Landafræðikennarinn minn segir að ég sé andsetin.
Ja, maður á alla vega ekki eftir að falla í gleymsku svo auðveldlega í þessum skóla eftir að maður útskrifast…
Og að lokum, MÆTUM EKKI Í SAMRÆMDU PRÓFIN NÆSTU DAGA!
(lesið umræðuna á muninn.is)
Landafræðikennarinn minn segir að ég sé andsetin.
Ja, maður á alla vega ekki eftir að falla í gleymsku svo auðveldlega í þessum skóla eftir að maður útskrifast…
Og að lokum, MÆTUM EKKI Í SAMRÆMDU PRÓFIN NÆSTU DAGA!
(lesið umræðuna á muninn.is)
Muninn kemur bráðum út og það verður ekki mikið bloggað þangað til það er afstaðið. Auk þess er árshátíð á næsta leyti sem auðveldar ekki málin, sérstaklega þar sem ég er forsöngvari (ásamt Nonna bekkjarbróður). Þar sem ég er með kvef og byrjuð að fríka út af stressi yfir því að hljóma eins og hás kráka á árshátíðinni lifi ég nú nánast einungis á mandarínum, drekk jurtate og tek viðbjóðslegar grasatöflur sem eiga að hrekja úr mér kvefið.
Annað sem ég tek mér fyrir hendur þessa dagana er fyrir utan stöðuga Munins-vinnu, eru kóræfingar, stofnun Ungra Vinstri grænna á Akureyri á Akureyri (á miðvikudaginn síðasta… og að sjálfsögðu fór ég inní stjórn), skrifa örfáar greinar (þ.a.m. grein fyrir vinstri.is sem ritstjórnin er annað hvort að spara vegna þess hve góð hún er eða búin að henda vegna þess hve slæm hún er…) og gömlu-dansa-námskeið. Aumingja Sigurður að sitja uppi með mig sem dansfélaga á þessu námskeiði, hann sem dansar svo vel… En tja tja tja er skemmtilegt!
Skólinn og fjölskyldan hafa kannski mest fengið að finna fyrir fíkn minni í að hlaða á mig hinum fjölbreytilegustu verkefnum. Skólinn gengur þó alltaf ágætlega. En mamma og pabbi komu á Akureyri í síðustu viku og ég var svo upptekin að ég hafði ekki einu sinni tíma til að hitta þau. Ég veit ekki hvort ég sé mömmu aftur fyrr en um jólin. Það er mjög erfitt, sérstaklega þegar maður er undir ansi miklu álagi.
En svoleiðis eru nú einu sinni hlutirnir, og það er ekki eins og það sé snúið upp á hendina á mér til að láta mig gera allt þetta. Mér þykir það heiður að vera forsöngvari (enda elska ég að syngja), ég hef metnað til að standa mig sem ritstýra, gömlu dansarnir eru skemmtilegir og pólitíkin er lífnausynleg svo ég fari ekki að líta niður á sjálfa mig. En að léttara hjali. Mig langar(eftir vinsamlegt yfirdrull menningarvitans)að bæta við bókayfirlitið mitt nokkrum áhugaverðum bókum; Kommúnisminn e. Richard Pipes, Í reiðuleysi í París og London e. Geoge Orwell og Aftur til steinsins e. Njörð P. Njarðvík. En tek fram að ég treysti mér ekki til að gera tæmandi lista yfir allt sem mig langar að glugga í í þessum bókatíðindum. Svo að efst á óskalistanum í jólagjöf er meiri tími, til að geta lesið. Já og skrifað. Mig langar einmitt að skrifa einhvern tíman bók um Möðruvallarhreyfinguna. Það voru ungir uppreisnarmenn í Framsóknarflokknum sem sögðu margir hverjir skilið við Framsókn á áttunda áratugnum vegna þess að þá var byrjað á því sem er lokið í dag, að jarða róttæknina í Framsókn. Meðal þessara manna var pabbi minn, sem er einn fárra sem hefur afrekað það að vera rekinn úr Framsóknarflokknum. Og það hefur hann alltaf síðan talið sér til tekna. Þessu var ég bara að komast að um helgina. En hvað pabbi minn er svalur!
