Archive for November, 2006

Stuðningurinn margumræddi

Monday, November 27th, 2006

Ef að Framsóknarflokkurinn telur að stuðningur íslenskra stjórnvalda (ég meina Dabba og Dóra) við innrásina í Írak voru mistök, þá á tafarlaust að gefa út yfirlýsingu fyrir hönd þjóðarinnar þess efnis á alþjóðavettvangi. Það er fagnaðarefni ef slíkt stendur til. Verði það ekki gert, er augljóst að yfirlýsingar formannsins eru ósmekklegar kosningabrellur og tilraun til að þvo hendur flokksins af málinu. Ég vona að raunin sé ekki sú. Ef vonir mínar rætast, ber að hrósa Framsóknarflokknum fyrir að hafa að minnsta kosti sýnt meiri dug í þessu máli heldur en Sjálfstæðisflokkurinn, en úr þeirra herbúðum má ekki minnast á að stuðningurinn hafi verið mistök.
Drífa Hjartardóttir, einn af fulltrúum þingflokks Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd hafði þetta að segja um stuðninginn við árásina í Írak:
“Málið er okkur öllum afskaplega erfitt, en ég held að á sínum tíma hafi menn tekið ákvörðun út frá þeim staðreyndum sem þá lágu fyrir. Það er ekki hægt að horfa fram í framtíðina þegar tekin er ákvörðun.
Dásamlega einkennandi fyrir stefnu ríkisstjórnaflokkanna í heild. Þegar Alþingiskona lætur svona kjaftæði út úr sér getur maður ekki annað en glaðst yfir að hún er á leið útaf þingi.
En því miður kemur eitthvað verra í hennar stað.

Að síðustu langar mig að benda öllum áhugamönnum um mælskulist og rökræður á blogg þeirra Ævars og Elmars um hvernig MorfÍs versnandi fer.

Fjandmenn, Satan, forval og róttækar drykkfelldar konur.

Friday, November 24th, 2006

Klippingarvandamál leyst! Tengdamamma kom fljúgandi norður með skærin. Tengdamamma mín er best!
Er nýbúin að lesa leikritið Enemy of the people eða Fjandmaður fólksins eftir Henrik Ibsen. Þetta er með því betra sem ég hef lesið í langan tíma, verð bara að mæla með því.
Í huganum verð ég þarna í kvöld þegar að Morfíslið MA mun útskýra fyrir Verslingum að Satan sé ekki besti vinur barnanna. Í alvörunni verð ég að skemmta mér með róttækum og drykkfelldum konum, enda ekki um annað að ræða þegar að bóndinn hefur látið sig hverja norður á bóginn.
Og já, síðasti frestur til að ganga í flokkinn og koma Íslands einu von og öðru góðu fólki ofarlega á lista fyrir næstu Alþingiskosningar, rennur út á morgun klukkan fimm. Koma svo!

Hitt og þetta.

Wednesday, November 22nd, 2006

Var að skrifa grein.
Mæli með þessu annað kvöld (sem er víst tæknilega séð í kvöld).

Annars er það að frétta að Bókatíðindin komu í dag. Einhvern veginn fann ég fátt sem mig langaði í þar. Jú bókina hans Steingríms og nýju Artemis Fowl-bókina. Svo er ýmislegt les-legt þarna en einhvern veginn ekki neitt mikið eigu-legt fyrir mig.

Vantar klippingu

Sunday, November 19th, 2006

Ég er að verða snarsnælduvitlaus á lubbanum á mér. Vill einhver vera svo vinsamlegur að benda mér á ekkialvegránhelvítidýra hárgreiðslustofu eða bara manneskju sem kann að fara með skæri sem ég get leitað til? Þetta er alvöru hjálparákall, ef ég fæ ekki ábendingar þá klippi ég hárið bara allt af með eldhússkærunum og það verður ekki falleg sjón.
Koma svo, þið hljótið að vita um einhvern!

E.S. Ég mæli með laginu “Dear Santa (Bring me a man for Christmas)” með The Weather Girls ef fólk vill vita hvernig hræðilegasta jólalag allra tíma hljómar.

Hið óhjákvæmlega jólaskap

Sunday, November 19th, 2006

Ég komst í jólaskap í gærkvöld þegar ég fékk uppblásinn jólasvein í hausinn á tónleikum Sufjan Stevens í Fríkirkjunni.

