Archive for January, 2006

Sunny Road

Friday, January 27th, 2006

…it’s time, meet me…

on the sunny road.

Ísland - Paradís glæpamanna?

Thursday, January 26th, 2006

Var að klára Býr Íslendingur hér? – Minningar Leifs Muller e. Garðar Sverrisson, en það er saga af Íslendingi í útrýmingarbúðum nasista í Sachsenhausen í Þýskalandi. Það er mögnuð bók og ég held að enginn sem hana les verði samur eftir lesturinn. Til þess eru grimmdin, óréttlætið og þjáningarnar sem sagan segir frá of yfirþyrmandi. Verst er að lesa um íslensku nasistana, og það hvernig íslensk stjórnvöld börðust fyrir því með kjafti og klóm að bjarga þeim stríðsglæpamönnum úr höndum réttvísinnar og heim á góða Ísland þar sem engum datt í hug að ásaka þá fyrir glæpi. Meiri áhersla var t.d. lögð á það að bjarga frá réttlátri refsingu í Noregi njósnaranum sem sveik Leif Muller og marga fleiri í hendur nasista, heldur en var nokkurn tíman lögð á að grennslast um veru Leifs Muller í útrýmingabúðunum.

(more…)

Próflok

Wednesday, January 25th, 2006

Allar einkunnir nema ein eru komnar í hús. Ekkert undir átta.

nema náttúrulega skólasóknin…

One line

Thursday, January 19th, 2006

Do you remember the first kiss?
Stars shooting across the sky
To come to such a place as this
You never left my mind

I’m watching from the wall
As in the streets we fight
This world all gone to war
All I need is you tonight

And I draw a line
To your heart today
‘To your heart from mine
A line to keep us safe’

All through the rising sun
All through the circling years
You were the only one
Who could have brought me here

And I draw a line
To your heart today
‘To your heart from mine
A line to keep us safe’

PJ Harvey ræður ríkjum í þessari próftíð. Ég er svo illa haldin að ég er farin að skilja ipodinn eftir heima þegar ég fer að læra á bókasafninu. Ef ég geri það ekki, gleymi ég mér við að hlusta, hugurinn reikar lengra og lengra í burtu og að lokum hef ég gleymt öllum lærdómi… Ekki svo skynsamlegt.

Heimspekin tókst vel, enskan líka, sálfræðin var stórkostlegt slys og klúður, en ég negldi uppeldisfræðina. Landafræðipróf á morgun og ekki er ég bjartsýn. Enda er landafræði ekkert annað en stærðfræði í dularbúningi og ekkert gott um hana að segja nema að Einar kennir hana. Það verður leiðinlegt að valda Einari vonbrigðum en ég býst svo sem ekki við því að hann hafi háar væntingar þar sem ég er búin að segja við hann í allan vetur að þessi áfangi sökki meira en stefna menntamálaráðuneytisins og þá er botninum væntanlega náð…

Blogg í boði heimspeki 203

Thursday, January 12th, 2006

„Í 42. dæmi er um að ræða skýreiningarhringi. En það nefnist skýreiningarhringur, þegar (1) skýreiningareiningarefnið felst í skýreiningarumsögninni eða þegar (2) við skýrgreiningu einhvers hugtaks er í skýrgreiningarumsögninni gengið út frá því, sem skýrgreina á (þ.e. þegar skýrgreiningarefnið felst í skýrgreiningu einhvers orðs í skýrgreiningarumsögninni eða í skýrgreiningu orðs í einhverri skýrgreiningu o.sv.frv).”

Segir gaurinn sem skrifaði heimspekibókina mína (eða part af henni).

Ég hef fulla trú á því að hann sé bara að fokka í lesendum sínum. Textinn er örugglega skrifaður fyrir a.m.k. 17 árum og ég þori að veðja að höfundurinn sé ennþá að hlæja að öllum litlu heimspekinemunum sem lesa þetta og halda að það sé eitthvað vit í því…

Ennfremur stendur þetta (eftir annan höfund) um skynjun í heimspekibókinni:
„Skynjun getur ekki verið ósönn. Ef við finnum hangikjötslykt, þá finnum við hangikjötslykt. Á hinn bóginn er hugsanlegt að lyktin sé ekki af því sem við höldum, ekki af hangikjöti heldur einhverju öðru. Þó að mér sýnist vera hundur í garðinum er það ef til vill alls ekki hundur. Þetta gæti allt eins verið köttur í dulargervi eða vel gert leikfang.”

Ég veit ekki hvort það er bara ég og minn aulahúmor, en ef ég fæ einhvern tíman að sjá kött í dulargervi, held ég að ég geti dáið afskaplega hamingjusöm manneskja…

Heimspekiprófstónlist: Deep Purple og Sigurrós. Takk… er að gera góða hluti.

Ritstýra í ruslinu

Monday, January 9th, 2006

Ég held því fram að í Muninskompunni hafi tekið sér búsetu ruslaskrímsli nokkurt, sérlega ógeðslegt fyrirbæri. Af þeim sökum þori ég ómögulega að stíga fæti mínum þar inn, þó kompan hreint og beint veini á mig og grátbæni: “Taktu til inní mér!”. Þar sem að mig langar ekki til að týna lífinu ætla ég því að fresta komputiltekt fram yfir prófatíð og nota tíman til að leita að særingaþulum sem nýst gætu til að kveða niður óvættinn. Og stóóóóóórum ruslapoka…

Nýja árið…

Saturday, January 7th, 2006

… byrjar vel.

