Archive for August, 2006

Afrek sumarsins

Thursday, August 31st, 2006

Þessar bækur las ég í sumar

Í þessari tímaröð:
Draumalandið eftir Andra Snæ Magnússon
Allt fram streymir - íslensk náttúruljóð
Í nafni kærleikans eftir James Meek
Searching for Mary Magdalene eftir Jane Lahr
Jónatan Livingstone Mávur eftir Richard Bach
Heimsljós eftir Halldór Laxness
1984 eftir George Orwell
Nafni Rósarinnar eftir Umberto Eco
Hjálmar Jónsson frá Bólu – Ljóðmæli
Eftir Flóðið eftir PC Jersild
Sláturhús 5 eftir Kurt Vonnegut
Mávahlátur eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
Ronja Ræningjadóttir eftir Astrid Lindgren
Íslenskur Aðall eftir Þórberg Þórðarson
Blikktromman eftir Günter Grass

Ef ég raða þessu upp eftir gæðum (best er efst) þá lýtur þetta svona út:

Draumalandið eftir Andra Snæ Magnússon
Ronja Ræningjadóttir eftir Astrid Lindgren
Hjálmar Jónsson frá Bólu – Ljóðmæli
1984 eftir George Orwell
Sláturhús 5 eftir Kurt Vonnegut
Mávahlátur eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
Blikktromman eftir Günter Grass
Í nafni kærleikans eftir James Meek
Searching for Mary Magdalene eftir Jane Lahr
Heimsljós eftir Halldór Laxness
Jónatan Livingstone Mávur eftir Richard Bach
Allt fram streymir - íslensk náttúruljóð
Eftir Flóðið eftir PC Jersild
Íslenskur Aðall eftir Þórberg Þórðarson
Nafni Rósarinnar eftir Umberto Eco

Þó að ég raði þessu svona upp er ekki hægt að segja að nein bók hafi verið léleg… nema kannski Nafn Rósarinnar, djöfull leiddist mér að klára hana. Það var ekki að hún væri ekki vel hugsuð og skrifuð. Hún var bara einfaldlega leiðinleg. Þórbergur er ekki alveg minn tebolli og Ólafur Kárason Ljósvíkingur er aumingi og drulluhali og það dregur Heimsljós niður (þrátt fyrir að bókin sé fallega skrifuð).

Hins vegar mæli ég með að allir lesi fjórar efstu bækurnar, sjálfs síns vegna.

Og já, þetta er síðasti vinnudagurinn minn. Ég fer heim í Hvamm annað kvöld, suður á sunnudag í nýja íbúð og skólinn byrjar á mánudag.
Og það stendur ekki á stundaskránni minni í hvaða stofu ég á að mæta í fyrsta tíma.
Ohhhhhhh…

Af veikindum, hálfvitum og sófasettum.

Sunday, August 27th, 2006

Ég er komin með nóg!

Það var í mars sem ég fór að venja komu mína á heilsugæslustöðina á Akureyri og í Apótekarann í kjölfarið. Síðan í mars hlýt ég að hafa eitt heilli gommu af þúsundköllum samtals í komugjöld og lyf við hinum ýmsu kvillum sem ég vissi ekki einu sinni að væru til. Ég sannfærðist um að ég væri samt sem betur fer með ansi háan sársaukaþröskuld þegar ég mætti á generalprufuna á Jesus Christ Superstar í þröngum sandölum með tvöfalt stærri tær en vanalega, dökkfjólubláar og fullar af eitri sem hafði verið sprautað í þær. Þess vegna fylltist ég ofurmennistrú á sjálfa mig og drattaðist ekki með mitt mycoplasma í greiningu fyrr en fleiri en einn fjölskyldumeðlimur hafði vinsamlegast beðið mig um að gera eitthvað í þessum hósta mínum.
En gamanið heldur áfram. Auk þess sem ég er ekki enn búin að ná mér af mycoplasmanu og þarf að nota appelsínugult púst næstu 3 vikur, komst ég ekki í vinnu á föstudaginn af því að ég lá grenjandi af sársauka uppí rúmmi. Ástæða: munnangur. Það er orðið skárra núna heldur en það var svo ég get aftur farið að tala um að tannbursta mig í stað þess að blóðbursta.