Held að það hafi verið alveg tímabært. Fimm vikur til jóla og þegar ég vaknaði í morgun var borg óttans þakin snjó. Í illgirni minni gladdist ég yfir því að vera ekki ein af þeim fátæku stúdentum hér á görðunum sem eiga bíl og byrjuðu daginn á að moka hann út úr sköflunum. Stakk hausnum þess í stað ofaní poka fullan af piparkökum og sniffaði jólalyktina. Kveikti svo á kertum og er að hlusta á jólalög. Það eina sem mig vantar er að Bókatíðindin komi í hús.

Það verður ansi skrítið að þurfa að fara í jólapróf. Það hef ég ekki gert síðan í grunnskóla. Svo verður það jafn skrítið að þurfa ekki að læra fyrir próf í jólafríinu. Hef ekki gert það síðan í grunnskóla heldur. Held að það eigi eftir að verða fjör.
Og já, hér með tilkynnist að ég verð á Akureyri á nokkra daga á milli jóla og nýárs. Það er eitthvað sem ég hef ekki upplifað síðan ég var nokkurra mánaða gömul. Tími kominn á upprifjun.

Sögusagnir úr heimi stjórnmálamanna og orðabóka

Tuesday, November 14th, 2006

Sú saga gengur nú í jafn ljósum logum og vofa kommúnismans gerði hér um árið, að tveir merkir stjórnmálamenn hyggist senda frá sér orðabækur á komandi misserum. Um er að ræða nýyrðasafn iðnaðarráðherrans Jóns Sigurðssonar, sem hefur hlotið mikla athygli fyrir framlag sitt til íslenskrar nýyrðasmíði. Ber þar hæst að nefna smellina “þjóðhyggja” og “orðbólga”. Vinnuheiti bókarinnar ku vera “Bullorðabók Framsóknarflokksins” en útgáfutími er óljós.
Árni Johnsen er víst líka að viða að sér efni í orðabók. Hún hefur ekki verið opinberlega kynnt en talið er að Árni sé að plægja jarðveginn með því að flétta efni hennar inn í viðtöl, en af þeim fær hann nóg nú eftir glæsilegan kosningasigur hans í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi. Við skulum taka dæmi um útskýringu á hugtaki úr bókinni væntanlegu:

að:
stela,
misnota aðstöðu sína
og ljúga að þjóðinni

skilgreinist sem

Tæknileg mistök

Þetta er sannarlega gleðiefni fyrir aðdáendur fyrri ritverka Árna, en fyrir hefur hann skrifað hina lofuðu bók Lífsins Melódí, sem fékk rosalega dóma, þar á meðal þennan sem birtist á Kistunni - Veftímariti um fræði og menningu, en þar kom þetta einmitt fram:
“Þeim sem hafa gaman af belgingslegu karlagrobbi, yfirborðskenndum skopsögum og “hnyttnum tilsvörum” í anda íslenskrar fyndni finnst Lífsins melódí kannski skemmtileg lesning. Öðrum ráðlegg ég eindregið að sniðganga bókina.” (Þórdís Gísladóttir).
Útgáfudagur fyrir bók Árna, sem ku bera vinnuheitið “Orðabók fyrir siðlausa” er einnig á reiki. Óstaðfestar fregnir herma þó að báðar bækurnar verði gefnar út af ríkisstjórninni. Ágóði af sölu bókanna rennur óskiptur til góðgerðamála… það er að segja í prófkjörssjóði.

(Ó)hrein samviska

Tuesday, November 14th, 2006

Vitnað í orð sendiherra Ísraels við fréttamann Moggans:

„Við ráðumst aldrei vísvitandi á óbreytta borgara ólíkt herskáum Palestínumönnum,” sagði Shomrat er blaðamaður mbl.is ræddi við hana í dag. „Þetta er mergurinn málsins og ég sætti mig ekki við að látið sé í veðri vaka Ísraelar ráðist vísvitandi á óbreytta borgara. Yfirvöld á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum eiga samkvæmt alþjóðalögum og Oslóarsamkomulaginu að sjá til þess að árásir séu ekki gerðar frá yfirráðasvæði þeirra á nágrannaríki. Fram til þessa hefur engin heimastjórn Palestínumanna reynt af alvöru að koma í veg fyrir slíkar árásir. Þann dag sem palestínsk yfirvöld stöðva árásir á Ísrael get ég staðhæft að Ísraelar muni ekki gera eina einustu árás á Palestínumenn.”

Sendiherrann treysti sér hins vegar ekki til að tjá þeim tæplega hundrað mótmælendum sem mótmæltu komu sendiherrans fyrir framan utanríkisráðuneytið í morgun, að Ísraelsmenn réðust aldrei vísvitandi á óbreytta borgara og að hún bara sætti sig alls ekki við að slíku rugli sé haldið fram.

Þess í stað laumaðist sendiherrann samviskuhreini út um bakdyrnar á utanríkisráðuneytinu.

