Í fréttum er þetta helst: Jesus Christ Superstar verður frumsýnt eftir rúma viku (miðasala í síma 8482016) og ég er búin að fá vinnu á Akureyri í sumar, á Minjasafninu/Iðnaðarsafninu. Reyndar er það bara 70% vinna, en vinnutíminn er sveigjanlegur svo ég get líklega verið í tveimur vinnum. Ég er þegar búin að taka að mér smáverkefni á vegum bókasafnsins í MA sem ég geri ráð fyrir að vinna í júní og svo ætla ég bara að sækja um heimilishjálp eða eitthvað, hef engar áhyggjur af því.
Það er sem sé klappað og klárt, ég verð á Akureyri í sumar. Hressandi!
Að öðru, nú er liðin rúm vika síðan söngkeppnin í MA var haldin og ekki hefur liðið sá dagur að einhver komi ekki til mín og segi mér í óspurðum fréttum hvað systir mín hafi verið flott (og það eru allt frá vinkonum upp í skólameistara sem hafa tjáð sig um það mál við mig). Ég er náttúrulega að rifna úr stolti, en mig langar að koma því á framfæri að ég er líka mjög stolt af bróður mínum, sem stóð sig afskaplega vel líka að mínu mati.
Svo er ég náttúrulega stolt af Folagenginu, og henni Hildi Þóru minni, sem stóð sig stórkostlega með Trúfesti. Ég er náttúrulega langt frá því hlutlaus (þar sem ég er textahöfundurinn) en mér finnst að hún hefði átt að vinna.
Að lokum:
Svona til gamans er hér textinn Trúfesti sem ég hnoðaði saman fyrir lagið hennar Hildar (Faithfulness með Skin).
Trúfesti
Fjötrar sem ég sjálf hef bundið
þrengja að
eins og snara um hálsinn, reyni að
hlaupa af stað,
en er föst, að flýja er ei til neins.
Skynsemin
Ísköld krumla um hjartað kreppist.
Slepptu mér!
Holdið iðar, heimtar frelsi
og þú veist
að jafnvel ástin blind í hjarta þér
getur ekki lengur haldið mér.
Veistu ei að ég
mig sjálfa aldrei gef
nei, ég get ei verið stúlkan þín
Veistu ei að ég
hef ofið lygavef
sem er múr á milli þín og mín.
Þrái svo
frá þér fljótt að hverfa
því ég get ei meir
en til að skera á okkar flæktu
tryggðarbönd
þarf meiri kjark en ég í brjósti ber
og örvæntingin vex í sálu mér.
Veistu ei að ég
mig sjálfa aldrei gef
og ég get ei verið stúlkan þín
Veistu ei að ég
hef ofið lygavef
sem er múr á milli mín og þín
Formyrkvuð af sektarkennd er sál
mín svört.
Brennur í mér lostans heita bál
og vex, svo ört…
Veistu ei að ég
mig sjálfa aldrei gef
og ég get ei verið stúlkan þín
Veistu ekki að ég
hef ofið lygavef
sem er múr á milli þín og mín.