Archive for May, 2007

Biturt blogg um Ísland á lista hinna viljugu og staðföstu þjóða

Friday, May 25th, 2007

“Ríkisstjórn Íslands harmar stríðsreksturinn í Írak”.

That’s it?

Eitt af fyrstu verkefnum Samfylkingarinnar þegar flokkurinn kæmist í ríkisstjórn átti að vera að taka Ísland af lista hinna viljugu þjóða. Því lýsti flokkurinn yfir í kosningabaráttunni.

Nú veit ég ekki með ykkur, en þegar ég er komin í kjörklefann hefur það meiri áhrif á val mitt hvar flokkar standa í mannúðarmálum heldur en hvort þeir ætla að hækka eða lækka skatta. Sumt er bara einfaldlega mikilvægara en annað. Mannréttindi eða skattamál?

Stríðið í Írak er hræðilegt blóðbað sem enn sér ekki fyrir endann á og hefur gert heiminn að hættulegri stað en hann var fyrir. Tilgangurinn með innrás USA í Írak var ekki að koma Saddam Hussein frá völdum, heldur var það eftiráskýring. Tilgangurin var að finna gereyðingarvopnin sem þar áttu að vera falin, sem svo reyndist vera kjaftæði, því í raun snýst þetta bara um völd og olíu og egóisma stríðsherra í USA sem saklaust fólk þarf að borga fyrir með lífi sínu. Frelsunarskýringin - að Bandaríkjamenn hefðu verið að frelsa þjóðina frá Saddam Hussein varð til þegar gereyðingarvopnin fundust ekki og Bandaríkjamönnum vantaði réttlætingu fyrir níðingsverkum sínum. Fyrir þá sem ekki eru inní málinu bendi ég t.d. á þessa grein og fleiri á Múrnum, en upplýsingar um Íraksstríðið má svo sannarlega finna víðar.

Stuðningur Íslands við Íraksstríðið var ákvörðun tveggja manna sem hvorki spurðu kóng né prest, og síðar kom í ljós að meirihluti þjóðarinnar var henni andvíg. Stuðningur Íslands við slátrunina í Írak, niðurbrjótandi einkahagsmunastríð Bandaríkjanna, hann er enn í fullu gildi.

Samfylkingin gaf eftir og ætlar ekki að sjá til þess að nafn Íslands verði tekið af lista hinna viljugu þjóða. Ríkisstjórnin sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis að þau hörmuðu stríðið, en hver gerir það ekki? Það var löngu vitað að Sjálfstæðismenn væru ekki það miklir skíthælar að þeir fögnuðu massívri slátrun saklausra borgara í Írak. Hitt er annað mál, að þeim er fokkin skítsama. En þeir eru þó ekki með partíhatta.

Samfylkingin segir þetta þó vera tímamótayfirlýsingu, og ver aumingjaskapinn með frösum í anda Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks: “Við skulum horfa fram á veginn, ekki vera föst í fortíðinni”.

Málið er að þetta er ekki fortíðin. Þetta er nútíðin og framtíðin. Í nútíðinni er íslenska þjóðin skráð á lista yfir þá sem að styðja blóðbaðið í Írak. Í framtíðinni verður íslenska þjóðin áfram á þessum sama lista vegna ræfilsdóms og siðleysis fyrrverandi og núverandi ríkisstjórnar.

Ég kaus eins og ég kaus til þess að breyta þessu. Og fjandinn hafi það, ég meira að segja hvatti fólk sem ég vissi að myndi ekki kjósa VG, til að kjósa Samfylkinguna, því þá væru alla vega líkur til þess að þessi skammarlegi stuðningur yrði afturkallaður og mannorð íslensku þjóðarinnar hreinsað. Svo vongóð var ég í hjarta mínu um að þetta væri þó mannréttindamál, og eitthvað sem ég og Kratarnir gætum verið sammála um.

Og hvað fæ ég? Hvað fær meirihluti þjóðarinnar sem er ósáttur við veru okkar á lista hinna staðföstu þjóða?

“Ríkisstjórn Íslands HARMAR stríðið í Írak”.

prump prump prump

hér er mitt svar:

Farið til helvítis kratalygaraaumingjar og sjálfstæðissiðleysingjar. Eða farið til Írak, þar má finna helvíti á jörð í boði Bandaríkjanna, með stuðningi Íslendinga.

Takk kærlega fyrir efndirnar,

fífl.

E.S. Lesið þetta, sérstaklega neðri færsluna. Eða ekki lesa þetta ef þið eruð viðkvæm. Mig verkjaði í hjartað að lestrinum loknum.

