Hlý og myrk hola fyrir einn óskast

Ég sakna myrkursins.
Mig vantar svo einhverja myrkraholu til þess að hjúfra mig í og bara vera, ein í myrkri og hlýju.

Þetta er það sem ég elskaði við vetrarkvöld á vistinni í denn.
Herbergið var hola.
Undir sænginni var hlýjan.
Og myrkrið umvafði mig.

Ég sakna þess.

3 Responses to “Hlý og myrk hola fyrir einn óskast”

  1. Katana says:

    þetta var…

    myrk hugleiðing

  2. Lína says:

    Ég skil hvað þú meinar. Á vissan hátt allavega.

  3. Anna Guðrún says:

    það eina sem ég sakna þegar kemur að vistinni er Simmi og það að vera nálægt vinum mínum… ég sakna vina minna….