Ég er hætt á bókasafninu. Það er frekar leiðinlegt, þar sem að þetta er áhugaverðasta vinna sem ég hef nokkurn tíman haft, æðislegt vinnuumhverfi og góðir yfirmenn. Ég get þó huggað mig við að launin voru ekkert til að hrópa húrra fyrir svo það kemur ekki til með að skipta neinu gríðarlegu máli. En á samt örugglega eftir að sakna þess, á þessari stundu sé ég eiginlega alveg heilmikið eftir því að hafa hætt. En ég hef mínar ástæður.
Hrós dagsins fær Íslandsbanki, fyrir alveg “frábæran” kynningarbækling. Þeim einmitt tókst að taka viðtal við þær þrjár konur sem höfða síst til mín í íslensku þjóðfélagi; Birgittu Haukdal, Þorgerði Katrínu og Svanhildi Hólm.
KEMUR, Íslandsbanki.
Tónlistin: Jesús Kristur Súperstar uppá íslenskuna - öll lögin. Hef varla hlustað á annað síðasta hálfa mánuðinn. Í augnablikinu er það samt „Grasagarðurinn” sem er á repeat.