Ljós í myrkri

Sunday, November 12th, 2006

Ég las blogg þarna og hafði svolítið gaman af.
Svo las ég kommentin.
Og langaði að grenja af vonbrigðum af því hversu margir rasistar eru til á þessu skeri, og dirfast líka að halda því fram að þeir séu ekki rasistar. Dæmi:

“þessir helvítis útlendingar eru að eyðileggja Íslands, þetta góðæri sem er á Íslandi er alvöru Íslendingum að þakka svo eru einhver gul ógeð eða fokkin pólverjar eða negrar að koma hingað og njóta þessa Íslenska góðæris. Og ef að þeim sem bloggar líður svona getur hann farið burt úr MÍNU landi. Áttið ykkur á því að það eru um 20.000 útlendingar hér á landi og þá er ég bara að tala um fólk með lögheimili og ÍSLENDINGAR eru ekki nema 300.000 að meðtöldum þessum útlendingum. 7.000 manns hafa komið hingað bara það sem af er árinu 2006 og koma væntanlega fleiri á næstu árum, fleiri ríki að koma í Evrópusambandið. Verðum að stoppa þessa þróun strax því að ÍSLAND er fyrir ÍSLENDINGA og enga aðra…..
þetta er ekki rasismi enda er ég ekki rasisti, gæti ekki verið meira sama um þetta fólk ef það væri bara heima hjá sér,
og til ykkar sem er svona vel við þessa útlendinga segi ég, verðið ekki brjáluð þegar einhver útlendingur t.d. hendir rusli á göturnar og er þar af leiðandi að “óhreinka” landið MITT, eða lesið fréttir um að ÍSLENSKUM konum sé nauðgað af útlendingum. Er með tvær sögur, sannar sem gerðust á Íslandi - maður og kona hans voru á kaffihúsi og konan fer á klósettið, stuttu seinna kallar hún á hjálp og maður hennar stekkur af stað og kemur þar að NÍÚ!!!!!! pólverjum að reyna að nauðga konu hans, hann ræðst á mennina og er laminn í stöppu svo fullyrðir maðurinn að pólverjarnir hafi ætlað að nauðga honum, hversu mikill aumingi þarftu að vera ef eina leiðin til að fá að ríða er að nauðga konu með 8!!!! öðrum ógeðum…….. stelpu var nauðgað af tveimur filipseyingum og tveir bræður stelpunnar lúbörðu þessa aumingja, þegar löggan kom á staðinn og heyrði hvað hefði gerst þá sagði hún bara “flott, vel gert” og hrósaði þessum strákum í hástert……… löggan er nefnilega í vandræðum með þessa útlendinga því þeir stofna klíkur og bera enga virðingu fyrir ALVÖRU ÍSLENDINGUM
btw. fór á kaffihús um daginn og það var ekki hægt að tala íslensku það því að afgreiðslukonan kunni EKKERT í íslensku, ekki einu sinni undirstöðuatriðin í afgreiðslustörfum, báðum um reikninginn og hún skildi ekki neitt, þurfti meira að segja að segja þetta við hana þrisvar sinnum á ensku….. ég meina kommon finnst ykkur þetta í lagi…..

kveðja Gunnar Emil, sá sem ber hag Íslands fyrir brjósti!”

Það á að kæra þennan fyrir sóun á súrefni.

———————————————–

En sem betur fer er enn eitthvað gott til í heiminum.
Vinkona mín hún Gunnhildur Vala og hennar ektakærasti hann Höski, eignuðust í gær yndislega tvíburastráka.
Hamingjuóskir.

Ályktun UVG um málefni innflytjenda

Thursday, November 9th, 2006

Reykjavík, 8. nóvember 2006,

Ung vinstri-græn harma málflutning Magnúsar Þórs Hafsteinssonar og samherja hans innan Frjálslynda flokksins af málefnum innflytjenda. Það er ljóst að umræða um málefni innflytjenda sem byggir á upphrópunum og hræðsluáróðri kemur engum til góða og leysir engin vandamál, jafnvel ekki vandamál sem við eigum að mati Frjálslyndra eftir að standa frammi fyrir í ókominni framtíð.

Það að líkja komu vinnandi fólks frá öðrum löndum til Íslands við innrás er ekki málefnalegt heldur beinlínis ósmekklegt. Framámönnum í stjórnmálum landsins á ekki að líðast slíkur ofstopi í garð einstakra hópa samfélagins.

Málflutningur Frjálslyndra einkennist af lýðskrumi og er fallin til þess að valda hræðslu og úlfúð í samfélaginu í garð innflytjenda sem koma hingað til lands til að vinna störf sem þarf að vinna.

