Það pirrar mig óstjórnlega hversu fruntalega vanhæf menntamálaráðherfan er. Menntamálaráðherra sem hlustar ekki á nemendur framhaldsskóla þessa lands og stefnir óðfluga að því að skerða nám til stúdentsprófs til þess að spara pening, á að reka úr embætti með skömm. Ráðherra er ekki að gæta hagsmuna nemenda með því að skerða nám og gera það einhæfara, því er Þorgerður augljóslega vanhæf og ætti að taka pokann sinn. Gerum hana að sendiherra í Narníu og brennum fataskápinn! Hún og vonda ísdrottninginn yrðu góðar saman…
Archive for February, 2006
Vanhæf Menntamálaráðherfa
Thursday, February 23rd, 2006Bókaleikur
Thursday, February 23rd, 2006Áhugaverður leikur fyrir lestrarhesta.
Leikurinn er svona: Feitletraðu þær sem þú hefur lesið, yfirstrikaðu þær sem þú gerir ekki ráð fyrir að lesa, skáletraðu þær sem þú vonast til að lesa einhvern tímann og undirstrikaðu þær sem þú ert alveg að fara að lesa eða ert byrjuð/byrjaður að lesa.
The Da Vinci Code - Dan Brown
The Catcher in the Rye - J.D. Salinger
The Hitchhiker’s Guide To The Galaxy - Douglas Adams
The Great Gatsby - F. Scott Fitzgerald
To Kill a Mockingbird - Harper Lee
The Time Traveler’s Wife - Audrey Niffenegger
His Dark Materials - Philip Pullman
Harry Potter and the Half-Blood Prince - J. K. Rowling
Life of Pi - Yann Martel
Catch-22 - Joseph Heller
The Hobbit - J. R. R. Tolkien
The Curious Incident of the Dog in the Night-time - Mark Haddon
Lord of the Flies - William Golding
Pride and Prejudice - Jane Austen
1984 - George Orwell
Harry Potter and the Prisoner of Azkaban - J. K. Rowling
One Hundred Years of Solitude - Gabriel García Márquez
Memoirs of a Geisha - Arthur Golden
The Kite Runner - Khaled Hosseini
The Lovely Bones - Alice Sebold
Slaughterhouse 5 - Kurt Vonnegut
Angels and Demons - Dan Brown
Fight Club - Chuck Palahniuk
Neuromancer - William Gibson
Cryptonomicon - Neal Stephenson
The Secret History - Donna Tartt
A Clockwork Orange - Anthony Burgess
Wuthering Heights - Emily Brontë
Brave New World - Aldous Huxley
American Gods - Neil Gaiman
Ender’s Game - Orson Scott Card
Snow Crash - Neal Stephenson
A Prayer for Owen Meany - John Irving
The Lion, the Witch and the Wardrobe - C. S. Lewis
Middlesex - Jeffrey Eugenides
Cloud Atlas - David Mitchell
The Lord of the Rings - J. R. R. Tolkien
Animal Farm: A Fairy Story - George Orwell
Jane Eyre - Charlotte Brontë
Good Omens - Terry Pratchett, Neil Gaiman
Atonement - Ian McEwan
The Shadow Of The Wind - Carlos Ruiz Zafon
The Old Man and the Sea - Ernest Hemingway
The Handmaid’s Tale - Margaret Atwood
The Bell Jar - Sylvia Plath
Dune - Frank Herbert
Skammast mín eiginlega fyrir að vera ekki búin að lesa Brave New World og 1984. Þetta stendur allt til bóta, einhvern tíman mun ég hafa tíma til að verða aftur metnaðarfullur lestrarhestur. Ég skal!
Söngbann
Sunday, February 19th, 2006Kvef- og hálsbólgudjöfullinn náði í mig. Ég er búin að vera veik síðan á fimmtudag og hef því lítið verið að gera nema halda mig heima og setja heimsmet í tedrykkju og horflæði. Það er að segja þangað til í gær þegar ég taldi mér trú um að mér væri svo gott sem batnað og fór á laaaanga söngæfingu fyrir Jesus Christ Superstar. Afleiðing: Hef líklega ofgert röddinni, er komin í söngbann þangað til framyfir næstu helgi. Semsagt: Ömurlegt.
En ég get þó alltaf hallað mér að ljósu punktunum, eins og því að júrovisjón er endalaust fyndið!
Júlludagar 2006
Monday, February 13th, 2006Ég benda á þessa áskorun til Alþingis sem ég hvet alla til að skrifa undir núna! ef þið eruð ekki þegar búin að því.
En já.
Frábær helgi.
