Archive for December, 2006

Tónlistaruppgjör

Sunday, December 31st, 2006

Tónleikarnir sem nefndir voru í síðasta bloggi tókust afskaplega vel, minn maður troðfyllti Deigluna og stóð sig vel. Eintóm hamingja og gleði
Síðasti dagur ársins er runninn upp. Í tilefni þess verður maður víst að hafa einhvers konar uppgjör. Ég hef ákveðið að hafa tónlistaruppgjör:

Mest hlustað á þetta árið:

Plötur:
Jesus Christ Superstar - Andrew Lloyd Webber
Gerum eitthvað róttækt, förum að sofa - Helgi Vilberg Helgason
The Crane Wife - The Decemberists
Seven Swans - Sufjan Stevens
Wish you were here - Pink Floyd

Lög:
The Perfect Crime no. 2 - The Decemberists
Ladyshave - Gus Gus
Holding out for a Hero - Bonnie Tyler
Could we start again please? - Jesus Christ Superstar
Sunny Road - Emiliana Torrini

Þetta kom líka sterkt inn á árinu:
Rakarastofukvartettinn Elmar, Pink Floyd, The Arcade Fire, PJ Harvey, Red House Painters, Strawbs, Tortímandinn, Skunk Anansie, Godspeed You Black Emperor, Alanis Morisette og líklega einhverjir fleiri sem ég gleymi.

Þetta yfirlit er tileinkað ipodnum Einari sem lést eftir langvinn veikindi á árinu sem er að líða. Einar var hjartkær vinur sem ég lærði margt af. Hvíl í friði.

Ég óska öllum lesendum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir árið sem er að líða.

- Steinunn

Tónleikar

Friday, December 29th, 2006

Minn hæfileikaríki betri helmingur heldur tónleika í Deiglunni á Akureyri klukkan 20:00 í kvöld. Endilega mættu ef þú ert á Akureyri.

Annars ætla ég að koma á framfæri ósk minni um góð jól (það sem er eftir af þeim) og farsælt nýtt ár til allra sem eiga það skilið.

Jólafrí

Thursday, December 21st, 2006

Jólablað Munins er komið út. Hönnunin er flott, komikin fyndin og greinin um Stofur í MA er skemmtileg. Sindri bró tók forsíðumyndina sem er mjög flott og jólaleg, og Súperauglýsingin verður fyndnari eftir því sem maður skoðar hana betur (ég lofa). Fínt blað, en hvað er það að minnast ekki á greinahöfunda í yfirgnæfandi tilfellum (helmingur greinanna er ómerktur og greinahöfunda er ekki getið meðal þeirra sem bjuggu til blaðið)? Leiðinleg villa, en ég er viss um að hún mun ekki endurtaka sig í vorblaðinu. Greinarnar eru líka mjög misgóðar, en í heildina er blaðið mjög fínt og gefur fögur fyrirheit um vorblaðið. Hamingjuóskir til þeirra sem að því stóðu.

Er komin heim í sveit yfir hátíðirnar. Verð samt á Akureyri 27-30 des. Fékk far norður í gær með Ingu Völu og fjölskyldu. Gott að endurheimta Ingu Völu frá Baunverjalandi, ég var búin að gleyma að hún er fyndnasta manneskja í öllum heiminum. Og sú málglaðasta. Held ég verði að taka með mér aukapar af eyrum á Akureyri. En þó að ég slíti eyrunum, lengi ég líf mitt væntanlega um nokkur ár í hvert skipti sem ég hitti hana því það er eitt samfellt hláturskast í krampa á gólfinu.

Prófin gengu ágætlega, ég er búin að fá eina einkun sem er 9 þannig að þetta byrjar allvel. Það er svo annað mál hvort ég held áfram í þessu námi mínu, það verður tekin ákvörðun um það á næstu mánuðum. En nú er jólafrí, og í jólafríi á maður að lesa og eta kökur. Sem ég ætla að gera núna.

Skemmtanagildi táknmáls…

Thursday, December 14th, 2006

Táknmál er á margan hátt mjög skemmtilegt.

Til dæmis það hvað tákn eru lík. Svo ég gerist nú temmilega hispurslaus á opinberum vettvangi þá ætla ég að nefna nokkur dæmi.

Táknin KIND og LESBÍA eru nánast alveg eins, nema það er eilítill munur á því hvar nákvæmlega á líkamanum á að framkvæma táknið.
Sömu sögu má segja um táknin HOMMI og HUNDUR.
Þá er táknið FÉLAG keimlíkt tákninu fyrir pí… eh… burðarlið kvenna (þetta frábæra orð var í boði Samheitaorðabókarinnar).
Og af einhverri ástæðu, ég get ekki ímyndað mér hverri, þá er táknið fyrir HAGKAUP og SAMFARIR nánast alveg eins.