Typpapólitík í Sjálfstæðisflokknum

Thursday, May 24th, 2007

Í fyrradag lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir því yfir að Samfylkingin ætlaði sér að standa við landsfundarsamþykkt sína og gæta jafnræðis milli kynjanna á ráðherrastólum þeim sem flokkurinn fengi í sinn hlut. Lesirðu frétt sem slíka á fréttasíðunni mbl.is, er óhjákvæmilegt að þú rekist á athugasemdir meðlima alræmds þjóðfélagshóps sem í daglegu tali eru nefndir “Moggabloggararnir”. Ef þú stingur tánum í músagildruna, þ.e.a.s. freistast til að lesa moggabloggin, veltur yfir þig holskefla af þykjustujafnréttissinnum sem væla yfir þessum yfirlýsingum Ingibjargar Sólrúnar. “Hvaða kynjakjaftæði er þetta eiginlega? Hæfasti einstaklingurinn á auðvitað að hljóta ráðherrasæti, burtséð hvers kyns hann er!” baula bloggararnir eins og sauðnautin sem þeir eru.

Fátt hefur hins vegar heyrst frá þessum moggabloggurum um rassinn sem vermir ráðherrrastól heilbrigðisráðuneytisins. Sá er í eigu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, stjórnmálafræðings sem hefur aðallega starfað hjá fjármálafyrirtækjum og hefur lítil afskipti haft af heilbrigðismálum fyrir utan setu í umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur 1998-2002. Guðlaugur hefur setið á þingi frá árinu 2003. Með því að skjóta ráðherrastólnum undir rassinn á Guðlaugi er augljóslega verið að ganga framhjá hæfari einstaklingi innan Sjálfstæðisflokksins, Ástu Möller. Ásta er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur unnið sem slíkur á Borgarspítalanum, auk þess að gegna þar stjórnunarstöðum. Hún hefur ennfremur kennt hjúkrunarfræði og gegnt formennsku Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún hefur setið í fjölmörgum nefndum og ráðum um heilbrigðismál og lagt á þau áherslu sem alþingiskona, sem hún hefur verið frá árinu 1999 utan 2003-2005.

Konur eru 1/3 þingflokks Sjálfstæðiflokksins en hins vegar er einungis ein Sjálfstæðiskona ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Af sex ráðherrastólum mega Sjálfstæðiskonur gera sig góðar með einn, og þurfa að horfa upp á það að gengið sé framhjá hæfri konu fyrir ekki eins hæfan karl. Sú réttlæting að Guðlaugur Þór fái ráðherrastól vegna þess að hann leiði lista stenst ekki þegar að litið er til þess að fyrstu þingmenn NV-kjördæmis og NA-kjördæmis fá hvorugur ráðherrastól. En maðurinn sem 18% kjósenda Sjálfstæðismanna strikuðu út og endaði í þriðja sæti á sínum lista, Björn Bjarnason, situr sem fastast á sínum stól.

Það er ljóst að formaður Sjálfstæðisflokksins hefur gengið framhjá hæfasta einstaklingnum í þessu tilfelli og það er typpalykt af þessu máli. Súr, ógeðsleg typpafýla. Og þykjustujafnréttissinnarnir þegja, því það hentar þeim ekki að tala illa um það þegar að körlum er hyglt á kostnað kvenna, heldur bara þegar um er að ræða aðgerðir sem miða að raunverulegum jafnrétti kynjanna. Ég vona hins vegar að Sjálfstæðiskonur sýni nú dug og þegi ekki, heldur mótmæli þessum ömurlegu vinnubrögðum. Því ef það er hæfasti einstaklingurinn sem að fær það sem hann á skilið hjá Sjálfstæðisflokknum, þá er það augljóst mál að það er orðinn afskaplega eftirsóttur hæfileiki að vera með typpi, og þá er spilið tapað fyrir konur innan Sjálfstæðisflokksins.

(þessi grein birtist á vinstri.is í gær).

Þegar ballið var búið…

Friday, May 18th, 2007

Þegar ljósin voru kveikt og tónlistin hljóðnuð, varð ballgestum það ljóst að þeir höfðu allir verið blekktir. Þeir höfðu ekki verið að þreifa á því sem þeir héldu, tangóinn hafði verið stiginn við annan dansfélaga heldur en þeir hugðu, og þegar þau sáu framan í hvort annað þá varð þeim skyndilega ljóst hvaða hörmungar höfðu átt sér stað.

Sætasta stelpan hafði beilað á ballinu.

Tunguhnútar voru losaðir, tár glitruðu á hvarmi og vonbrigðin leyndu sér ekki. Sumir fóru heim einir þetta kvöld, einum var boðið í þrísom, hann afþakkaði pent. Aðrir tóku með sér eitthvað heim sem var ekki sætasta stelpan en gat svosem gert sama gagn.

