Archive for January, 2007

Hruninn heimur

Wednesday, January 31st, 2007

Heimurinn hrundi ofaná mig í gær.
Ég sendi kveðju mína innan úr rústunum.

Crazy, I’m crazy for feeling so lonely
I’m crazy, crazy for feeling so blue
I knew you’d love me as long as you wanted
And then someday you’d leave me for somebody new

Worry, why do I let myself worry?
Wond’ring what in the world did I do?
Crazy for thinking that my love could hold you
I’m crazy for trying and crazy for crying

And I’m crazy for loving you

Crazy for thinking that my love could hold you
I’m crazy for trying and crazy for crying
And I’m crazy for loving you.

Ástæður fylgishruns

Monday, January 29th, 2007

Ekki stendur á útskýringum Samfylkingarmanna vegna sorglegs fylgistaps flokksins, sem mælist nú með 20%:

Stefán Jón kennir “kaffibandalaginu” (þreyttasta hugtaki í pólitískri umræðu í dag) um,
Svanfríður Jónasdóttir kennir daðri við Sjálfstæðisflokkinn um
og Ingibjörg Sólrún segir að Samfylkingin sé bara of pólitísk, sem hlýtur náttúrulega að vera höfuðsynd hvers stjórnmálaflokks.

Er það furða þó að Jón Baldvin sé orðinn órólegur og vilji yfirgefa sökkvandi skip með stofnun nýs framboðs?

Tvær góðar

Sunday, January 21st, 2007

Þetta er nýja uppáhaldsleikkonan mín, hún Abigail Breslin. Hún leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Little Miss Sunshine sem ég mæli með að þið farið og sjáið, alveg eins og Elli gerir. Með betri myndum sem ég hef séð á allri minni hunds og kattar tíð.

Og fyrst ég er að mæla með myndum á annað borð, þá horfði ég í annað skiptið á House of Flying Daggers um helgina og rifjaði upp hversu frábær mynd það er. Og auk þess er aðalleikarinn svo myndarlegur að það ætti næstum því að vera ólöglegt…

Einkunnir o.fl.

Wednesday, January 17th, 2007

9, 7.5, 9, 8, 9
Þetta voru einkunnir haustannar. Þær eru loksins allar komnar og þar af leiðandi námslánin líka. Hamingja, hamingja!

Lenti í ansi skemmtilegri gallup-könnun rétt áðan þar sem ég gat m.a. tjáð mig um andúð mína á reyktu svínakjöti og mikilvægi þess að setja fleiri konur á íslenska peningaseðla. Svo var ég spurð hver væri uppáhaldsskáldsagan mín, íslensk eða erlend. Vill einhver giska?

Háskólapólitík

Friday, January 12th, 2007

Skólinn er byrjaður á ný eftir jólafríið. Þegar ég labbaði inn í kaffistofuna í Aðalbyggingunni blöstu við mér fréttablöð tveggja hreyfinga af þeim þremur sem bjóða fram lista í kosningum til stúdentaráðs, Röskvu og Vöku. Þriðja hreyfingin er svo Háskólalistinn. Hér eru nefnilega ekki einstaklingskosningar eins og til stjórnar nemendafélagsins í MA, heldur er kosið um lista eins og gerist í alvöru pólitíkinni. Mér hefur skilist að starf innan hreyfinga þeirra sem bjóða fram til stúdentaráðs sé í mörgum tilfellum stökkpallur fyrir starfsvettvang í landspólitík, alla vega er hægt að rekast ansi oft á sömu nöfnin á báðum vígstöðvum.

En ég velti því fyrir mér hvort mér þyki það kostur að framtíðarstjórnmálamenn landsins starfi innan þessara hreyfinga. Að þeirri niðurstöðu kemst ég eftir að hafa lesið flest fréttablöð sem hreyfingarnar Vaka og Röskva hafa gefið út, en þær eru óneitanlega stærri og meira áberandi en Háskólalistinn sem ég hef ekki enn séð nokkur staðar.