Annars held ég að þetta bara gangi ekki lengur. Pabbi var rétt rúmlega tvítugur þegar hann var rekin úr Framsókn. Freyr var yngri en ég er núna þegar hann sagði hátt og snjallt “Pereat Björn!” á fundi með Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra á Akureyri fyrir mörgum árum. Ég verð ættarskömmin ef ég fer ekki að gera eitthvað róttækt bráðum…
Fór annars á Harry Potter áðan með Sindra bróður. Og hér kemur stutt gagnrýni:
Myndin nær ekki dýpt bókarinnar þó að leikstjórinn sé augljóslega að reyna og reyna. Hún er þó langt frá því að vera léleg, hún er í heildina mjög góð, yfirleitt vel gerð. En eitt mikilvægt atriði klúðraðist, tjah, kannski ekki algerlega, en klúður var það. Það var kirkjugarðsatriðið. Túlkun leikstjórans og Ralph Fiennes á Voldemort er algerlega ekki að gera sig, Wormtail er afskaplega ótrúverðugur og þetta atriði bara er ekki eins gott og það ætti að vera. Alls ekki. Í tónlistinni eru aldrei þessu vant stigin feilspor og það er nánast búið að henda hinu frábæra Hedwigs’ theme út, sem er skandall! Ennfremur eru örugglega margar spurningar sem áhorfendur sem ekki hafa lesið bókina spyrja, óleistar morðgátur og asnalegar málalyktanir í sumum tilfellum, bókin er kannski löng en það á samt að gjöra svo vel að gera henni góð skil takk fyrir takk!
En margt er líka gott, Daniel Radcliff sem Harry Potter og Brendan Gleeson sem MadEye Moody eiga t.d. báðir stórleik og Crouch-feðgarnir stela senunni, hvor öðrum flottari! Auk þess koma Robert Pattinson sem Cedric Diggory og Rupert Grint sem Ron Weasley sterkir inn. Ron er reyndar óþolandi í myndinni en það var hann einnig í bókinni. Honum er hins vegar hollara að fara í klippingu og þroskast svolítið fyrir næstu mynd, það er ekki alltaf hægt að stíla inná hann sem skoplegu persónuna. Ef þetta er endinn á þessu tímabili hjá honum sleppur þetta, annars á ég eftir að senda einhverjum öskrara eftir næstu mynd.
Í heildina: Góð, en bókinni ekki gerð nógu góð skil. Og kirkjugarðsklúðrið á eftir að ásækja mig.
Og vá hvað þetta er orðið miklu meira en nóg!
Góða nótt.
Það besta úr bókatíðindum:
Artemis Fowl - Blekkingin - Eoin Colfer
Eina barnabókin sem ég bókstaflega verð að lesa um þessi jól. Þetta er fjórða bókin um Artemis Fowl og þessar bækur koma fast á hæla Harry Potter í gæðum. Artemis er skemmtilega ósvífinn ungur glæpasnillingur og aðrar persónur eru oftar en ekki lýsandi dæmi um það besta sem kemur upp úr krafsinu þegar höfundar leyfa sér að sleppa hugmyndafluginu lausu. Alheimslögguálfar, stelsjúkir dvergar, tröllvaxinn lífvörður og pínulítil systir hans með svarta beltið í karate eru bara örfá dæmi um snilldarpersónurnar sem fyrir koma í þessum bókum. Þórunn fær þessa pottþétt í jólagjöf, hlakka til að stela bókinni af henni.
Barnagælur - Óttar M. Norðfjörð
Óttar M er höfundur bestu og mest sláandi ljóðabókar sem ég hef lesið, Grillveður í október. Fróðlegt verður að sjá hvernig hann er í skáldsögunum. Titillinn lofar líka góðu… eða það er að segja, slæmu…
Bjargið okkur - Hugleikur Dagsson
Hugleikur er snillingur. Ég þrái þessa bók.