Það verður þó ekki frýnilegt að vakna með það við hliðina á sér.

Samviskubitni Kratinn

Friday, May 18th, 2007

Samviskubitinn Krati sást á vappi í miðborg Reykjarvíkur í dag, nánar tiltekið við Suðurgötu 3 þar sem hann hljóðaði og barmaði sér og grýtti steinvölum í kosningaskrifstofu Vinstri-grænna, sem er þar til húsa. Hann sást síðast sitjandi við Tjörnina með tárin í augunum, sönglandi “Heaven is a place on earth”.
Auglýst er eftir forráðamönnum Kratans og þeir vinsamlegast beðnir um að útskýra fyrir honum að í raun hafi vinstristjórn aldrei verið í boði, svo það sé óþarfi að gráta yfir því…

Ný staða

Thursday, May 17th, 2007

Jæja.
Typpagegnið hans Halldórs hefur sem sé ekki fengið sitt fram. Ég spái því að það sé lífbjörg Framsóknarflokksins.

Nú hefur Samfylkingin öll tromp á hendi. Ef hún myndi virkilega vilja það gæti hún meira að segja reynt að mynda vinstristjórn, þar sem að bæði Framsókn og VG hafa haldið þeim möguleika opnum. En ef hún reynir ekki, þá verður seint hægt að segja að það hafi verið VG sem klúðraði vinstristjórninni (sbr. síðasta blogg).

Það verður Samfylkingin sem fær heiðurinn af því.

Og þá er spunaskýringin hans Óla sjálfsagt rétt.

En spyrjum að leikslokum…

Trölli stelur Vinstri-stjórninni…

Thursday, May 17th, 2007

Ég held að þær raddir sem hæst bylur í um að VG sé að ýta möguleikanum á vinstristjórn útaf borðinu með “árásum” á Framsókn, hafi aldrei lesið bloggið hans Binga eða blogg annarra Framsóknarmanna yfir höfuð, hvort sem er í kosningabaráttunni sjálfri eða eftir að úrslit kosninga urðu ljós.Ekki það að ég sé að hvetja fólk til að lesa bloggið hans Binga, það væri eins og að hvetja fólk til að stinga tánum í músagildru…
En klingir hugtakið “Sjaldan veldur einn þá tveir deila” einhverjum bjöllum í hausnum á ykkur?

Það er álíka mikið til í þessum rógburði og því að jólakötturinn sé til. En spunameistararnir una sér ekki hvíldar.

Magnaður viðsnúningur

Thursday, May 17th, 2007

Ég veit ekki hvað ég var að hugsa! Auðvitað er það rétt hjá Birni Bjarnasyni, aðalatriðið er ekki að tæp 20% kjósenda Sjálfstæðisflokksins strikuðu hann út. Aðalatriðið er auðvitað að 80% kjósenda flokksins höfðu orð Jóhannesar í Bónus að engu!

Ég sé það alltaf betur og betur að þessar útstrikanir eru í raun stórsigur fyrir Björn…

Eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins viljalaus verkfæri?

Wednesday, May 16th, 2007

Nú komst ég í feitt!

Haldið ekki að blessunin hann Stebbi Fri hafi bara bloggað og komið persónulegri skoðun sinni á framfæri! Stórkostlegt undur! Og efnið enn betra…

(Glöggir lesendur geta séð að í síðustu færslu linkaði ég á blogg Hnakkusar um umræddan Stefán, en það blogg er eins og talað út úr mínu hjarta.)

Já, hann Stebbi tekur að sér að verja Björn Bjarnason í þessari færslu, og ítrekar nauðsyn þess að maðurinn sem yfir 2500 Sjálfstæðismenn strikuðu yfir, fái enn og aftur ráðherrastól. Að Stebba mati eru yfirstrikanirnar augljóslega til komnar vegna hvatningu Jóhannesar úr Bónus, sem ég held að geti að mörgu leyti verið rétt. Jóhannes vakti Sjálfstæðismenn sannarlega til umhugsunar um Björn Bjarnason með auglýsingu sinni daginn fyrir kosningar. Ég held að Stebba væri nær að þakka Jóhannesi fyrir að birta áberandi auglýsingu þar sem hann hvetur fólk til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Ég er ekki í nokkrum vafa að það hefur skilað sér. Vissulega vekur þetta upp spurningar um hvað auðmenn og auðhringir mega gera til að hafa áhrif á lýðræði. Það hefði verið fróðlegt ef Stebbi hefði sagt eitthvað um kosningabaráttu Alcan í Hafnarfirði fyrir deiliskipulagskosninguna umdeildu í vor…

En það sem slær mig varðandi þessa færslu, er að Stebbi virðist gera ráð fyrir að kjósendur Sjálfstæðismanna séu meira og minna viljalaus verkfæri sem í blindni hlýða skipunum Jóhannesar í Bónus án þess að pæla í því hver skoðun þeirra á Birni er. Ég hélt að það væru bara vinstrimenn sem stundum héldu því fram að Sjálfstæðismenn væru upp til hópa íhaldsamir ræflar og hefðu engar málefnalegar ástæður fyrir að kjósa eins og þeir gera. Nei, þeir halda þetta greinilega sjálfir, alla vega Stebbi Fri.

