Archive for July, 2007

Fyrst hernaðaraðstoð, svo friðarráðstefna

Tuesday, July 31st, 2007

Í fréttunum í kvöld var greint frá því að Bandaríkin ætli að leggja fram jafngildi 3900 milljarða króna í hernaðaraðstoð til nokkurra ríkja í Mið-Austurlöndum.

Í frétt ríkissútvarpsins sagði svo orðrétt:
“Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Robert Gates varnarmálaráðherra eru nú á ferðalagi um Mið-Austurlönd. Tilgangur ferðarinnar er að sameina bandamenn Bandaríkjanna gegn Írönum, Sýrlandi og Hizbollah-samtökunum, og jafnframt afla stuðnings við friðarráðstefnu Mið-Austurlanda síðar á þessu ári.”

Sem sé: Fyrst safna þau liði og kaupa fullt af morðtólum og drasli handa félögum sínum fyrir óheyrilega mikinn pening sem gæti án efa bjargað milljónum mannslífa ef honum væri eytt í bóluefni, mat eða önnur hjálpargögn handa bágstöddum, að við tölum ekki um ef hægt væri að kenna veslings fólkinu að lesa…
Og SVO ætla þau að halda friðarráðstefnu! Er ekki í lagi?

Ég á ekki orð til að lýsa vanþóknun minni. Mynd ætti að bjarga því…

Á ferð um Norð-austurland

Friday, July 27th, 2007

Ævintýri okkar Ingu Völu í myndum og máli:

IV%20me%C3%B0%20%C3%ADs.jpg
Inga Vala gæðir sér á ís í Holtsseli, en það er bóndabær í Eyjafjarðarsveit (örskammt frá Hrafnagili) þar sem ábúendurnir búa til ís á hlöðuloftinu. Og svona líka rosalega góðan ís! Mæli hiklaust með því að fólk skelli sér í Holtssel og bragði ísinn, þau bjóða meira að segja upp á bjórís!

%C3%A9g%20vi%C3%B0%20Go%C3%B0afoss.jpg
Við söfnuðum fossum í ferðinni, hér er ég við Goðafoss.

saman%20vi%C3%B0%20Go%C3%B0afoss.jpg
Frá Goðafossi lá leiðin í Mývatnssveit þar sem við fórum í jarðböðin, og er óhætt að mæla með þeim líka. Á leiðinni fundum við segulbandsspólu með gömlum júróvisjónlögum í bílnum, sem Inga Vala sver að sé ekki komin frá henni. Þrátt fyrir að við höfum haft mjög gaman að spólunni og hlustað á hana aftur og aftur, átti ég ekki til orð yfir smekkleysinu, og þá er ég að sjálfsögðu að tala um það hneiksli að á spólunni var greinilega tekið yfir “Nei eða Já” og í staðinn hljómaði “Karen, Karen”. Þvílík hneisa, “Nei eða já” er augljóslega betra júróvisjónlag…
(Ath. ég minni á að hér má lesa um mitt raunverulega álit á júróvisjón).

IV%20og%20Private.jpg
Inga Vala dissar skilti í Mývatnssveit.

%C3%A9g%20og%20k%C3%BDr.jpg
Ég við skiltið sem bendir heim að Vogafjósi, sveitaveitingahúsi sem við Inga Vala snæddum kvöldverð á, og þar tókst Ingu Völu að læsa lyklana inní bílnum!
Að sjálfsögðu hélt ég ró minni við þær fregnir að líklega þyrftum við að staldra lengur við í Mývatnssveit heldur en við ætluðum. Enda er ekki hægt að vera reið við Ingu Völu, hún er svona manneskja sem að reynir að laga blómin sem hún stígur óvart á. Alla vega, við hringdum í Húsavíkurlögregluna, sem svaraði okkur í annarri tilraun. Þeir sögðust ætla að hugsa hlýlega til okkar. Við það létti okkur náttúrulega gríðarlega, og við bara skelltum okkur aftur inná veitingastaðinn og fengum okkur köku og slökuðum á.
Svona í alvöru, þá hringdum við í Óla, bróður Ingu Völu, sem að lagði af stað frá Akureyri með aukalykilinn. Til að drepa tímann fórum við í göngutúr. Þegar að Óli hrindi og sagðist alveg vera að koma, héldum við aftur í fjósið. Þegar við gengum inn rétti afgreiðslukonan okkur lyklana að bílnum. Þá hafði Húsavíkurlögreglan eftir allt látið sjá sig og náð lyklunum úr bílnum. Við íhuguðum alvarlega að læsa þá aftur inní bílnum til að komast hjá því að segja Óla að hann hefði keyrt frá Akureyri til Mývatns til einskis…