Í fylgd með fullorðnum - Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Í mér situr alltaf einhver aðdáun á þessari nöfnu minni. Auk þess hljómar sagan ágætlega og dómarnir hafa sömuleiðis verið ágætir.
Lífsloginn - Björn Þorláksson
Björn kom og las uppúr bókinni sinni á Degi íslenskrar tungu í MA. Við sama tækifæri var ég að lesa upp 2 ljóð úr gömlum Muninsblöðum og spjallaði þar af leiðandi aðeins við hann. Fínn gaur, og drepfyndin bók, eða alla vega það sem hann las úr henni. Myndi vilja sjá þessa koma upp úr jólapakka á heimilinu.
Tími Nornarinnar - Árni Þórarinsson
Í þessari kemur eftirfarandi fyrir; Leikfélag Menntaskólans á Akureyri, Galdra-Loftur og flúðasiglingar í Skagafirði (þar sem einhver deyr). Ég bara verð að lesa þessa!
Túristi - Stefán Máni
Söguþráðurinn hljómar áhugaverður…
Vetrarborgin - Arnaldur Indriða
Arnaldur er klassískur um jólin. Vona að pabbi fái þessa…
Þriðja táknið - Yrsa Sigurðardóttir
Það er búið að selja réttinn að þessari til 30 annarra landa. Eins og það sé ekki nóg þá er Yrsa ein sú albesta íslenska skáldkona sem ég hef lesið á síðustu árum. Hún hefur aðallega skrifað barnabækur hingað til en þessi bók er glæpasaga með kvenhetju og tengist galdrafárinu á 17. öld. Alveg nákvæmlega minn tebolli!
Blómin í ánni - Saga frá Hirósíma - Edita Morris
Ástarsaga í skugga árásinnar á Hírósíma. Held að þetta væri öllum holl lesninig, mig langar mikið í þessa.
Dauðinn í Feneyjum - Thomas Mann
Þjóðverjinn Thomas Mann er stórt nafn í bókmenntaheiminum og Dauðinn í Feneyjum eitt af hans þekktustu og áhrifamestu verkum. Og einhver hlýtur ástæðan fyrir því að vera. Það er það sem vekur forvitni mína…
Grendel - John Gardner
Efnið er sótt í hina fornu Bjólfskviðu sem var nýlega kvikmynduð. Langar að vita meira um þetta efni.
Í nafni kærleikans - James Meek
Þorp í Síberíu 1919. Samfélagið er í upplausn, hugsjónum byltingarinnar og gimmilegur veruleiki hins sundurleita hóps íbúanna lýstur saman og hve langt má ganga í nafni kærleikans? Söguþráðurinn hljómar mjög vel.
Kertin brenna niður - Sandor Marai
Bönnuð í valdatíð kommúnista, en er nú ein rómaðasta skáldsaga Evrópu. Fjallar um tvo herforingja sem eitt sinn voru óaðskiljanlegir, en fyrir 40 árum gerðist eitthvað sem skar á böndin á milli þeirra. Þegar þeir hittast aftur að fjórum áratugum liðnum er loks komið að stund sannleikans. Hljómar vel.
Krónprinsessan - Hanne-Vibeke Holst
Höfundurinn er þekkt og virt sem talsmaður réttindabaráttu kvenna á heimsvísu. Bókin fjallar um konu á framabraut, miskunnarleysi fjölmiðlanna og hugsjónir sem víkja fyrir hagsmunum eða stundum öfugt. Þetta er víst skyldulesning fyrir konur sem hafa áhuga á stjórnmálum. Pant!
Levíatan - Morðingi um borð - Boris Akúnin
Í enga bók langar mig meira en þessa. Ég elska bækurnar eftir Boris Akúnin. Aðalpersónan, hinn snjalli Erast Fandorin er rússneskur lögreglumaður um aldamótin 1900. Eins og James Bond, nema hann hefur tilfinningar og er fyndnari… og betri! Ég get aldrei séð í gegnum plottið í þessum bókum. Ég óska formlega eftir þessari í jólagjöf!
