Archive for October, 2006

Vel blandaður listi Sjálfstæðisflokksins

Sunday, October 29th, 2006

Guðlaugur Þór Þórðarson, segir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum sem valinn var í prófkjöri um helgina vel blandaðan konum og körlum.
Er það?
Sjálfstæðisflokkurinn á sem stendur 9 þingmenn í Reykjarvíkurkjördæmunum samanlagt. Ef við reiknum með því að þeir fái svipaða kosningu í vor, 8-10 aðalmenn á Alþingi, þá kemur í ljós hversu vel blandaður listinn er.
Í topp 8 sætum á listanum eru 2 konur. Það væru 25% kvenna á móti 75% karla.
Ef Sjálfstæðisflokknum í Reykjavíkurkjördæmunum gengur vel og flokkurinn fær 10 aðalmenn, þá bætist ein kona við. Þá er hlutur kvenna orðinn 30% á móti 70% hlut karla.
Ljósi punkturinn er náttúrulega að varamennirnir tilvonandi eru þá nánast bara konur. Sjálfstæðismenn settu nefnilega nefnilega 3 konur í 10-12 sæti, neðstu sætin sem kosið var um í prófkjörinu.
Þær mega alla vega vera þakklátar fyrir það…

Á snældu vil ég stinga mig

Thursday, October 26th, 2006

Stundum
væri rosalega hentugt
að eiga svona snældudót eins og Þyrnirós var svo heppin að rekast á einhverju sinni þegar hún var að stinga sínu straumlínulagaða og fílapenslalausa nefi ofaní hvers manns kopp.
Þá gæti ég bara potað í það
og fengið mér 100 ára lúr.

Fínt ef einhver prins væri ekki of upptekinn til að vekja mig eftir ca. öld.
Ekki fyrr samt
nema mig fari að dreyma martröð
sem myndi þá væntanlega snúast um að ég þyrfti að skila vikulega verkefninu í Menningarheimum
eða “vikulegu niðurlægingunni” eins og ég kýs að kalla það.

……………….

Ef tekið er mið af nokkrum bloggfærslum síðastu tveggja mánaða
gæti fólk farið að halda að ég væri ekki að fíla HÍ.

Ég gæti jafnvel farið að halda það sjálf.

Hættuleg húsverk

Monday, October 23rd, 2006

Í gær fékk ég satanískan bakverk þegar ég var að strauja. Verkurinn var ennþá til staðar þegar ég vaknaði í morgun og virðist ekki vera á förum. Af þessu dreg ég þá ályktun að húsverk séu hættuleg og ég eigi alfarið að hætta þeim öryggis míns og heilsu vegna og einbeita mér þess í stað að pólistískum frama mínum undir formerkjum uppgjafahúsmóður.

Eða eitthvað.

IFAW (Alþjóðlegi náttúruverndarsjóðurinn) mótmælir hvalveiðum Íslendinga og kallar eftir aðgerðum frá stuðningsmönnum samtakanna sem telja um 2 og hálfa milljón manna.
Og herinn farinn. Nú erum við í vondum málum. Held að Bjössi Bjarna verði bara að drífa í að stofna her því einhverja hluta vegna efast ég um að leynilegi varnarsamningurinn við Kanann eigi eftir að vernda okkur fyrir fjúríus hvalavinum.

Ég og Helgi ætlum ekki að borða neitt um næstu helgi og eyða þess í stað matarpeningnum í að fara og sjá Mýrina. Ef einhver hefur hugsað sér það sama þá sá hinn sami endilega hafa samband svo við getum verið memm.
Og þeim sem langar að bjóða okkur í mat um helgina er líka velkomið að hafa samband.