Fréttablöðin sem um ræðir segja litlar fréttir. Þetta eru meira svona auglýsinga- og montsneplar. Þar mikla hreyfingarnar sig af verkum sínum (og láta eins og heiðurinn sé allur þeirra, og bara þeirra) eða bara því að eiga fulltrúa í ýmsum nefndum. Eflaust standa þessir fulltrúar sig vel í sínu starfi, en mér finnst ekkert merkilegt að hvor hreyfingin um sig eigi fulltrúa í nefndum sem sinna starfi sínu. Mér finnst það mjög eðlilegt og óþarfi að taka það fram í hverju einasta blaði, tvisvar (þessu er sérstaklega beint að Röskvu)!

Á forsíðu Röskvufrétta minnast Röskvuliðar Meðmælanna sem haldin voru í október til að hvetja til hærri fjárframlaga til HÍ. “Fréttin” er birt í tilefni þess að nýlega fékk HÍ aukafjárveitingu, sem er æði. Í fréttinni segir: “Eins og flestir muna stóðu Stúdentaráðsliðar Röskvu fyrir glæsilegum meðmælum í október síðastliðnum [...]“. Þarna eignar Röskva sér heiðurinn af öllum Meðmælunum og afrakstri þeirra. Vel getur verið að hugmyndin sé frá þeim komin. En persónulega fannst mér útfærsla hugmyndarinnar léleg, mætingin á meðmælin var gróflega ýkt (ég var þar, ég veit það) og síðast en ekki síst, þá voru þau haldin í nafni Stúdentaráðs. Ekki Röskvu. Ég myndi því varla monta mig af þessum meðmælum.

Það fáránlegasta sem ég rakst á í þessum sneplum var eftirfarandi:
Röskvufréttir: “Röskva hefur haldið uppi síðunni Próf.is undanfarin misseri, [...]”
Vakandi, málgang Vöku: “Hægt er að fylgjast með einkunnaskilum kennara á heimasíðunni www.prof.is sem Vökuliðinn Björn Patrick Swift á veg og vanda að”.

Af hverju segja þau bara ekki eins og er, að þau geri þetta saman? Hvaða fávitaháttur er það? Sem kjósandi krefst ég þess að mér séu veittar réttar og fullnægjandi upplýsingar, ekki bara montyfirlýsingar! Verð ég að skila auðu í kosningum til stúdentaráðs af því að tvær fylkingar láta eins og smákrakkar og ein er ósýnileg?

Mútur?

Wednesday, January 10th, 2007

Hjörleifur Hallgríms, fyrrverandi ritstjóri Vikudags á Akureyri, hefur boðist til að leggja fram tvær miljónir króna í hússjóð framsóknarfélaganna á Akureyri, verði hann kosinn í 3. sætið á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningar í vor. Hann hafnar því að um mútur sé að ræða.

Ég skil ekki að hann hafi þurft að taka það fram, þetta er nú svo augljóslega eins fjarri því að vera mútur og hægt er…

