Archive for February, 2007

Flutningar

Tuesday, February 27th, 2007

Ég flyt úr íbúðinni um helgina. Í einstaklingsíbúð í næsta húsi. Ég syrgi það ekki að yfirgefa þennan stað.

Fyrir tæplega hálfu ári, fyrsta morguninn minn í þessari íbúð, þá skar ég mig á beittum hnífi. Hann fór frekar djúpt inn í fingurinn minn og hefur örugglega skorist í gegnum einhverja taugaenda, því sársaukinn var mikill þó sárið virtist lítið. Ég var lengi að koma plástri á fingurinn og stöðva blæðinguna og var svo stressuð að þegar ég hafði komið plástrinum á fingurinn leið hreinlega yfir mig. Ég hné í fangið á Helga Vilberg sem gat ekki haldið mér uppi og lagði mig á gólfið. Það liðu 3 sekúndur. Þá stökk ég upp með augun ennþá lokuð og í öðrum heimi, með þvílíku veini að það hefði landað mér hlutverki í hvaða unglingahrollvekju sem er. Helgi tók mig í fangið en mér leið svo illa að ég öskraði bara á hann, reif mig lausa og hentist inná klósett þar sem ég kastaði upp.

Ég man að ég hugsaði í krampakastinu inná klósetti: “fall er fararheill”. Ég hélt að þetta yrði án alls efa versti dagurinn minn í þessari íbúð. Mér skjátlaðist.

Ég viðurkenni að ég hef hvergi verið jafn hamingjusöm og í þessari íbúð.

En mér hefur líka hvergi liðið jafn illa.

Nú bergmálar svefnherbergið af tóminu sem þar er. Veggirnir eru hvítir og kaldir. Og þegar ég kem heim þá eru ljósin alltaf slökkt.

Ég mun ekki sakna þessarar íbúðar.

……………..

Annars vantar mig kassa til að koma öllu dótinu mínu á milli íbúðanna. Lánsfúsir kassaeigendur mega hafa samband.

Today has been ok

Monday, February 26th, 2007

Friends tell me it’s spring
My window show the same
Without you here the seasons pass me by
I know you were not new
That loved like me and you
All the same I miss you
But today has been ok
Today has been ok

Emiliana Torrini

Eins og fönixinn rís sem nýr úr rústum sínum…

Yfirlýsing höfundar

Monday, February 12th, 2007

Kæru lesendur

Þið eruð að mínu mati allt of góð til að lesa væmnar og niðurdrepandi tilvitnanir úr ástarsorgar- lögum og ljóðum margar færslur í röð og því hef ég sleppt því að blogga í tæpar 2 vikur núna. Það er líka gert í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að ég segi eitthvað á opinberum vetvangi sem ég á eftir að iðrast seinna meir. Því miður er staðan lítið breytt frá því fyrir um hálfum mánuði síðan (mig langar enn bara að skrifa blogg sem þið eruð of góð til að lesa). Og því sé ég mér þann kost vænlegastan að hætta.

Orð í tíma töluð eru hér með lokuð í óákveðinn tíma, því að ég er upptekin við að láta lífið sparka í mig og tapa í störukeppni fyrir símanum mínum. Ég þakka stuðninginn og bið ykkur vel að lifa.

Að endingu vil ég leggja til að Ást er… teiknimyndasögurnar í Mogganum verði lagðar niður
af tillitssemi við tilfinningar mínar.

Steinunn Rögnvaldsdóttir

Ekkert

Thursday, February 1st, 2007

Megi þetta allt saman fara til fjandans.