Fór á útitónleika með Sigur Rós í Öxnadal í gærkveldi. Það var fullkomnun. Sigur Rós, náttúran, góða veðrið og suðusúkkulaði.
Svo ótrúlega gaman.
Fór á útitónleika með Sigur Rós í Öxnadal í gærkveldi. Það var fullkomnun. Sigur Rós, náttúran, góða veðrið og suðusúkkulaði.
Svo ótrúlega gaman.
Er það gleði andskotans,
umboðslaun og gróði,
fémunir þá fátæks manns
fúna í ríkra sjóði.
Bólu-Hjálmar er bestur
Er að lesa: Hjálmar Jónsson frá Bólu - Ljóðmæli

Formálinn eftir Jónas Jónsson í þessu safni ljóðmæla skáldsins frá Bólu er yndislega skrifaður og segir merkilega sorgarsögu olnbogabarnsin Hjálmars Jónssonar. Og ljóðin og vísurnar eru náttúrulega frábær, enda er Bólu-Hjálmar í úrvalsdeild íslenskra skálda og alþýðuhetja.
Búin að klára: Nafn Rósarinnar eftir Umberto Eco.
Löng saga gerð stutt: Orðskrúð og langdregnar flækjur. Áhugaverðir þættir af heimspeki og sagnfræði en satt best að segja voðalega lítið skemmtileg bók.
Ég sakna myrkursins.
Mig vantar svo einhverja myrkraholu til þess að hjúfra mig í og bara vera, ein í myrkri og hlýju.
Þetta er það sem ég elskaði við vetrarkvöld á vistinni í denn.
Herbergið var hola.
Undir sænginni var hlýjan.
Og myrkrið umvafði mig.
Ég sakna þess.
Ég ákvað að vera afskaplega frumleg og halda stúdentsveisluna mína rúmum mánuði eftir að ég útskrifaðist, nánar tiltekið í gær. Veislan var heima í sveit og heppnaðist mjög vel, frábært veður, heyskapurinn kláraðist réttum hálftíma áður en veislan byrjaði (það er að segja fyrri sláttur) og allt gekk eins og í sögu. Húsið fylltist af blómum, ættingjum og nágrönnum og meira að segja nokkrir MA-ingar, flestir nýútskrifaðir eins og ég sjálf, sáu sér fært að koma og gæða sér á bakkelsinu hennar blessaðrar móður minnar (sem á einmitt afmæli í dag, húrra fyrir henni!). Takk fyrir komuna, þið sem mættuð.
Stuttu áður en veislan byrjaði komumst við Helgi að því að við værum komin inn á stúdentagarðana! Hamingja, hamingja. Nú getur maður andað rólegar þegar maður á vísan samastað í borg óttans frá og með 1. september. Jafnvel veitt sér þann munað að hlakka svolítið til!
Næst á dagskrá: Vinna eins og skepna, lesa meira og flytja almennilega út úr Þórunnarstrætinu. Svo eru víst útitónleikar með Sigurrós að Hálsi í Öxnadal næsta föstudag.
Það hljómar eins og plan…
Ég reyndist sem sé vera með Mycoplasma, svona fyrir þá forvitnu. Fæ sýklalyf á eftir, vúhú!
Annars er það helst í fréttum að ég fékk útborgað og hætti að lifa á bönunum, við Helgi erum búin að panta okkur gistingu í Köben dagana 17 til 22. ágúst og svo fer að styttast allverulega í skólann. Listinn á stúdentagörðunum þokast áfram á hraða snigilsins (lesist: ekkert!) en þó er ég ekki búin að gefa Garðana upp á bátinn og er undarlega róleg yfir þessu öllu saman. En ef einhver veit um íbúð eða einhvern samastað handa okkur skötuhjúum má sá hinn sami endilega skilja eftir komment (við erum reyklaus, óvitlaus, gæludýralaus, indæl, sæt, skemmtileg, reglusöm og þrifin, draumaleigjendur!).
Já og svo er ég að flytja. Farvel kæra Þórunnarstræti!
Ég fór til læknis áðan því að ég (og aðrir) er orðin leið á hóstanum sem ég hef verið með síðan í maí. Ekki síst vegna þess að á síðustu vikum hefur hann orðið þurrari og sárari og það er farið að hrygla í mér á kvöldin þegar ég fer að sofa eins og ég sé orðin áttatíuogþriggja ára. Læknirinn bankaði í andlitið á mér, sagði mér að segja a og ætlar svo að senda mig í blóðprufu í fyrramálið. Þegar hún hefur verið rannsökuð munum við líklega komast að því hvort að þetta sé Mycoplasma, veira sem einkennist af langdregnum þurrum hósta, legst aðallega á ungt fólk og er eiginlega dreifð berkjabólga, eða þá kinnholubólga. Ég veit ekki hvoru ég á að halda með, ég vil bara fá sýklalyf eða eitthvað sem fyrst svo að ég losni við hóstann, loksins.
Fleiri eru veikir en ég, ipodinum mínum honum Einari er haldið sofandi á gjörgæslu í öndunarvél. Hann er kominn í ruglið, frýs eins og asni í tíma og ótíma og er í tómu tjóni. Ég er með blússandi fráhvarfseinkenni og það er orðið helmingi leiðinlegra að labba í vinnuna eða úr henni. Sem sagt, allt í voða, allt í sorg.
