Veikindi mín og ipodsins Einars.

Ég fór til læknis áðan því að ég (og aðrir) er orðin leið á hóstanum sem ég hef verið með síðan í maí. Ekki síst vegna þess að á síðustu vikum hefur hann orðið þurrari og sárari og það er farið að hrygla í mér á kvöldin þegar ég fer að sofa eins og ég sé orðin áttatíuogþriggja ára. Læknirinn bankaði í andlitið á mér, sagði mér að segja a og ætlar svo að senda mig í blóðprufu í fyrramálið. Þegar hún hefur verið rannsökuð munum við líklega komast að því hvort að þetta sé Mycoplasma, veira sem einkennist af langdregnum þurrum hósta, legst aðallega á ungt fólk og er eiginlega dreifð berkjabólga, eða þá kinnholubólga. Ég veit ekki hvoru ég á að halda með, ég vil bara fá sýklalyf eða eitthvað sem fyrst svo að ég losni við hóstann, loksins.
Fleiri eru veikir en ég, ipodinum mínum honum Einari er haldið sofandi á gjörgæslu í öndunarvél. Hann er kominn í ruglið, frýs eins og asni í tíma og ótíma og er í tómu tjóni. Ég er með blússandi fráhvarfseinkenni og það er orðið helmingi leiðinlegra að labba í vinnuna eða úr henni. Sem sagt, allt í voða, allt í sorg.

En! Ég kláraði 1984 eftir Orwell í gær, og það er einmitt ein rosalegasta bók sem ég hef lesið. Gaman gaman. Nú er ég byrjuð á Nafni Rósarinnar eftir Umberto Eco. Það er hlussustór bók sem ég verð áreiðanlega lengi með. Ég tók líka Sláturhús 5 og Eftir flóðið á bókasafninu og svo bíður Mávahlátur eftir mér heima í skúffu. Nóg að lesa.

Svo er ég komin í þriggja kvölda frí frá Gallup (Hallelúja!!!) og ætla í Suðurbyggðina í kvöld, vonandi (og ef mér skjátlast ekki) að borða kökur og spjalla við Ingu Völu frjálsíþróttahetju sem var að koma frá útlandinu í gær. Hlakka til!

5 Responses to “Veikindi mín og ipodsins Einars.”

  1. Lalli says:

    Ekki kalla vegglausu innanfrumusníkjuna Mycoplasma veiru, þetta er baktería og hananú! :þ

  2. Steinunn says:

    Jæja, baktería þá. Satt best að segja þá er ég ekkert mjög klár á muninum á veirum og bakteríum…

  3. Jói says:

    Einn Einar til…

  4. Lína says:

    ég reyndi einhverntímann að byrja á nafni rósarinnar, en ég gafst upp.. sennilega of snemma.. láttu mig vita ef hún er þess virði að reyna aftur :)

  5. Nicole says:

    Good site! I’ll stay reading! Keep improving!