Um dagdrykkjukonuna hana móður mína, og fleiri fylgifiska sveitasælunnar

Sunday, January 7th, 2007

Ég hef tekið ástfóstri við öfuga stafrófsröð eins og sjá má…

Núna er ég í Skagafirðinum að vinna fyrir mér sem fjósakona og berjast við að klára jólasmákökurnar. Vegna þeirra hamfara sem móðir mín sýndi í jólabakstrinum virðist sú barátta vera töpuð og ég enda með að þurfa að taka þær með mér suður. Fjósakonudjoppið er ágætt þó ég sé orðin svolítið leið á því að hafa meiri samskipti við kýr en menn og ég þjáist að stöðugum rasskulda og nefrennsli í fjósinu, enda kuldaskræfa mikil. Hver kýrin á fætur annarri er með kálfsóttina og er þriðji kálfurinn í vikunni á leiðinni nú í þessu. Ég rifjaði upp gamla takta og togaði einn út á fimmtudaginn og það var sóðalegt en skemmtilegt.
Sindri og Þórunn eru farin á Akureyri til að þreyta próf í MA, þannig að það eru bara gamla settið, ég og Jórunn systir í heimili. Okkur Jórunni kemur ágætlega saman, svona svipað og páfanum og djöfladýrkendum, og hef ég mikið gaman af því að reyna að henda henni í klósettið. Hún virðist samt því miður vera að byrja á gelgjuskeiðinu sem þýðir 6 ára útlegð fyrir mig.
Mamma keppist við að lofa köttinn, sem virðist vera orðinn valdamesti aðilinn á heimilinu, alla vega getur hann stolið sætinu mínu við kvöldverðarborðið án þess að nokkur nema ég sjái eitthvað að því, auk þess að hann hefur rutt Sindra úr sessi og hertekið rúmið hans. Af yfirlýsingum móður minnar að dæma er þetta líklega eini kötturinn í heiminum sem segir mjá tilbaka ef einhver segir mjá við hann. “Sjáið hann svarar, hann er svo gáfaður”. Ég legg til að gáfukötturinn verði seldur í sirkus…
Faðir minn leggur mér einstaka sinnum lið við að formæla kettinum, en það er álíka mikill á bak við þær yfirlýsingar eins og yfirlýsingar hans um meinta dagdrykkju móður minnar. Hann kallaði á mig inní svefnherbergi um daginn og benti á pela af koníaki á náttborðinu hennar mömmu og talaði um þetta ógurlega ástand sem væri á dagdrykkjukonunni henni móður minni. Mamma komst að því að hann væri að kjafta og samkvæmt henni þá ráðlagði faðir minn sjálfur móður minni að fá sér koníak við hóstanum sem hún er með. Pabbi rölti glottandi í burtu, tautandi um dagdrykkjukonuna hana móður mína.
Að síðustu skal minnst á það að ég fór á tónleika með hinum frábæra karlakór Heimi í gærkveldi. Það var sérstaklega gaman þegar þeir tóku “Eftir gresjunni kemur maður”. Ég fór að hugsa til 16. júní og hlakka til!
Brottför til Reykjavíkur áætluð 10. jan. Ef einhver veit um far, hafðu samband.

Í tilefni þess að eitt ár er liðið frá upphafi ferðarinnar…

Saturday, January 6th, 2007

Little trip to heaven on the wings of your love
Banana moon is shining in the sky
I feel like I’m in heaven when your with me
I know that I’m in heaven when you smile
Though were stuck here on the ground
I got something that I’ve found, and it’s you
I don’t need to take no trip to outer space
All I have to do is look in your face
And before I know it I’m in orbit around you
Thanking my lucky stars that I found you
When I see your constellation, your my inspiration
And it’s you
Your my North Star when I’m lost and feeling blue
Your my sun that’s breaking through, it’s true
And all the other stars seem dim around you
I thank my lucky stars that I found you
When I see your smilin face
I know nothing’ gonna take your place
And it’s you, and it’s you, and it’s you, and it’s you, and it’s you, and it’s you

Af feitum þjónum

Friday, January 5th, 2007

Valgerður Sverrisdóttir hefur það að segja um hvalveiðar Íslendinga að þær séu umdeildar, en Íslendingar hafi sem sjálfstæð þjóð ákveðið að hefja þær.

Það mætti kannski benda Valgerði á að sjálfstæði þjóðar þarf ekki að koma í veg fyrir að ráðamenn hennar taki skynsamlegar ákvarðanir.
Tíminn til að tala um sjálfstæði Íslendinga hefði frekar verið þegar að Bandaríkjamenn sögðust ætla af landi brott og skilja allt eftir í mengun og skít án þess að detta í hug að hreinsa til eftir sig. Þá hefði verið ágætt að sýna í verki sjálfstæði þjóðar sem lætur ekki trampa á sér heldur tekur skynsamlegar ákvarðanir varðandi framtíð sína.

En feitur þjónn er ekki mikill maður eins og meistari Laxness sagði. Af feitum þjónum er ekki mikils að búast.