MA-draugurinn

Friday, October 20th, 2006

Í gær:
Vaknaði ég klukkan hálf sjö og tók upp verkefni í færni táknmáls sem fólst í því að ég stóð með hjartað í buxunum í 20 mínútur og talaði á einhverju tungumáli sem ég vona að líkist táknmáli. Svo skrifaði ég þessa grein, leiðrétti stórhættulegan misskilning yfir ljúfum kaffibolla, flaug til Akureyrar í blússandi ókyrrð og ógleði, borðaði svo ljúffengan mat hjá tengdó að ég hélt að ég myndi aldrei getað staðið upp aftur, fór í ánægjulegan göngutúr um gamla bæinn og lenti alveg óvart inná kvöldvöku í MA!

Í morgun var ég svo aftur mætt upp í MA. Ég verð að fara að vinna í því að sætta mig við að vera hætt í þessum skóla…
Það var samt alveg æðislegt að koma aftur í MA, eins og að koma heim. Ég vildi bara að ég hefði getað talað meira við fólk. En koma tímar, koma ráð. Orðið á götunni er nefnilega að nýja MORFÍS-liðið í MA sé eitursvalt og muni mæta Versló í nóvemberlok á Akureyri. Kannski að maður skelli sér?

Nú er ég hins vegar í sveitinni og verð þar um helgina. Á leiðinni út úr bænum ókum við á eftir bíl sem á stóð „Líkamspartasala Guðjóns”. Ég náði því miður ekki símanúmerinu sem stóð á bílnum, en miðað við hvernig ökumaður bílsins keyrði var ekki erfitt að giska á hvaðan Guðjón fær líkamspartana…

Mogginn punktur is

Tuesday, October 17th, 2006

Ég hef hætt að lesa mbl.is í bili.

Ég bara höndla ekki að hafa stöðugt þau Ástu og Sigríði og Björn og Illuga og guð má vita hvað fyrir augunum á mér. Ég kemst í vont skap.

E.S. Ef einhver á leið eftir þjóðvegi nr. 1 um Skagafjörð og alla leið til Reykjavíkur á sjálfrennireið sinni næstkomandi sunnudag og langar í huggulegan ferðafélaga til að deila eldsneytiskostnaðinum með, endilega bjallið í mig (8475601).

Þögul of lengi.

Tuesday, October 10th, 2006

Ég tók mér lengsta matarhlé í heimi með forstöðukonu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Já, ég á rosalega merkilega vini.

Í þessu frábæra matarhléi deildum við öllum okkar innsta pirringi hvor með annarri og skemmtum okkur einstaklega vel við það. Gott að fá útrás í góðum félagsskap.

Ég losnaði hins vegar ekki alveg við pirringinn, og nýtti hann því til að skrifa greinina sem ég er búin að ætla að skrifa í viku. Held að þetta sé það fyrsta sem ég hef skrifað af einhverjum metnaði síðan að öll sköpunarlöngun mín hrundi eftir Munins-brjálæðið í vor.
Gott að vera byrjuð aftur.

Stefnumót við spunameistarann

Thursday, October 5th, 2006

UVG hélt skemmtilegt kaffihúsa- ljóðakvöld í gær. Ég mætti og tók málsvara Satans í útibúinu jörð (líkt og hún vill kalla sig sjálf), nefnilega Unni Helgu Möller með mér. Líkt og við var að búast leiddumst við út í umræður um siðleysi stórfyrirtækja og í pólitík almennt, gagnsemi Kárahnjúkavirkjunnar og aðskilnað ríkis og kirkju (o.fl.). Það heldur manni í æfingu að rökræða við Unni þar sem hún er sannkallaður spunameistari og maður telur sig sjaldan hafa farið með sigur af hólmi eftir heitar umræður við hana. Allt saman mjög hollt þar sem þetta er ansi góð rökræðuæfing.
Svo tókum við upp léttara hjal.

Muna í framtíðinni:
Hætta að tala við Unni Helgu á meðan maður er ennþá innandyra.
Annars endar maður kalinn á rassgatinu labbandi heim alltof seint um kvöldið eftir götuhornshangs, vitandi miklu meira en maður vildi nokkru sinni vita um söngleiki um Hannibal Lecter og japanskt prumpuklám.