Og af öðrum sem ég er búin að fá nóg af, fólkið á stúdentagörðunum er nú svolítið spes. Einhver mistök voru víst gerð varðandi samninginn okkar Helga og við þurfum að skrifa undir aftur. Samningurinn var sendur heim í Hvamm á föstudaginn, viku áður en við eigum að taka við íbúðinni. Hann virðist hafa farið í Eggertsgötuna, stúdentaíbúðina sem við eigum eftir að fá, ÁÐUR en hann var sendur í Skagafjörðinn. Helgi fór suður í gær, hálftíma áður en ég fékk samninginn sendann með rútu til mín, þannig að ég þurfti að koma honum suður í tösku sem vinur hans tekur með í dag svo að hann geti undirritað hann og skilað honum á skrifstofuna hjá Stúdentagörðum. Og auk þess eru villur á bréfinu sem mér var sent, þar er alltaf talað um 2007 í stað 2006. Hálfvitar!

Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að ég á undursamlega fallegt og þægilegt plusssófasett í grænum lit sem kostaði mig skitinn 15.000 kall (sófi, 2 stólar og m.a.s. sófaborð líka!) og allur sá peningur fer til styrktar munaðarlausum og fötluðum börnum í Mósambík. Ég keypti líka kökukefli, brauðhníf, ausu, dúk, rósótt matarfat, risastóra bók um seinni heimstyrjöldina og Greifann af Monte Cristo í tveimur bindum til styrktar þessu málefni (það kostaði innan við 2000 kr. samtals). Helgi keypti sniðugt lítið hljómborð með fönkí hljómi og verðbréfaspilið.
Það verður fjör á Eggertsgötunni í vetur!

Danmerkurferð

Thursday, August 24th, 2006

Klukkan hálfníu að morgni föstudagsins 18. ágúst sat ég, dauðmygluð með litlu hressari kærasta á kaffihúsi í Kaupmannahöfn, sötrandi kakó og lesandi heimsbókmenntir og þráði ekkert heitara en að mega leggjast niður og sofna. Undarleg aðstaða. Hún var til komin vegna þriggja tíma seinkunar á flugi Iceland Express frá Akureyri til Kaupmannahafnar. Í stað þess að leggja af stað um kvöld og lenda í Kaupmannahöfn um miðja nótt, lögðum við af stað um miðja nótt og komum undir morgunn til Kaupmannahafnar. Klukkan 8 vorum við komin að gistiheimilinu okkar, búin að liggja á bjöllunni í korter, sætta okkur við að gistiheimili (eins og aðrar skemmtilegar stofnanir) opna ekki fyrr en á siðsamlegum tíma og sest á ekkertsvoógeðslegaskítugan bekk á næsta torgi, borðandi nestið okkar við hliðina á rónunum og dúfunum og íhuga stöðu okkar. Staðan var svo íhuguð nánar á áðurnefndu kaffihúsi, sem var nota bene innréttað fyrir Litla Jón og Litlu Gunnu. Þar voru lítil borð, litlir stólar og lítið um salerni. En staðurinn var notalegur, kakóið gott og Norah Jones í spilaranum og það var þó bót í máli.