Lífið er annars staðar - Milan Kundera
Skáldið sem beita vildi list sinni í baráttu fyrir betri heimi gengur einhverra hluta vegna í lið andstæðinganna og klæðir hrylling og harm í fagrann búning ljóðsins. Hvernig gerist það? Þetta er mér mikið hjartans mál, hvernig svona getur gerst, og því er ég afar áhugasöm um þessa bók.
Manntafl - Stefan Zweig
Annað stórt nafn. Þetta er sagt mikið meistaraverk og sagan um dularfullan skákman um borð í farþegaskipi á leið til Buenos Aires og skelfilega fortíð hans, vekur athygli mína.
Penelópukviða - Margaret Atwood
Að vera kona og bíða eftir stríðsglöðum eiginmanni sínum í tuttugu ár og þurfa að kljást við um 100 ömurlega gaura sem vilja komast upp í rúm til manns og svo loks drullast gaurinn heim og þá drepur hann ekki bara gaurana, heldur líka 12 þernur á heimilinu…
Hvernig er það?
Góður söguþráður, mig langar mjög mikið að eignast þessa.
Við enda hringsins - Tom Egeland
Þykir minna á Da Vinci lykilinn. Hef ekki lesið þá bók þannig að engu er að tapa. Fjallar um fund á ævagömlu skríni sem talið er búa fyrir leyndardómum sem breytt geta gangi sögunnar, þjófnað á sama skríni og æsispennandi eltingaleik í kjölfarið.
Dáið er allt án drauma - Halldór Laxness
Ljóð Halldórs Laxness. Við SÓ gátum komist að sameiginlegri niðurstöðu um Laxness eftir að hann var búin að hneyksla mig til Hafnafjarðar og aftur til baka með ólofsamlegum ummælum um Laxness. Niðurstaða okkar var þessi: Hann var frábært ljóðskáld.
Þeir sem þekkja mig vita hve mikið mig langar í þessa bók.
Þetta var það besta úr bókatíðindum í ár, en auðvitað var margt annað áhugavert í því riti. Góð uppskera í ár, hlakka til hörðu pakkanna.
Slétt hár og linsur
Eitthvað sem ég geri aldrei aftur.
Ekki einu sinni litli bróðir minn þekkti mig! Þetta er klárlega ekki málið. En ég veit þó alla vega að ef ég þarf að fara “under-cover” þá er greinilega lítið mál fyrir mig að dulbúast…
Las ljóð uppá sviði í Kvosinni í gær í tilefni dags íslenskrar tungu. Það gekk undarlega vel og ég var mjög ánægð með það.
Og ég fór í klippingu. Axlasítt, tjásur, engin voðaleg breyting en mér finnst ég 10 kílóum léttari.
Öskraði “Hommi” við undirleik Gunnhildar á Stiðarvauk í gær. Ég var samt í bjullu-slétthár-linsu-dulargervinu þannig að kannski hefur enginn fattað þátt minn í þessu númeri. Æjiégveitþaðekki…
Bókatíðindin eru komin og ég fagna þeim. Umfjöllun kemur síðar. Leiklistarnámskeið og alls kyns mögulegt og ómögulegt vesen um helgina. Vonandi verður eitthvað rall líka. En þetta er orðið gott í bili.
Viðauki: Adda dreymdi líka að við lentum í flugslysi síðustu nótt. Mér er ekki farið að standa á sama…
Er ekki alveg viss um hvað mér finnst um svona kitl en ætla samt að láta vaða:
Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- Læra á trommur
- Lesa allt eftir Halldór Laxness
- Starfa aftur með áhugaleikfélagi
- Læra að elda jólamat
- Eignast barn og láta það ekki koma í veg fyrir starfsframa
- Senda frá mér bók
- Búa í öðru landi um skeið… samt koma aftur heim ef allt verður ekki farið fjandans til…
Sjö hlutir sem ég get gert:
- Leynt því fyrir um 1000 manns að rennilásinn á kjólnum mínum hafi sprungið og ég sé því í raun hálfnakin að syngja einsöng á árshátíð MA
- Hlegið að sjálfri mér
- Náð góðum tengslum við gamalt fólk
- Sungið ágætlega
- Eldað einn og aðeins EINN góðan rétt - Pastarétt!