En ég verð bara að taka upp hanskann fyrir Sjálfstæðismenn hérna. Ég var að telja atkvæði á kosninganótt í Reykjavík Suður, kjördæmi Björns Bjarna. Ég sá útstrikanirnar, og tilfinningarnar sem á baki þeim lágu. Sumir virtust næstum því hafa handleggsbrotið sig í útstrikunarmetnaði, það var oft svo illilega krassað yfir nafn Björns að það var næstum krassað yfir næsta nafn á listanum líka. Það var ekki skoðanalaust fólk sem var þarna á ferð.

Er rétt að virða ekki skoðanir 18% kjósenda flokksins (og þá erum við bara að tala um þetta kjördæmi)? Og hvað er það sem segir að þau séu öll að hlýða Jóhannesi í blindni, er Stebbi alvitur? Hneikslanleg aðför Björns að Jóhannesi og fjölskyldu er ekki það eina sem Björn Bjarna hefur gert af sér í gegnum árin. Sem dæmi má nefna að hann braut nú jafnréttislögin á síðasta kjörtímabili, sjálfur dómsmálaráðherrann. Kannski það séu pirraðar Sjálfstæðiskonur sem eru að fella Björn um eitt sæti? Kona spyr sig…

Ég veit það ekki, kannski eru Sjálfstæðismennirnir bara svona fyrir norðan hjá Stebba. Viljalaus verkfæri upp til hópa? Ekki þó fyrrverandi tengdapabbi… en hann er kannski einn af fáum.

Stjórnarmyndunin búin?

Tuesday, May 15th, 2007

Jæja, flest virðist benda til þess að valdasjúka typpagengið hans Halldórs sigri í innanbúðarátökum Framsóknar. 4 ár í viðbót, til hamingju Ísland, þetta kaustu. Þ.e.a.s. 48% af þér. Já og til hamingju Framsókn, ætli þetta verði ekki síðasti líkkistunaglinn.

Gefið að stjórnarflokkarnir kippi ekki Frjálslyndum inní samstarfið, þá mun stjórnin sem sé halda á einum einasta þingmanni, og hefur hver þingmaður stjórnarflokkanna því í rauninni algert neitunarvald. Það er í einu orði sagt óhugnalegt að hugsa til þess hvað Árni Johnsen getur gert með slík völd…

Svona til að lífga upp á daginn, vil ég benda á þessa færslu. Stundum veit maður alveg hvað maður vill segja, en kemur ekki alveg orðum að því. Þá er maður oftar en ekki svo heppinn, að Hnakkus er búinn að segja það fyrir mann.

Hér er líka dásamleg samlíking.

Mæli með þessu:
Volta - nýjasti diskurinn hennar Bjarkar
Sail to the Moon - með Ampop
Neon Bible - Arcade Fire

Ópólitískt…

Tuesday, May 15th, 2007

Mamma, ekki lesa þetta blogg…

Það er alger snilld að búa í húsi með um (a.m.k.) 130 ungmennum. Nú hefur það gerst alloft þegar ég kem heim, svolítið seint á kvöldin, að ég heyri eitthvað eins og eftirfarandi berast út um glugga þegar ég geng inn í bygginguna:

“Oh, oh, ó guð, ég elska þig, oh, oh…”

Þetta finnst mér ekki lítið fyndið, og ég samgleðst vegna allrar þeirrar ástar sem umvefur Eggertsgötu 24. Ég velti því þó fyrir mér, hvort þetta séu bara íbúar framhliðar hússins sem séu svo ástleitnir. Ég er að hugsa um að prófa að ganga inn hinum megin næstu daga til að kanna hvort þetta sé staðbundið…

Tekið skal fram að ég er ein þeirra sem á íbúð á framhlið hússins. Hún er hins vegar á fjórðu hæð. Þannig að sýnileg (ja það er að segja heyranleg) þátttaka mín í ástleitninni hlýtur að þurfa að grundvallast af a) opnum glugga, og b) stórglæsilegri frammistöðu. Hvort tveggja möguleikar sem eru fyllilega raunhæfir…