Klukkan rúmlega 9 var okkur hleypt inn á gistiheimilið og var það 2 tímum fyrr en við vorum búin að búa okkur undir, svo að við vorum að vonum sátt. Eftir dásamlegan svefn skoðuðum við Strikið, fengum okkur pylsu og bjór á Kongens Nytorv og skoðuðum náttúruljósmyndasýningu með myndum Steve Bloom, brjálæðislega flott. Um kvöldið fórum við út að borða á pizzastað og það fyrsta sem við heyrðum þegar við gengum inn var “Congratulations” eða “Til hamingju Ísland” með Silvíu Nótt. Við misstum andlitin en ákváðum að gefa staðnum séns (pizzurnar voru ódýrar). Síðar kom í ljós að það var hvorki meira né minna en heill Eurovision-geisladiskur í spilaranum. Ég missti svolítið álit á sjálfri mér, þegar í ljós kom að ég vissi frá hvaða landi flest lögin voru, hvort framkoman hefði verið flott eða ekki og hvar í keppninni lögin höfðu endað. Ég fór í rusli heim.

Laugardagurinn var tekinn með trompi þó að við svæfum til hádegis. Við skoðuðum Vor Frue Kirke, handverksmarkað og Sívala turninn, fengum okkur bjór í Litla Apótekinu, sáum Gay-Pride-göngu og fórum í Tívolí þar sem að ég sveiflaðist í hringi í 80 metra hæð með frábært útsýni yfir borgina og skemmti mér afskaplega vel. Við slúttuðum svo kvöldinu með ís í ísbúiðnni ParadÍs. Hún var einmitt við sama torg og skemmtistaðirnir Buddahbar og BarBarBar. Danir eru bestir í nafngiftum…

Sunnudagar eru hálfdauðir í Kaupmannahöfn, flestar búðir eru lokaðar. Við eyddum deginum í að skoða Rósenborgarkastala og lystigarðinn. Og meiri ís…

Á mánudegi fluttum við af gistiheimilinu yfir á Hótel Fox til að eyða síðustu nóttinni í lúxus! Við sáum ekki eftir því. Hvert herbergi er innréttað af listamanni og ekkert herbergi er eins. Mjög flott hótel og þægilegt, góður morgunnmatur líka.
Eftir flutningana var deginum eytt á Strikinu í fataverslunum. Þar af leiðandi var ég komin á verslunarbömmer um kvöldið, nánast búin með peninginn sem ég hafði skammtað mér en vildi alls ekki hætta. Ég stökkti bömmernum á flótta yfir gamalli Disneymynd um Skytturnar 3, kúri, súkkulaði og tölvuleik. Mjög gott síðasta kvöld.

Síðasta daginn gerðum við eiginlega ekkert merkilegt, pökkuðum niður, ráfuðum um almenningsgarða og milli verslana og mættum svo snemma á flugvöllinn, sem var eins gott, biðröðin gekk hægt og korteri eftir að við komum hafði röðin þrefaldast. Biðraðir gengu svo hægt að við þurftum nánast að hlaupa um fríhöfnina til að klára það sem við ætluðum að gera þar. Flugið heim var frekar leiðinlegt, eins og verður gjarnan um heimferðir. Þá var gott að hafa Blikktrommuna eftir Günter Grass (sem ég mæli með) meðferðis.

Semsagt, æðisleg ferð að baki og ég komin aftur á Minjasafnið. Vinn til 31. ágúst, það er að segja 1 viku og flyt svo suður. Þannig er nú það.

Kaupmannahöfn!

Wednesday, August 16th, 2006

Er að fara til Kaupmannahafnar annað kvöld. Þar munum ég og Helgi Vilberg eyða tíma okkar (og væntanlega peningum) fram á þriðjudagskvöld. Strikið, tívolíið og dýragarðurinn eru á planinu og a.m.k. ein höll/kastali/safn fyrir mig :) Á nánar tilteknu plani eru líka hin mjög svo aðlaðandi verslun HM, ódýr bjór, gisting í eina nótt í listaverki, handverksmarkaður hjá Frúarkirkjunni og endalaus gleði og ást. Ef veður leyfir.

Í öðrum fréttum ber það hæst að innbússöfnun gengur ágætlega en ef einhverjum vantar að losna við sófa og/eða stofuborð má sá hinn sami gjarnan hafa samband. Mjög gjarnan. Flutningar eru áætlaðir um mánaðarmótin, íbúðin afhendist 1. september. Endalaus gleði og ást þar á ferð!

