Archive for June, 2006

Svör til Sindra - Part 2

Thursday, June 29th, 2006

Og áfram höldum við…

(more…)

Þess vegna er ég á móti álverum

Wednesday, June 28th, 2006

Svar til Sindra Svan um hverjar röksemdir mínar fyrir því að vera á móti álveri séu:

(more…)

Draumalandið

Saturday, June 24th, 2006

Úr Draumalandinu eftir Andra Snæ:

Um vinnslu súráls úr báxíti (gamall jarðvegur sem einkum finnst í hitabeltinu) á eyjunni Jamaíka:

„Báxítinu er mokað inn í súrálsverksmiðju þar sem það er skolað upp úr vítissóda en eftir situr fíngert hvítt duft, súrál. Fyrir hvert tonn af súráli sem þannig fellur til myndast eitt til tvö tonn af rauðri drullu sem á ensku heitir einfaldlega Red Mud. Fyrir utan skógareyðingu og gríðarlega orkuþörf er rauða leðjan langstærsta vandamálið sem fylgir álvinnslunni. Leðjan er menguð af vítissóda, hún er hábasísk og hættuleg fólki. Leðjunni er safnað í lón og tjarnir en efnin seytla út í umhverfið og menga grunnvatn, stöðuvötn og drykkjarvatn. Fyrir milljón tonn af framleiddu áli verða því til um það bil fjórar milljónir tonna af rauðri leðju einhversstaðar í veröldinni. [...]

Í [...] grein Los Angeles Times segir frá læknanema á Jamaíka sem vildi rannsaka heilsufar íbúa í grennd við súrálsverksmiðju. Jamalco (fyrirtæki í eigu Alcoa) hótaði að láta skrúfa fyrir vatnið til þáttakenda í rannsókninni.Yfirvöld og talsmenn Alcoa kenndu fátækt og félagslegum vandamálum um heilsufarsvandann en neita að rannsaka þátt mengunarinnar. Því er betra að líta til verksmiðju sem liggur okkur nær.
Á Írlandi er súrál framleitt í Aughinish í Limerick-sýslu. Í blaðinu Irish Indepentent haustið 2005 eru íbúar í grennd við verksmiðjuna sagðir vera skelfingu lostnir eða „TERRIFIED” vegna áforma um að stækka leðjulónin og sethaugana um helming. Menn óttast krabbameinsvaldandi efni í ryki sem fýkur frá sethaugum yfir heimili þeirra og bújarðir og telja að rykið hafi valdið skepnudauða. Sá sem skoðar heimasíðu fyrirtækissins finnur lítið um leðjulónin en við verksmiðjuvegginn er hins vegar friðland fyrir fiðrildin.

Súrálsvinnsla er einhver sóðalegasti iðnaður sem fyrirfinnst vegna þess að rauða leðjan er helmingur framleiðslunnar. Því ætti ekki að koma á óvart að súrálsverksmiðja hefur verið ofarlega á stefnuskrá iðnaðarráðuneytis og Landsvirkjunar og að undirbúningur slíkrar verksmiðju var einmitt í fullum gangi árið 2003. [...]

Á Írlandi eru menn TERRIFIED. Hér brosir landsbyggðin og fagnar eins og Teletubbies í hvert sinn sem einhver ætlar að kveikja á viftunni.”

(Feitletraðar áherslur eru mínar).

Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð eftir Andra Snæ Magnason er örugglega merkilegasta bók sem ég hef nokkurn tíman á ævi minni lesið. Eftir lesninguna er ég upplýst, hneyksluð, svolítið sorgmædd og óttaslegin fyrir hönd Íslands og þjóðarinnar. En ég er líka vongóð, því að ég trúi því að allt geti farið á besta veg. Til dæmis ef allir lesa þessa bók. Ég skora á ykkur, alla sem ég þekki og sem lesa þetta.

Lesið Draumalandið.

Jónsmessa

Friday, June 23rd, 2006

Jónsmessunótt nálgast. Stefni að því að trítla um berfætt í dögginni og djamma svo með nornum og djöflum fram á rauðanótt!

Eða bara reyna að klára að lesa Draumalandið og fara snemma að sofa…

Annað hvort skal það vera.

Er að hlusta á lögin:

Lay Down - Strawbs
Too many secrets - Patsy Cline
Ábyggilega - Sálin hans Jóns míns
Bad - Michael Jackson
Wish you were here - Pink Floyd

og ég nýt sumarsins.