En! Ég kláraði 1984 eftir Orwell í gær, og það er einmitt ein rosalegasta bók sem ég hef lesið. Gaman gaman. Nú er ég byrjuð á Nafni Rósarinnar eftir Umberto Eco. Það er hlussustór bók sem ég verð áreiðanlega lengi með. Ég tók líka Sláturhús 5 og Eftir flóðið á bókasafninu og svo bíður Mávahlátur eftir mér heima í skúffu. Nóg að lesa.
Svo er ég komin í þriggja kvölda frí frá Gallup (Hallelúja!!!) og ætla í Suðurbyggðina í kvöld, vonandi (og ef mér skjátlast ekki) að borða kökur og spjalla við Ingu Völu frjálsíþróttahetju sem var að koma frá útlandinu í gær. Hlakka til!
Þetta er svolítið merkilegt finnst mér.
Bjóst líka aldrei við því að RÚV myndi láta þessa auglýsingu yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust, þó að ekki gætu þeir mótmælt sannleikanum. Verð að játa að mér finnst þetta gott á 365, fannst þessi auglýsing alltaf vera eins og að girða niðrum sig buxurnar og veifa rassinum framan í keppinautinn, haldandi að það sé voða sniðugt og að öllum finnist það snilld, meðan þetta er í raun meiri niðurlæging fyrir mann/konu sjálfa(n).
Er að lesa:
1984 eftir George Orwell - Allt við þessa bók lofar góðu
Er búin að klára:
Jónatan Livingstone Mávur eftir Richard Bach - Góð bók, fljótlesin og mikil pæling í sögunni
Heimsljós eftir Halldór Laxness - Allir sem eru ekki fyrir bækur um aumingja og asna eins og Ólaf Kárason Ljósvíking, varist þessa bók. Aðdáunin á Laxness hefur næstum beðið hnekki, alla vega varðandi karaktersköpun. En mikil ósköp hvað hann skrifar samt fallega maðurinn.
Enn og aftur þakka ég svo fyrir allar góðar ábendingar um lesefni, ég er komin með lista sem nægir mér fram yfir þrítugt held ég…
Vefritið Lata stelpan er alger snilld.
Meira af snilld. Kláraði Searching for Mary Magdalene áðan, það tók aðeins 4 daga, vúhú. Ég er farin að kannast aftur við gamla góða lestrarhestinn í sjálfri mér, ákaflega gaman að endurnýja kynnin við hann. Næst á dagskrá er að klára nokkrar bækur sem ég var byrjuð á en hætti vegna ýmislegra anna. Þar ber kannski fyrst að nefna Heimsljós eftir meistara Laxness, en ég var að lesa hana síðasta sumar og þegar ég var nýbyrjuð á síðasta hlutanum var komið að útskriftaferðinni. Síðan þá hefur ekkert þokast með Heimsljós. Svo eru 2 eða 3 bækur sem sama sagan gildir um og ég ætla að klára áður en ég byrja á einhverju nýju. Í haust er síðan stefnan að taka taka galdrastrákinn Harry Potter í gegn og lesa allar útkomnu bækurnar áður en síðasta bókin kemur út, svona til að koma sér í fíling (og rifja upp öll plottin sem ég er búin að gleyma og gætu verið krúsjal í síðustu bókinni).
Lag dagsins er Have You Forgotten með Red House Painters.
E.S. Og já, allar snjallar uppástungur um alveg sérstaklega góðar bækur til að lesa eru vel þegnar!
Í gær gerðist ég grúppía með Unni Helgu á eiturhressu giggi með Tortímandanum og í eftirpartíi. Þá var Unnur reyndar búin að beila þannig að ég hafði alla hljómsveitameðlimina (sem mættu) fyrir mig eina, múhaha! Ég hef augastað á hljómborðsleikaranum (hrikalega sætur náungi) en fór samt heim með söngvaranum í þetta skiptið. En koma tímar koma ráð…
Hékk með Unni Helgu allan tíman eftir vinnu í gær. Mér datt í hug að það er í raun mjög undarlegt að við skulum hanga saman. Unnur er kapítalískur stríðsæsingarmaður með ástríðu fyrir morðvopnum og er allt að því karlremba (að eigin sögn). Ég er vinstrisinnaður friðarsinni og feministi. Samt funkerum við ansi vel saman. Undarlegt.
Ég er byrjuð að vinna á Gallup 3-4 í viku á kvöldin, meðfram safngæslunni, sem ég er að fíla í botn. Ég er nefnilega farin að sjá það að ég get örugglega slátrað hverri bókinni á fætur annarri í sumar meðan ég er á söfnunum. Er búin með 2 bækur síðan ég kláraði Draumalandið fyrir viku. Ljóðabókina Allt fram streymir - íslensk náttúruljóð sem ég fékk í útskriftargjöf frá Ragnheiði bókasafnsverði og Braga, og Í nafni kærleikans eftir James Meek (það væri spoiler að reyna að lýsa því hvað hún er um í raun og veru, en sagan gerist í Síberíu árið 1919. Fín bók), Er að byrja að lesa bókina Searching for Mary Magdalene eftir Jane Lahr sem er bók um Maríu Magdalenu, goðsagnirnar um hana og áhrif hennar á myndlist og bókmenntir heimsins. Gaman!
Gleymum ekki tónlistinni. Plötur vikunnar eru:
Under Rug Swept - Alanis Morissette
Bursting at the Seams - Strawbs
Songs For a Blue Guitar - Red House Painters
Nóg í bili.