Jólabókaflóðið skall á heimilinu við mikinn fögnuð íbúanna. Er að klára að lesa Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur, ágætis spennusaga þar á ferð. Hakkaði í mig Bjargið okkur eftir Hugleik (ógeðslegasta bókin hingað til) og Dáið er allt án drauma - úrval ljóða eftir Halldór Laxness. Tími Nornarinnar e. Árna Þórarinsson og nýjasta Artemis Fowl bókin eru næst á listanum, einnig Lífsloginn e. Björn Þorláksson og bókin með… tjah, flókna titlinum: Framtíð lýðræðis á tímum hnattvæðingar.
Nóg að lesa, en ég er ekki búin að svo mikið sem gjóa augunum til skólabókanna. Er hins vegar búin að lesa JCS-handritið yfir einu sinni. Önnur umferð í kvöld og heimspeki á morgunn. Ég verð, má ekki bregðast SÓ…
Annars er bara góð jólastemming hér á hjara veraldar. Freyja Sigrún lýsir upp skammdegið með tilveru sinni og það er varla annað á boðstólum en kökur. Bara að jólafríið væri lengra…