Þannig að þið getið ímyndað ykkur hvernig hægt væri að klúðra setningunni:

“Ég fór út að ganga með hundinn, tók hann með mér í Hagkaup, keypti þar kindakjöt og fór svo á félagsfund”.

Eins gott að vera með allt á hreinu í táknmálinu…

Dónaskapur í Kastljósinu

Wednesday, December 13th, 2006

Undanfarið hef ég fylgst með umræðum milli stjórnmálamanna um hitamál í samfélaginu sem fara reglulega fram í Kastljósinu. Með því að fylgjast með slíkum umræðuþáttum held ég að hægt sé að öðlast annað og jafngott sjónarhorn á stjórnmálamenn eins og fæst með því að lesa stefnumál stjórnmálamanna. Mér finnst nefnilega skipta máli líka hvernig fólk hagar sér opinberlega.
Fyrir tæpri viku mættu Steingrímur J. og Sturla Böðvarsson í Kastljósið til að ræða um Suðurlandsveg og hugsanlega tvöföldun hans. Held að það dyljist engum sem les þetta blogg öðru hverju að mér er heldur mikið hlýrra til Steingríms heldur en Sturlu. Því er erfitt að vera ekki hlutdræg, þannig að ég læt mér bara nægja að vara ykkur því að það gæti vel verið hlutdrægni í þessari frásögn minni. En framkoma Sturlu fannst mér ömurleg, þar sem hann sýndi viðmælenda sínum ekki hina minnstu virðingu, greip fram í fyrir honum í hvert skipti sem orðið var Steingríms og það tók nú steininn úr þegar hann gat ekki hugsað sér að segjast vera sammála Steingrími og sagði þess í stað: “Ég er sammála Steingrími… eða réttara sagt þá er Steingrímur sammála mér…”.
Nokkrum dögum seinna horfði ég á Illuga Gunnarsson og Helga Hjörvar ræða um málefni fátækra barna á Íslandi. Það var þvílíkur munur, því að þeir leyfðu hvorum öðrum að klára setningarnar og þar af leiðandi gátu þeir gert sjónarmið sín skiljanleg. Hvorugan þeirra styð ég pólitískt svona almennt, en þetta, samfara því sem ég hef kynnst af stjórnmálamönnunum Illuga og Sturlu, gerði það samt að verkum að ég sannfærðist endanlega um að ég vil hundrað sinnum frekar hafa Illuga á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn heldur en Sturlu. Fólk verður nefnilega að vera viðræðuhæft, sérstaklega ef það gegnir mikilvægum störfum í fyrir þjóðina.
Í kvöld mættust svo Dagur B. Eggerts og Björn Ingi Hrafnsson í Kastljósinu og ræddu um pólitískar ráðningar, sem Framsóknarmenn hafa víst verið iðnir við upp á síðkastið, en þess gætti líka í valdatíð R-listans. Á meðan ég horfði á og hlustaði komu titlar á Jim Carrey kvikmyndum á færibandi upp í hausinn á mér, svo sem Dumb & Dumber og Liar Liar. Það var reyndar ótrúlegur einfeldningsháttur af þáttastjórnendum Kastljóssins að halda að þeim tækist líka að tala um olíumálið, en sömuleiðis var það ruddaskapur af viðmælendunum að fylgja engum fyrirmælum og taka allan tíman sem átti að fara í olíumálið í persónulegar meiðingar og rifrildi. Ég hef heldur aldrei séð stjórnmálamann sem mætir í umræðuþátt ráðast að spyrlinum með tilefnislausar og kvikindislegar athugasemdir um hans mál, eins og Björn Ingi gerði í kvöld. Þó að Bingi hafi verið ívið smekklausari og dónalegri en Dagur, hefur álit mitt á honum reyndar ekkert lækkað eftir Kastljósþátt kvöldsins, einfaldlega af því að það getur ekki farið lægra. Dagur var hins vegar með hálf auma framkomu, en fær samúðarstuðning vegna ómaklegrar framkomu Binga.