- Setið hest
- Tekið vodka í nefið
Sjö hlutir sem ég get alls ekki gert:
- Allt tæknitengt dót
- Látið heimsku ekki fara í taugarnar á mér
- Dansað án þess að ruglast í taktinum
- Drukkið kolsýrt vatn
- Staðið á skíðum eða skautum (jafnvægisskynið ekki alveg í orden held ég)
- Farið í heilsuátak og staðið við það
- Eytt tíma í að mála mig og slétta á mér hárið klukkan hálf átta um morguninn á nauðaómerkilegum skóladegi.
Sjö hlutir sem heilla við hitt kynið:
- Húmorinn
- Brosið
- Maginn
- Gáfurnar
- Hjartagæska
- Augun
- Hárið
Sjö frægir sem heilla:
- Ewan McGregor
- Johnny Depp
- Ólafur Stefáns
- Dominic Monaghan
- Páll Óskar (hann er bara svo æðislegur gaur með dásamlega rödd!)
- Topher Grace
- Arnar í Leaves
Sjö orð eða setningar sem ég nota mikið:
- Það er fundur…
- Helvítis
- Æji elskan mín
- Ertu ekki að grínast?
- Þegiði!
- Afsakið að ég er sein
- Ok, þetta reddast
Sjö hlutir sem ég sé núna:
- Talvan hans Sindra sem ég fékk lánaða tímabundið í skiptum fyrir ipodinn minn
- Mynd af mér og Ingu Völu síðan á árshátíðinni í fyrra
- Síðustu Harry Potter bók
- Hárbusta
- Myndir af Bítlunum uppá vegg
- Krókodílasteininn sem litla systir mín gaf mér
- Nælu sem á stendur “Ísland úr Nató”
… skal það tekið fram að ég er mjög lélegur bílstjóri…
Og stundum verða hræðileg hræðileg slys í umferðinni…
Velti því hver sem vill fyrir sér.
Áður en sá hinn sami ákveður að abbast upp á mig og mína.
Svikult er seiðblátt hafið
og siglingin afarlöng.
Einn hlustar Ódysseifur
á óminnisgyðjunnar söng.
Marmarahöllin heima. –
Ég húmdökku gluggana sá
mæna eins og andvaka augu
út á hinn dimmmjúka sjá.
Höllin er löngu hrunin,
hásætið orpið sand. –
Það bar enginn kennsl á beinin
sem bylgjan skolaði á land.
- Jóhann Sigurjónsson
Nú hefur mig tvisvar á stuttum tíma dreymt að ég lendi í flugslysi.
Í stuttu máli:
Ég er í flugvél sem er stödd yfir sjó og það er enginn í kring um mig. Ég er að tala við pabba í talstöð og hann er mjög æstur og vill fá að vita eitthvað um hvernig lendingin gangi en ég get ekki svarað honum því ég geri mér ekki grein fyrir hvernig gengur. Í seinni draumnum lendir vélin í sjónum, ég þeytist út og lendi í sjónum mörgum kílómetrum frá. Man ekki hvernig fyrri draumurinn endaði. Túlkanir eru velkomnar.
Lús hefur stungið sér niður í Menntaskólanum á Akureyri. Svo segir í tilkynningu frá skólayfirvöldum. Svei hvað ég nenni ekki að fara að kemba þennan lubba. Ég var hvort eð er á leið í klippingu, best að taka þetta bara allt af…
Talandi um lús, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kom í Menntaskólann á Akureyri í gær. Kannski ber lúsaviðvörunin frá skólayfirvöldum sem kom á nokkurn veginn sama tíma, bara vott um húmor að mínu skapi.
Hættuástandi hefur verið aflýst í Reykjarvíkurborg.
Nú er ekki lengur séns á að Gísli Marteinn verði næsti borgarstjóri.
And I think to myself…
what a wonderful world…