Stressandi

Wednesday, June 21st, 2006

Þetta er búinn að vera frekar stressandi morgunn til þessa. Ég ætlaði að njóta hans og sofa út, en rétt fyrir 10 barst mér sms um að ég væri nú svo heppin að vera skráð í einhverja hálvitastefnumótaþjónustu á netinu, sem ég þyrfti auk þess að BORGA FYRIR! Svo ég dreif mig á lappir og fór inná síðu sem mér var góðfúslega bent á að ég gæti afskráð mig á, sótbölvandi þeim djöfuls hrekkjalómi sem hefði gert mér þetta. Svolítið sérstakt fannst mér þegar ég kom á síðuna, að þar blasti við hvernig ég gæti afskráð mig, en lítið af öðrum upplýsingum var aðgengilegt. Yfirleitt er svona nokkuð vel falið, þannig að mér fannst þetta svolítið skríitið. Hikaði samt ekki við að reyna að afskrá mig sem fyrst. Ég þurfti hins vegar að skrá símanúmerið mitt með útlandsnúmerinu fyrir framan (þessu sem maður bætir við þegar maður hringir til annarra landa) og það vissi ég ekki. Þannig að ég hringdi í Símann og sagði vingjarnlegum tæknimanni alla söguna, í von um að hann vissi eitthvað hvað ætti að aðhafast. Þá sagði grey maðurinn, að ég væri fjórtánda símtalið sem hann fengi í röð um sama efnið, og þetta væri allt bara svindl sem líklegast einhver 19 ára Rússi í kofa í Síberíu stæði fyrir, og ráðlagði mér að eyða sms-inu, ekki skrifa neitt á síðuna og ekki hugsa meira um þetta, þá færi allt vel. Það sorglegasta við þetta fannst honum, að nú væri hann búinn að fá yfir 20 símtöl um þetta og það væri 1 og 1/2 tími síðan hann byrjaði að vinna, og allir væru að kvarta yfir að þeir væru búnir að fá svona svindl-sms og það lyti út fyrir að allir á Íslandi sem eiga farsíma hefðu fengið svona… nema hann sjálfur. Honum fannst voða leiðinlegt að vera skilinn útundan.

En svo tók ekki betra við. Ég í sakleysi mínu fer inná póstinn minn, og hvað er þá það fyrsta sem mætir mér?
„Ágæti umsækjandi,
samkvæmt Nemendaskrá Háskóla Íslands ert þú ekki skráður í nám við háskólann. Þar sem skráning í HÍ er skilyrði fyrir því að fá samþykkta umsókn hjá Stúdentagörðum, verður þú að skila inn staðfestingu á skólavist í síðasta lagi föstudaginn 24. júní. “

Nú panikaði ég fyrir alvöru. Ekki einungis leit út fyrir að ég væri ekki að fá inn á stúdentagörðunum, heldur leit út fyrir að ég væri ekki skráð í Háskóla Íslands í haust. Hólí mólí! Svo ég fór að hringja í stresskasti í stúdentagarðana og nemendaskrá sitt á hvað, með grátstafinn í kverkunum vegna illsku heimsins. Það tók 10 mínútur að redda þessu. Nú er ég orðinn nemandi í HÍ. Og umsóknin á stúdentagörðunum enn í fullu gildi. Ástæðan fyrir því að mér var sendur þessi illgjarni tölvupóstur, var að ég sendi ekki prófskírteinið mitt suður í HÍ fyrr en í gærmorgunn. Það voru þau nú ekki ánægð með. Afsakið mig fyrir að hafa útskrifast SÍÐASTA LAUGARDAG!

Vá, hvað fólk er mikið fífl í dag. Vonandi á dagurinn eftir að skána.

Ekki svo hörð…

Sunday, June 18th, 2006

Ég fór að gráta klukkan þrjú í nótt…

þegar ég kom heim af útskriftarballinu og las allt það svo ótrúlega fallega sem hinir yfirleitt svo hörðu og kaldhæðnu bekkjarbræður mínir og margt fleira gott fólk höfðu skrifað í carminuna mína að skilnaði.

Og nú er ég að tárast við tilhugsunina.

Ekki svo hörð ég…

Tónleikar o.fl.