Ég naut lífsins, vann pizzuátkeppni (þið viljið ekki heyra tölurnar), tapaði geðveikt mikið í pictonary en skemmti mér samt vel, lærði of lítið, borðaði of mikið (sbr sigurinn í átkeppninni) og hélt júlludagana hátíðlega. Já, það voru júlludagar um helgina, meirihluti íbúa Þórunnarstrætis 91 flúðu húsið á fimmtudag og fram á föstudagskvöld gátum við Elín gengið um á júllunum að vild. Svo eyðilagði ég allt fyrir Elínu með því að flytja inn í íbúiðina eitt stykki karlmann, bið Elínu hér með afsökunar. Júlludagarnir verða vonandi endurteknir við tækifæri.
Annars var mér nýlega bent á að hvannarótarseyðið sem ég tek inn að staðaldri er merkilega líkt tequila og ákvað að koma því á framfæri til að gleðja Nínu. Þetta er fínt, heldur manni í æfingu þangað til ónefndir stela aftur áfengi af ónefndum hótelum.
Ekki fleira í bili.
E.S. í þessu bloggi er orðaleikur…
Áminningablogg
Wednesday, February 8th, 2006Ég vil minna nemendur í HÍ á að kjósa Háskólalistann í kosningum á morgunn, ef þau gerðu það ekki í dag.
Ég vil einnig minna MA-inga á að láta sjá sig á Muninsfundi á morgunn (og taka hraustlega undir á fyrirhuguðum söngsal líka).
Svo vil ég bara minna alla á að bursta tennurnar og taka vítamínin sín, fyrst ég er með áminningablogg á annað borð.
Ég er þreytt og þar sem ég er ekki á fjórum fundum og einni æfingu í kvöld, eins og var í gær, ætla ég að hætta að blogga og fara snemma að sofa.
Lagið:
A Cautionary Song - The Decemberists
E.S. Olga varð tvítug í gær, ég óska henni hjartanlega til hamingju með það!
Góða nótt!
Takk Júróvisjón!
Monday, February 6th, 2006Ég er ennþá hlæjandi að júróvisjónþættinum sem ég sá á laugardagskvöldið og verð það örugglega fram á næsta ár. Þvílkur viðbjóður. Silvía Nótt er klárlega sú svalasta, valhoppandi um á g-streng með tveimur fabíóum í loðfeldum. Ég skora á alla sem hafa smá snert af húmor að kjósa Silvíu Nótt næsta laugardag, hvað er eitt sms miðað við að fá að sjá þetta í stóru júróvisjónkeppninni!
Bætum fyrir að Botnleðja komst ekki út um árið, sendum Silvíu Nótt í Júróvisjón!
Já, og helgin var æðisleg, Reykjavík hefur aldrei verið jafn frábær… fyrir utan vægast sagt ömurlegt veður allan tíman. En ég er ung og ástfangin og rigning & rok getur ekki dregið mig niður. Lífið er gott.
E.S. Útskriftarkjóllinn kom upp í hendurnar á mér um helgina. Fallegasti kjóll sem ég hef séð held ég bara. Nú er engu að kvíða lengur, nú þarf ég bara að útskrifast. Ekkert mál…
Litlir sigrar
Thursday, February 2nd, 2006Samkvæmt Mogganum hefur náðst samkomulag milli Þorgerðar Katrínar og íslenskra framhaldsskólakennarara um að fresta skerðingu náms til stúdentsprófs um eitt ár. Þetta er svolítill sigur fyrir þá vitibornu menn og konur sem hafa staðið upp og mótmælt þessari heimskulegu framkvæmd, en betur má ef duga skal. Þorgerður er að hörfa, nú er lag að þjarma almennilega að henni og það vona ég að verði gert. Eitthvað er pískrað um mótmæli á göngum skólans, þetta verður árið sem öllu var mótmælt í MA. Samræmdum stúdentsprófum, kynjamisrétti, skerðingu náms til stúdentsprófs og vonandi miklu meiru…
Dagurinn í dag er rólegur, bara tvær söngæfingar og 2 fundir auk skólans. Reyndar var ég bara í 4 tímum í dag, þetta fylgir því að vera komin á síðustu önnina í Menntaskólanum. Ég elska eyður og loksins fæ ég nóg af þeim! Þar sem ég er nánast ekkert í skólanum ætla ég að blása lífi í metnaðinn og stefna á bara níur og tíur í vor… Vonandi er ég ekki að lofa upp í ermina á mér, en ég get þetta samt alveg ef ég bara trúi á sjálfa mig og legg mig fram. Og ef þessir áfangar eru ekki fjandanum fáránlegri, það á náttúrulega eftir að koma í ljós…
Annars er ferðinni blessunarlega heitið til höfuðborgarinnar um helgina, upp á náð og miskunn Erlu kórstjóra sem gaf mér frí frá Jesus Christ Superstar æfingum á laugardag og sunnudag. Annars er það bara harkan sex í þeim málum núna, enda verður þetta flott…
Lag dagsins:
Immune - Low