Archive for November, 2006

Hugvísindaþing

Friday, November 3rd, 2006

Fór á hugvísindaþing HÍ í dag og sat málstofur um:

Sjálfgetnar bókmenntir (hversu spes sem það hljómar…)
Viðbrögð Þjóðverja við ævisögu Günters Grass og uppljóstrun hans um að hann hafi gegnt herþjónustu í Waffen SS
Smásögur í Québec
Íslenskar ferðabækur um Sovétríkin og skilning og upplifund höfunda þeirra á Sovétríkjunum
Andóf kommúnista við Alþingishátíðinni 1930 og hvernig þeir söfnuðu fyrir traktor fyrir sovéskt samyrkjubú í mótmælaskyni við hátíðina

og

Júdasarguðspjallið og tvíræða persónu Júdasar Ískaríots.

Framhald á morgun.

Og já, þetta er skítt.

Vefsíða vikunnar er tvímælalaust þessi. Alger snilld þar á ferð.

Staðan

Thursday, November 2nd, 2006

Í gær gaf ég skólanum fingurinn og skrópaði í 4 tíma (sem ég hefði hvort sem er sofið í). Skrapp þess í stað á kaffihús með Unni Helgu og djöfull var það miklu meira gaman. Svo hitti ég tvo grænlenska stjórnmálafræðinema með alþjóðamálafulltrúanum og varaformanninum, það var spennandi. Eyddi restini af kvöldinu í að spila Gettu-Betur-spilið og hella niður appelsíni í trylltum tilraunum mínum til að ná bjöllunni fyrst. Lúrði líka frameftir í morgun, það er gott að vera góður við sjálfa sig.

Um helgina ætla ég að kíkja á þetta, reyna að vera dugleg að læra og lesa the Satanic Verses… eða alla vega hluta af bókinni. Svo er stjórnarpartí þó ég viti ekki hvort að formaðurinn hefur sig í að mæta fyrst að búið er að banna alla samkvæmisleiki og sömuleiðis singstar. Held að partíhaldarinn hafi fordóma gagnvart því…