Bjullan hún ég

Slétt hár og linsur

Eitthvað sem ég geri aldrei aftur.

Ekki einu sinni litli bróðir minn þekkti mig! Þetta er klárlega ekki málið. En ég veit þó alla vega að ef ég þarf að fara “under-cover” þá er greinilega lítið mál fyrir mig að dulbúast…

Las ljóð uppá sviði í Kvosinni í gær í tilefni dags íslenskrar tungu. Það gekk undarlega vel og ég var mjög ánægð með það.

Og ég fór í klippingu. Axlasítt, tjásur, engin voðaleg breyting en mér finnst ég 10 kílóum léttari.

Öskraði “Hommi” við undirleik Gunnhildar á Stiðarvauk í gær. Ég var samt í bjullu-slétthár-linsu-dulargervinu þannig að kannski hefur enginn fattað þátt minn í þessu númeri. Æjiégveitþaðekki…

Bókatíðindin eru komin og ég fagna þeim. Umfjöllun kemur síðar. Leiklistarnámskeið og alls kyns mögulegt og ómögulegt vesen um helgina. Vonandi verður eitthvað rall líka. En þetta er orðið gott í bili.

Viðauki: Adda dreymdi líka að við lentum í flugslysi síðustu nótt. Mér er ekki farið að standa á sama…

8 Responses to “Bjullan hún ég”

  1. Anton says:

    Steinunn….krullur eða ekki…linsur eða ekki…..föt eða ekki…hmm…hehe….
    Þú veist að ég þrái þig á allan hátt….þú ert svooooo sæt ogt ég elska þig:*

  2. Katana says:

    Það fyndna er, að þegar ég sagði við þig að ég hlakkaði til að sjá bók eftir þig í bókatíðindum, var ég ekki búin að lesa bloggið þitt hér á undan

  3. Andri Már says:

    Varð einmitt hugsað til þín þegar ég sá eina af bókunum sem eru á blaðsíðu 148 í bókatíðindum.

  4. Steinunn says:

    Hehehe… hvaða bók ætli það hafi verið ;)

  5. Evan says:

    Cheapest is the dearest… Evan

  6. Evan says:

    Cheapest is the dearest… Evan

  7. Hi boys!
    5eb7d0b2d1bd6d6adc350feff1f9b2fb