vi%C3%B0%20botntj%C3%B6rn.jpg
Þetta er svo í Ásbyrgi, þar sem við gistum eina nótt.

Dettifoss.jpg
Dettifoss bættist í safnið

minjasafni%C3%B0.jpg
Fyrir utan Þórshamar, minjasafn á Mánárbakka, Tjörnesi. Þar vöktu mesta athygli mína kjörseðlar sem fundust milli þils og veggja í gamla barnaskólanum á Húsavík ekki fyrir svo löngu. Seðlanir voru úr kosningunum ‘42 ef mig minnir rétt, voru alls á annað hundrað og á öllum var krossað við Jónas frá Hriflu…

%C3%ADs%20%C3%A1%20H%C3%BAsav%C3%ADk.jpg
Við stoppuðum á Húsavík til að fjárfesta í ís…

%C3%A9g%20vi%C3%B0%20Aldeyjarfoss.jpg
Síðasti fossinn og síðasti viðkomustaður, Aldeyjarfoss í Bárðardal. Að mínu mati fallegasti fossinn.

Hæðst að mansali

Thursday, July 26th, 2007

Nýlega birtist þessi grein eftir Silju Báru í Fréttablaðinu. Greinin fjallar um mansal og er ansi góð og áhugaverð, þó ekki sé umræðuefnið neitt gleðilegt.

Ég er því þaulvön að rekast á meinlegar, dónalegar og siðlausar athugasemdir við blogg, sérstaklega á moggablogginu og sérstaklega í garð feminista og umhverfisverndarsinna (ath, gæti verið af því að ég les svo mörg blogg hjá feministum og umhverfisverndarsinnum. Kannski fá stóriðjusinnar og karlrembur líka mörg dónaleg komment, ég veit það ekki…). Verst finnst mér samt þegar að gert er lítið úr alvarlegum vandamálum sem bæði varða einstaklinga og samfélag. Þess vegna blöskraði mér þegar að ég las færslu bloggara nokkurs um greinina hennar Silju, þar sem ekki einungis voru útúrsnúningar og rangfærslur um greinina, heldur var gert lítið úr því alvarlega vandamáli sem mansal er, hugsanlegu umfangi mansals á Íslandi og þörfinni á að rannsaka það og bregðast við vandanum. Að þessum mikilvægu málefnum var beinlínis hæðst. Hvers konar manneskjur gera svoleiðis lagað?
Bloggarinn sem um ræðir á ekki skilið að vera linkaður í tengslum við þessa færslu. Fólk er betur sett ef það kemst hjá því að lesa draslið sem frá honum kemur.

Endalok um nótt

Tuesday, July 24th, 2007

Og þar með er það búið, ég kláraði Harry Potter and the Deathly Hollows kl. 3 í nótt. Það gerist ekki oft, þó ég sé lestrarhestur, að ég láti bók ná slíkum heljartökum á mér að ég geti ekki lagt hana frá mér og lesi fram á miðja nótt. Það er kannski smá vísbending um hversu hrottalega góð bókin er. Ég er eiginlega strax farin að hlakka til að lesa allan bókaflokkinn aftur.
Njótið bókarinnar, þið sem eigið eftir að klára.

Sumarfrí

Monday, July 23rd, 2007

Sumarfrí. Útilega, endurfundir, sveitin mín og Harry Potter. Blogga seinna um allt þetta og sérstaklega um hin undarlegu samskipti okkar Ingu Völu við Húsavíkurlögregluna.