Betur en nokkuð annað ár sem ég hef upplifað.

Hins vegar er próftíð handan við hornið, byrjar í næstu viku.

Og þetta verður löööööng próftíð.

Bestu komment ársins 2005

Monday, January 2nd, 2006

Nokkur af bestu kommentum síðasta árs. Flest hafa þau birst áður á blogginu mínu.

Inga Vala: Ef ég væri kona…
(já..?)

Gallupkona: Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar ég segi póló?
Ég: Haaa?
Gallupkona: PÓLÓ!?
Ég: eh…ég…?
(og svo varð þögn í símanum)

Pabbi: Ég ætla að láta heimsmetabókina vita af nýju meti sem var sett nú um helgina. Mestur fjöldi vitleysingja samankominn á einum stað á sama tíma!
(á flokksþingi Framsóknarmanna í byrjun síðasta árs…)

Jórunn: Steinunn, brostu.
(ég sýni geiflurnar)
Jórunn: Skrítið…
Ég: Hvað?
Jórunn: Þú ert frekja, en samt ertu ekki með neitt frekjuskarð…

Ég og Jói erum á leiðinni frá skólanum upp á elsku Lund. Jói er að segja mér frá verkefninu sínu í goðafræði, og frá paradís Grikkja…
Jói: Já, þetta var svalur staður. En að vísu þurfti maður að vera hetja eða e-ð til að komast þangað.
Ég reyni eins og ég get að láta mér detta fræga gríska kvenhetju í hug en mistekst…
Ég: Piff, voru þá engar konur þarna?
Jói: Ha? (hugsar sig svolítið um). Jú, það hlýtur að vera. Það er engin paradís án konu!

Keli/Logi (úr Rígnum): Böggar það þig ekkert að þú eyðir öllum þínum tíma í að læra og læra, vitandi að þú verður ekkert annað en húsmóðir?

Magnea: Mig langar í tattú! Mig langar í tattú sem á stendur MARMARIS!

Öryggisvörður á Tyrklandi við ónefnda næstum áfengisdauða Steinunni: Are you tired?
Steinunn: Yes, I am very tired. And I would like to REST IN PEACE!

Margrét Brynjars: Sko, ég er rauð, Baldvin er blár… og þið eruð bara fíbl!

Úr Íslenskir nasistar: Kommúnistaflokkur Íslands er gróðrastía kynsjúkdóma. Hin hraðvaxandi syfilis- og lekandatilfelli má að mestu rekja til starfsemi kommúnista hér á landi. Af brýnum heilbrigðisráðstöfunum krefjast Þjóðernissinnar að kommúnistaflokkur Íslands verði tafarlaust leystur upp!

Einar landafræðikennari: Æji Steinunn þegiðu, við fáum hvort sem er að heyra nógu mikið í þér þegar þú verður komin á þing eftir nokkur ár…

Þorgerður Katrín: Byrjið nú ekki á samræmdu prófunum…
Ásgeir Berg: Byrja ÞÚ ekki á samræmdu prófunum!

Nýtt ár

Sunday, January 1st, 2006

Gleðilegt nýtt ár.

Án frekari formála verður týnt það til sem uppúr stóð á liðnu ári. Sem sagt:

Það sem var gott: Að losna við Davíð Oddsson úr ríkisstjórn, Rígurinn, kórferð til Danmerkur, bókasafnsvinna, nýja Harry Potter bókin, að ganga í Unicef, lítið fylgi Framsóknarflokksins (fyrir þig Andri), Valdimar Gunnarsson og ÍSL 403 og 503, að eignast litla bróðurdóttur, útskriftarferð til Tyrklands (takk Gunnhildur), að flytja af vistelinu, Muninn, árshátíð MA, Hugleikur Dagsson, 1E, aukin andstaða samfélagsins við hálfvitalega hluti s.s. Íraksstríðið og samræmd próf, mikil þáttaka í kvennafrídeginum, landsfundur VG, að segja sig úr þjóðkirkjunni, að meirihluti landsmanna skeindi sig á sameiningartillögum félagsmálaráðherra (lengi lifi fríríkið Akrahreppur!), sigur Valgerðar Bjarnadóttur í máli sínu á móti félagsmálaráðherra, Rock star INXS, 4G, að Auðun Georg skyldi hafa sig í það að afþakka starf útvarpsstjóra, rassskelling Gísla Marteins í prófkjöri Sjallanna í Sódómu, mótmælin við Kárahnjúka, að Kristín Ingólfsdóttir var kosin rektor HÍ, hugrekki Themlu Ásdísardóttur, nýtt vefsetur á Kommúnunni, að Kínverjar hafa fundið áhrifamikið bóluefni við fuglaflensu og allt góða fólkið sem ég er svo heppin að hafa allt í kringum mig.

Það sem var slæmt: Hryðjuverk í Lundúnum, vinna í KS þriðja sumarið í röð, fangaflug, náttúruhamfarir útum allan heim, veðrið, Þorgerður Katrín, áframhaldandi stríðsrekstur í Írak (og annars staðar), nýr páfi sem er ekkert skárri en hinn og fordæmir rokktónlist og samkynhneigða, Nylon, öryggisperrar, umhverfisslys, valdbeiting, Bush að berjast fyrir því að fá að pynta fanga og kallarnir.is!

Eflaust væri hægt að tína margt fleira til í báða flokka, en látum þetta nægja að sinni.
Ég þakka fyrir góðar stundir á síðasta ári, og vona að þær verði fleiri á þessu sem nú er að hefjast.

Ykkar einlæg,
Steinunn