Nýjasti kvillinn

Friday, December 8th, 2006

Ég hef gefist upp á heilsu minni og líkama mínum almennt. Þetta er bara helvítis drasl sem er alltaf bilað og bara með leiðindi.
Hver er nýjasti kvilli minn?
Jú, millirifjagigt orsökuð af klemmdri taug í baki. Ég fékk þessa greiningu á læknavaktinni í Kópavogi sem Auður og Freyr keyrðu mig á í gær (kann ég þeim bestu þakkir) þegar ég var búin að vera með stöðugan verk í brjóstkassanum í átta tíma og farin að ímynda mér að þar væru alls kyns æxli og annað góðgæti að blómstra. Það er alltaf róandi að vita hvað vandamálið er og að þetta mun jafna sig, en tímasetningin er náttúrulega frábær eins og alltaf hjá mér, prófin nýbyrjuð og almenn hamingja (lesist: stress) ræður ríkjum eins og alltaf í próftíðum. Ég er best í tímasetningum. Þetta slær næstum því það út þegar eitrinu var sprautað í tærnar á mér í vor, tveimur dögum fyrir frumsýningu á Jesus Christ Superstar þar sem ég þurfti nota bene að vera í þröngum sandölum allan tímann.

Annars var ég að koma úr fyrsta skriflega prófinu mínu í HÍ, sem var próf í heimspekilegum forspjallsvísindum. Held ég hafi rúllað því upp þrátt fyrir stress og millirifjagigt, húrra fyrir því. Ég ætla núna að fara og kynnast nýja besta vini mínum betur, honum herra Íbúfen. Ég og herra Íbúfen ætlum sem sé undir sæng núna að styrkja vináttu okkar, vinsamlegast ónáðið ekki…

Martraðir

Wednesday, December 6th, 2006

Steinunn og Helgi Vilberg að hengja upp jólaseríu saman…

…það er svona eins og Einstein og Paris Hilton saman í liði í ratleik.
………………………………………………………………………………………………………………

Martraðirnar halda áfram og ég kenni því svakalegasta prófstressi sem ég nokkurn tíman upplifað, algerlega um að eiga sök á því. Í nótt dreymdi mig að vísu ekki að verið væri að reyna að myrða mig eins eða að ég gæti ekki andað eins og í gær. Í stað þess vaknaði ég um miðja nótt í polli af blóði, svita og tárum. Ég var s.s. rennblaut af svita alls staðar á líkamanum, það blæddi úr sári á öxlinni á mér svo kominn var stór blóðblettur í rúmfötin og mér leið hreint út sagt ömurlega. Ég dröslaðist svefndofin fram á klósett og þvoði mér hátt og lágt, losaði mig við náttfötin, sneri sænginni með blóðblettnum við (því það var ekki séns að ég nennti að skipta um rúmföt) og sofnaði aftur eftir skamma stund. Ég var samt allt annað en hress í morgun eftir svona nætursvefn. Ætlaði að reyna að redda því og fá mér lúr um miðjan daginn, en rétt í þann mund sem ég var að sofna, kom þá ekki bréfberi og vakti mig með því að hamast við að troða inn um bréfalúguna kapítalískum jólarúmatalagerssnepli. Djöfull hata ég jólamarkaðssetningu!

Fyrsta prófið

Tuesday, December 5th, 2006

Ég fór í fyrsta prófið mitt í Háskólanum í morgun.
Það var próf í færni táknmáls, það er nokkurs konar “munnlegt” próf.
Ég hélt ég myndi æla af kvíða (tek fram að ég kann að segja “æla af kvíða” á táknmáli).
Prófið gekk sæmilega, nema ég gat ekki haldið augnkontakti því ég var að lesa á blaðið, ég þori ekki að hugsa til þess hvernig orðaröðin var hjá mér og ég hef ekki hugmynd um hvernig munnhreyfingarnar voru. Svo held ég að ég hafi klúðrað próformunum.
En ég kunni öll orðin nema “Garðabær” og var með líkamsskiptingarnar réttar. Það er þó ágætt.
Þegar ég kom heim var ég í svo miklu spennufalli að ég lagði mig og mig dreymdi eintómar martraðir. Er fyrst að jafna mig núna, mörgum klukkutímum síðar.
Ég ber samt vonir til þess að prófið í Heimspekilegum forspjallsvísindum verði skárra. En djöfull verð ég fegin þegar þessi próftíð verður búin.

Hetja

Monday, December 4th, 2006

Ég á ekki orð yfir það hvað mér finnst Gestur Svavarsson frábær.
Sjá þessa flottu yfirlýsingu.

Sigur!

Sunday, December 3rd, 2006

Auði á Alþingi!

Úrslit forvalsins eru fjandi flott.
Konur eru 58% af efstu 12, leiða tvo lista af þremur og við náðum inn þremur ungliðum í þennan góða og flotta hóp. Svona á að gera þetta!

Og svo lítur listinn í Suðurkjördæmi líka vel út.