Til hamingju með daginn!
Fyrir 92 árum fengu íslenskar konur kosningarétt. Í dag er þessi merki áfangi rifjaður upp og honum fagnað, á meðan litið er til framtíðar og íhugað hvernig gera megi hana betri fyrir okkur öll, því það er jú bæði karla og kvenna hagur að jafnrétti ríki í samfélaginu.
Bleiku steinarnir, áminningarverðlaun feministafélagsins, voru í dag afhent þingmönnum NV-kjördæmis. Í NV-kjördæmi, mínu kjördæmi, eru allir þingmennirnir 9 karlkyns. Það er synd og skömm að hjá engum stjórnmálaflokki (nema Íslandshreyfingunni) hafi kona leitt lista í kjördæminu. Það á við um minn eigin flokk líka. En áberandi illa stendur Sjálfstæðisflokkurinn sig, sem á 3 karlkyns þingmenn í kjördæminu. En við hverju er að búast frá flokknum sem á formanninn sem talar um “sætustu stelpuna á ballinu og aðra sem gerir sama gagn” og “konurnar í Byrginu sem hefðu hvort sem er orðið óléttar” ? Sjálfstæðismenn geta ekki einu sinni skellt skuldinni á prófkjör, það var stillt upp á þennan lista. Enn eitt dæmi um sinnuleysi Sjálfstæðismanna um jafnrétti, og verulega slæmt fordæmi.
Fjölmiðlar fengu bleiku steinana í fyrra og hafa staðið sig ágætlega í dag a.m.k. Mogginn og Vísir eru bleikir, RÚV stóð sig ágætlega í umfjöllun um daginn og þessa merkilegu rannsókn (og ekki óvæntu niðurstöðu hennar), og í DV er mikil áhersla lögð á jafnréttismál. Eitthvað minna er um þau í Fréttablaðinu, en á þau er þó minnst. Í annars ágætum leiðara Fréttablaðsins segir samt Páll Baldvin Baldvinsson að “konur forðast þáttöku í sveitarstjórnum”, en ekki veit ég hvaðan hann hefur rökin, það væri gaman að sjá þau. Við þetta má bæta að hlutfallslega fleiri konur sitja í sveitastjórnum heldur en á Alþingi, þ.e.a.s. 36% sveitastjórnamanna eru konur, en prósentutala kvenna á Alþingi er um 32%.
Ég klæddi mig í bleikt í dag og samtvinnaði sögukennslu og heilsubót með því að taka þátt í kvennasögugöngu um Þingholtin í dag. Nældi mér líka í blaðið 19. júní og sá þessa auglýsingu á baksíðunni, sem mér fannst svo töff að ég varð að birta hana (ekki síst fyrir fólkið sem elskar blogg með myndum).

Stærri mynd hérna.
—————————————————————————
Annað sem ég vil koma að:
Bíladagar á Akureyri um síðustu helgi
=
Vond hugmynd - megi sá sem hana fékk vera keyrður niður af reykspúandi illa keyrandi slagsmálahundum í hættulegri spyrnukeppni. He brought it on him self…
Mér fannst það fremur skítt að þurfa vakta garðinn minn aðfara nótt 17. júní vegna ruslalýðsins sem streimdi í miðbæinn. Voru tveir gripnir glóðvolgir sem vildu nýta sér (að þeirra sögn) almenningsklósettin í garðinum mínum. Merkilegast er þó að aldrei hef ég litið á trjárunnana mína sem klósett. Kannski vegna þess að fyrir aftann húsið (20 m. í burtu) eru 4 mjög hreinleg og áberandi almenningsklósett á vegum sorpu.
Ógeðisfólk!