Ung vinstri-græn telja að málflutningur sem þessi sé eingöngu til þess fallinn að skapa djúpstæða gjá milli innflytjenda og þeirra sem fyrir búa. Með því að nálgast „vandamálið“ á þennan hátt er því verið að búa til vandmál.

Ef talsmenn Frjálslynda flokksins halda áfram á sömu braut og sjá ekki að sér, telur stjórn Ungra vinstri-grænna það augljóst að ekki sé hægt að starfa með flokknum í stjórnarandstöðusamstarfi. Ung vinstri-græn hvetja því þingflokk Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs til að endurskoða hug sinn til samstarfs við stjórnmálaflokk með svo vafasamar áherslur í mikilvægum málaflokki.

Í sumum löndum hefur vissulega skapast eitthvað sem kallað hefur verið innflytjendavandi. Sá vandi snýr þó að mati Ungra vinstri-grænna ekki að innflytjendunum sjálfum, heldur að því hvernig tekið er á móti þeim sem og hvaða viðhorfum þeir mæta hérlendis. Ef hægt er að tala um einhvern vanda tengdan málefnum innflytjenda hér á landi er sá vandi orsakaður af afskiptaleysi ríkisstjórnarinnar í garð þeirra sem hingað flytjast.

Það skiptir mestu máli að Íslendingar taki vel á móti þeim sem setjast hér að. Því verður best komið í veg fyrir að vandamáli skapist með að styðja fólk sem hingað er komið, hjálpa fólki að aðlagast og verða fullgildir þátttakendur í samfélaginu.

Ung vinstri græn vilja:
• Hækka lágmarkslaun.
• Stytta vinnuvikuna.
• Herða reglur um hámarksvinnutíma.
• Að öllum innflytjendum séu veittar upplýsingar um íslenskt samfélag, réttindi þeirra og skyldur.
• Að skylt verði að hver starfsmaður geti nálgast á sínum vinnustað ítarlegar upplýsingar um kjarasamningsbundin réttindi sín á eigin móðurmáli.
• Færa umsýslu atvinnuleyfa frá launagreiðendum til launþega.
• Að innflytjendur fái íslenskukennslu þeim að kostnaðarlausu.
• Að börn innflytjenda fái notið kennslu í móðurmáli sínu.

Matargerðarfóbía?

Monday, November 6th, 2006

Fór á seinni hluta hugvísindaþingsins í gær. Þingið var bráðskemmtilegt. Sat fyrirlestra um íslensk nafnalög og íslenska málnotkun, kvenmyndina í ljóðum Stephans G., áhrif bandaríska hersins á tónlistarlíf Íslendinga, símhleranir íslenskra stjórnvalda í kalda stríðinu (Guðni Th. Jóhannesson flutti fyrirlesturinn), virkjanastefnu á Íslandi árið 1970 og einkenni og stöðu umræðunnar um umhverfis- og náttúruverndarmál á Íslandi. Allt mjög áhugavert. Ætla að stefna að því að fara oftar á svona fyrirlestra/málþing í framtíðinni.

En að öðru…

Ég hef alltaf talið mig frekar lélegan kokk. Það stafar aðallega af hræðslu minni við að prófa að gera hluti sem mamma hefur hingað til alltaf gert fyrir mig og svo vegna biturrar reynslu minnar af því að brenna popp og reyna að sjóða kartöflur án þess að nota vatn…
En ég er að vinna í þessum málum. Venjulega tekur það mig samt nokkrar vikur að manna mig upp í að elda nýjan rétt. T.d. á ég eitt stykki læri í frystinum sem ég hef átt síðan í byrjun september en þori ekki að elda. Eins hrís mér hugur við því að láta loksin verða að því að elda kjötsúpu eða steikja fisk í fyrsta sinn jafnvel þó að ég eigi öll hráefnin. Og ég sem á brauðvél tel mér endurtekið trú um að ég hafi ekki tíma til að nota hana og er búin að koma henni fyrir uppí efstu hillu á bakvið samlokugrill og matarolíu þannig að ég tek sárasjaldan eftir henni. Ég er meira að segja með hnút í maganum nú þegar ég er að skrifa um þetta. Ég er náttúrulega ekki eðlileg.
En í kvöld vann ég lítinn sigur, því ég kann nú að elda lasagne. Húrra fyrir mér. Ég hélt reyndar að ég hefði klúðrað því og ætlaði að skella því beint í ruslið og fá mér banana og róandi, en Helgi kom í veg fyrir það. Og maturinn var reyndar afbragðsgóður. Það er ennþá von…