Thursday, June 15th, 2006

Fór á tónleika með Roger Waters á mánudaginn. Fyrstu kynni mín af Egilshöll, og eiginlega fyrstu kynni mín af tónleikagóðæri Íslendinga sem hefur grasserað síðustu ár. Franz Ferdinand sviku mig þarna um árið, þannig að eina reynslan sem ég hafði var Emiliana Torrini í Ketilhúsinu með mótorhjólatöffara spænandi upp gilið á meðan tónleikunum stóð. Engu að síður stórkostlegir tónleikar.
Roger Waters var helvíti góður (og hljómsveitin öll) og söngkonan með honum var mögnuð. The great gig in the sky var gæsahúð frá upphafi til enda. Það og Shine on your crazy diamond, Set the controls for the heart of the sun og The Wall voru bestu lögin. Var ekki ánægð með útsetninguna á uppáhalds Pink Floyd laginu mínu, Wish you were here. En hann á lagið, hann ræður…

Við gistum hjá Frey og Auði í stórborginni. Freyr var góði stóri bróðirinn og keyrði okkur á tónleikana og frá þeim, vitandi að líklega yrði umferðateppa, sem auðvitað var raunin. Vöknuðum morguninn eftir við að ungfrú Freyja Sigrún kom trampandi og gargandi inní stofu klukkan átta um morguninn, voðalega hress, en snarstansaði þegar hún sá Helga Vilberg á dýnu á gólfinu, og horfði á hann rannsakandi í dágóða stund eins og hana langaði að spyrja hann af hverju í heitasta hann lægi á gólfinu hennar. Svo fór hún og gerði heiðarlega tilraun til að éta símann minn. Ég elska þetta barn.

Á döfinni: Að útskrifast. Það væri gaman. En það er líka hrottalegt helvítis vesen. Ég hélt að ég væri orðin góð þegar ég var komin með útskriftardressið fyrir mörgum mánuðum. En nei. Klipping, litun, strípur, plokkun og litun, fara með kjólinn í hreinsun, æfa fyrir skemmtiatriði að kveldi sautjándans, kaupa sokkabuxur, ná í stúdentshúfu, kaupa miða á hátíðina, fara í prufuförðun og hárgreiðslu, allt í einu á ég ekki varalit, hvaða rugl er það? Og hvenær á ég að kaupa hann, eftir daginn í dag verður enginn bíll meir (Sindri bróðir tekur hann með sér heim úr upptökuprófunum), og ég að vinna heilu og hálfu dagana. Allt fer í panik og innst inní mér þá nenni ég þessu ekki. Langar bara að fara að lifa eðlilegu lífi aftur, hafa tíma til að elda mér mat, horfa á vídjó og lesa bækur. Slappa af. Það verður gaman.

Er annars komin með nýtt hár. Svoldið gellulegt, hef aldrei fengið mér strípur áður. Sýningartímar eftir pöntunum. Annars sé ég ykkur sumhver á langþráðum sautjánda júní!

Roger Waters…

Monday, June 12th, 2006

… og mánans myrka hlið.

Í kvöld.

Ég hlakka til.

Hvað gerir Halldór núna?

Thursday, June 8th, 2006

Ég tók eftir því áðan að ég þarf að skipta um skreytingar á jakkanum mínum. Hann skartar einmitt fagurbleikri nælu sem á stendur „Halldór í herinn og herinn burt”. Þessa nælu hef ég borið í mörg ár með stolti. Nú lítur út fyrir að ég þurfi að fara að taka hana niður, þar sem Halldór er á útleið og herinn sömuleiðis. Það er gott að losna við Halldór, þó hann fari ekki með hernum. En hvað ætli Halldór fari þá að gera?
Nú er vandi um að spá. Elli heldur að hann bjóði sig fram til forseta. Á þeim degi er Halldór Ásgrímsson verður forseti lýðveldisins, þá mun ég skipta um ríkisborgararétt(það sama mun gerast ef Guðni Ágústson verður utanríkisráðherra.) Margir búast eflaust við því að honum verði holað niður einhvers staðar sem sendiherra, það er alltaf vinsælt (því seðlabankastjórastaðan er jú upptekin). Kannski verður hann frumlegur og fer að gera eitthvað allt annað. Persónulega styð ég það að hann gerist táknmálstúlkur í táknmálsfréttum RÚV. Ég meina, hugsum aðeins um það: Halldór að veifa höndunum og geifla sig og það sem allra best er - ekki segja orð! Hvað er ekki gott við það? Áhorf á táknmálsfréttum myndi rjúka upp og þetta yrði vinsælasta sjónvarpsefnið á RÚV á eftir Aðþrengdum eiginkonum. Skotheld skemmtun.

Síðasta prófið

Friday, June 2nd, 2006

Og þar með lauk því.

Síðasta prófið mitt í Menntaskólanum á Akureyri er afstaðið.

(more…)