkur. Meðfylgjandi voru “Frímerkjafréttir Íslandspósts”, afskaplega áhugavert (nei) efni um hvað er á döfinni í frímerkjaheiminum. Ég hef reyndar mikið pælt í frímerkjamyndefnum síðan ég byrjaði að vinna þarna, t.d. af hverju sum myndefnin eru svona ljót og ómerkileg. Til dæmis frímerkji með húsflugum og holdsveikraspítölum. En nú tekur steininn úr!
Samkvæmt “Frímerkjafréttum” verður í október gefið út frímerki með Verslunarskóla Íslands sem myndefni í tilefni 100 ára afmælis skólans. Versló! ARRRG!
Svona í alvöru þá hef ég ekkert á móti Versló. En verandi þessi bitra og afbrýðisama manneskja sem ég greinilega er, þá var ekki laust við að ég hugleiddi hvort að MA væri til á frímerkji. Ég fór á heimasíðu Íslandspósts og athugaði málið. Onei! EN, MR er til á frímerki!
Menntaskólinn á Akureyri er ein af elstu menntastofnun landsins. Hann á upphaf sitt að rekja til skólans á Möðruvöllum í Hörgárdal, sem stofnaður var árið 1880 og var arftaki hins forna skóla að Hólum í Hjaltadal. Skólinn fluttur að Akureyri eftir bruna og Gamli skóli, sem enn er kennt í að fullum krafti, var byggður árið 1904 og í tilefni þess var haldið upp á 100 ára afmæli hans með glæsilegum sýningum og skemmtunum síðasta vetur.
En af hverju fengum við ekki frímerki?
Og fyrst ég er byrjuð, af hverju húsflugur? Hvar eru myndirnar af Þorbergi Þórðar og Davíð Stefáns frá Fagraskógi og Steini Steinarr? Hvar eru fornar þjóðsagnapersónur og galdramenn, Galdra-Loftur og Gilitrutt? Hver eru Drangey, Hvítserkur og Dimmuborgir? HVAR er brennivínið, hákarlinn og skyrið?
Frímerki berast út um allan heim og hví ekki að kynna land og þjóð betur heldur en að skella á þau mynd af orkuveitunni, pöddum og rósum (sem ekki einu sinni vaxa villtar á Íslandi). Orkuveitan og pöddurnar gera auðvitað sitt gagn, en ég efa að þau vekji forvitni eða hrifningu almennings utanlands… og innanlands.
Þetta er samt án efa það undarlegasta sem ég hef gert að umræðuefni á blogginu mínu…
Harry Potter
Sunday, August 14th, 2005Viðvörun: Eftirfarandi blogg mun verða mjög óspennandi fyrir þá sem eru ekki forfallnir Harry Potter aðdáendur. Þannig manneskjur (sagt með ofurlitlu skilningsleysi og samúð yfir því sem þeir eru að missa af) ættu að sniðganga þessa bloggfærslu. Aðdáendur eru hins vegar hvattir til að lesa og segja hvað þeim fannst um bókina.
Kláraði Harry Potter and the Half-blood Prince í morgunn. Bókin er ein sú skemmtilegasta aflestrar sem ég hef lengi lesið, en ekki jafn brjálæðislega spennandi og taugatrekkjandi og síðustu 2 á undan henni. Hvað mig varðar finnst mér það á vissan hátt betra, ég gat notið þessara sögu miklu betur þegar ég var ekki skjálfandi af stressi allan heila tíman. Bókin er betri en sú síðasta, og þriðja best af þeim sem út eru komnar, að mínu mati. Bók númer 3 og 4 (Fanginn frá Azkaban og Eldbikarinn) slást ennþá um toppsætið, fyrsta bókin (Viskusteinninn) er fast á hæla Hálf-blóðsprinssins í fjórða sæti og svo kemur sú fimmta (Fönixreglan), sem tapar á því að ég var svo reið, stressuð og pirruð allan tíman þegar ég las hana, það var eins og ekkert gengi upp hjá Harry kallinum. Bók númer 2 (Leyniklefinn), kemur síðust, hún er áberandi minnst eftirminnileg, nema fyrir utan hversu pirrandi Lockhart var (en hann var síðan gersamlega sleginn út í Hver-er-mest-óþolandi keppninni af Dolores Umbridge, einu uppskálduðu manneskjunni sem hefur fengið mig til að öskra og lemja bók…)
Akureyri
Thursday, August 11th, 2005Ég elska Akureyri í rigningu. Hellirigning eða nokkrir dropar sem öðru hverju lenda mjúklega á vöngunum, það skiptir ekki máli. Þegar rignir á Akureyri finnur maður greinilega lyktina af gróðrinum og þar af leiðandi ferðu að taka betur eftir honum. Tré og runnar vaxa jú á mörgum öðrum stöðum, en það einhvern veginn skiptir minna máli þangað til maður fer að taka eftir þeim. Og þá sé ég líka litlu húsin á bak við trén og runnana, geng eftir götunni og óska þess að búa í þessu húsi eða þessu, sérhverju húsi sem ég sé. Jafnvel þessu draugalega þarna, ég gæti skekkt girðinguna aðeins, ræktað meira illgresi, fengið mér svartan kött og pamm! frábært nornahús komið.
Á þessari stundu leikur lífið við mig, og von bráðar er ég sest með uppáhaldskaffið mitt og spánýja Harry Potter bók inná Bláu könnunni þar sem er óvenju troðið af fjölskyldufólki, enda sunnudagur. Eftir fyrsta kaflann er þess vegna arkað í meira næði til afa og ömmu… auk þess sem þar eru glóðvolgar pönnukökur á boðstólum.