Lauk við Íslenskan Aðal eftir Þórberg Þórðarson í fyrradag. Svona allt í lagi bók, fyndin á köflum. Er núna að lesa Blikktrommuna eftir Günter Grass.

Kemur!

Friday, August 11th, 2006

Þá hefur það fengist staðfest, sjávarútvegsráðherrann veit ekki einu sinni hvað hann er að samþykkja á þinginu. Hver er hissa?

Kláraðar bækur:
Mávahlátur e. Kristínu Marju Baldursdóttur
Ronja Ræningjadóttir e. Astrid Lindgren

Klassabækur, ég var í sæluvímu meðan ég las Ronju, það var svo gaman.

Er að lesa: Íslenskur Aðall e. Þórberg Þórðarson

Tímamót

Wednesday, August 9th, 2006

Tvítug í dag og á skrítnum stað í lífinu. Er að byrja í háskólanámi í fagi sem ég veit eiginlega ekkert um, hefja sambúð með karlmanni í mörg hundruð kílómetra fjarlægð frá heimahögum og horfi á eftir vinum sem ég verið samferða í allt að 4 síðustu ár fara í allar mögulegar áttir innanlands og utan.

Þetta verður allt saman minna ógnandi þegar maður hugsar út í það að háskólanámið sem ég valdi mér er virkilega spennandi, ég er yfir mig ástfangin af áðurnefndum karlmanni, ég er fyrir lifandis löngu orðin leið á heimahögunum og þó að vinir mínir dreifi sér út um allan heim þá þýðir það ekki að ég geti ekki haldið sambandi við þá eða þeir við mig. Ég er til dæmis bæði búin að fá kveðju frá Panama og sms frá Þýskalandi í dag og klukkan er ekki einu sinni orðin hálf 11!

Svo að það er best að njóta dagsins með blóm í hárinu og bros á vör því að þegar öllu er á botnin hvolft þá er lífið býsna dásamlegt.

Ofmetin skemmtun

Sunday, August 6th, 2006

Ég fíla ekki Verslunarmannahelgina.

Ég fíla ekki lætin, ég fíla ekki ruslið, ég fíla ekki að alltaf skal einhverjum vera nauðgað eða misþyrmt, ég fíla ekki smákrakka með hor sem lekur ofaní bjórdósirnar, rúllandi um í útældum brekkum áfengisdauð klukkan 5 um daginn, ég fíla ekki stappaða Karó þar sem að andrúmsloftið er 2% súrefni og 98% reykingarstybba, ég fíla ekki peningaplokkið og ég fíla ekki umferðakösina.

Saga búin.

Já, mér leiðist Versló. Það er að vísu búið að vera gaman að hafa litlu systkinin í bænum, fylgjast með Rakarastofukvartettnum og Tortímandanum og hitta gamla félaga. Þannig að Versló er ekki alslæmt fyrirbæri, en ég kæmist vel af án þess.

Hef lokið við bækurnar:
Eftir Flóðið e. PC Jersild.
Sláturhús 5 e. Kurt Vonnegut

Mæli með þeim.

Er að lesa Mávahlátur eftir Kristínu Marju Baldursdóttur. Eftir þeirri bók var einmitt gerð besta íslenska kvikmynd sem gerð hefur verið. Lofar góðu.

Tónlist: Cardigans - My Favorite game og Love Fool.

Betri heimur

Thursday, August 3rd, 2006

Ef fólk gæti bara ekki fílað Árna Johnsen þá væri heimurinn svo miklu betri staður.
Ég er ekki að biðja um mikið.

En meðan hann er sá eini sem vekur einhverja athygli á því sem þarf að gera fyrir Vestmannaeyjar þá er ég svo sem ekkert steinhissa á að hann skuli njóta einhverrar hylli þar. Sorgleg staðreynd.