Sléttujárnið mitt virðist vera bilað. Ég er á barmi örvæntingar, og þetta áfall kemur aðeins rúmlega viku eftir að ipodinn minn varð leiður á lífinu og hætti að virka, mér til mikillar gremju. Veraldlegir hlutir eru hverfulir. Held ég neyðist til að raka af mér allt hárið og grafa upp gamla vasadiskóið. Held að það sé hér með sannað að tæki hata mig.

Vanmetið og vafasamt

Wednesday, July 18th, 2007

Ég held að teiknimyndasögur séu vanmetnar bókmenntir.
Ég er að falla fyrir þessum:

Svo er ég líka, auk Vefarans mikla frá Kasmír, að lesa þetta lærdómsrit:

Nema hvað að ég hef lítinn tíma til að lesa, er alltaf í vinnunni. Bót í því máli er að ég er loksins að upplifa vinnukarmað sem ég hef verið að bíða eftir síðan ég vann sem afgreiðsludama í Kaupfélaginu í Varmahlíð, klósettstoppi Íslands.
Vinnan mín er sem sé mjög fín, ég skaffa ágætlega, nýt ýmissa fríðinda (fæ til dæmis af og til ókeypis málsverð á flottum veitingahúsum) og ég er að vinna með skemmtilegu fólki. Vaktirnar eru samt 12 tíma langar, og ég er búin að skoða málið og komast að þeirri niðurstöðu að sunnudagsfyllerí með yfirvofandi mánudagsvakt sem hefst klukkan 8 um morguninn, er mjög vafasöm hugmynd. Hún er rosalega góð og skemmtileg alveg þangað til yfirmaðurinn hringir í þig 20 mínútum eftir að þú átt að vera mætt í vinnuna og spyr þig hvort þú ætlir ekki að mæta.

Þá svaraði ég:
“Ha? Öööö… Jájájájájájá, ég veit ekki hvað gerðist!”
Og það var heilagur sannleikur…

Um helgina ætla ég samt að taka mér frí frá vinnu og mun lenda hress og kát á Akureyrarflugvelli á fimmtudagskvöldið. Ætla í útilegu með Ingu Völu á föstudag en kem aftur á Akureyri á laugardag. Skelli mér svo í Skagafjörðinn á sunnudag og aftur suður á þriðjudag. Þetta er í grófum dráttum dagskráin, nú þurfið þið sem fyrir norðan dveljið bara að taka upp símann og bóka hitting, og ekki vera rög við það!

Þetta lag er ég búin að vera með á heilanum síðan á sunnudaginn.

Harry Potter og tvífararnir

Sunday, July 15th, 2007

Harry Potter og Fönixreglan er býsna góð mynd, en að sjálfsögðu er hún, eins og þær allar, alltof fjári stutt.

Tvífarar augnabliksins:


Hin geðþekka Dolores Umbridge

og


Íslenska útgáfan

Örstutt um kynjun tungumálsins

Thursday, July 12th, 2007

Nöldur dagsins:

Mér finnst það þversagnakennt, vond íslenska og leiðinleg áminning um kynjun tungumálsins að tala um “kvenkyns ráðherra”. Augljóslega er vitlaust að kalla konu herra. Af hverju ekki ráðfrú? Eða bara að breyta þessu í ráðskona og ráðsmaður? Alla vega þá er þetta ekkert nema kjánalegt í óbreyttu ástandi og ég tek ekki þátt í svona vitleysu…

Á hlöðuloftinu

Tuesday, July 10th, 2007

Í gegnum tíðina hefur ýmislegt verið brallað á hlöðuloftum sveitabæja landsins. Hlöðuloft nokkuð í Eyjafirði sker sig þó algerlega úr hópi annarra slíkra, þar sem að á þessu hlöðulofti er ekki að finna ilmandi hey, baðað í geislum sumarsólarinnar sem finnur veg sinn í gegnum glufur og gáttir og freistar þín til að láta fallast í mjúka breiðuna. Nei, á þessu tiltekna hlöðulofti er lítið um hey, en meira um ís!


Framhald hér

Að hugsa sér…

Monday, July 9th, 2007

Ég fyllist heimshryggð…

þegar ég hugsa til þess að það er til fólk í þessum heimi sem á svo bágt að það exjúlí hlustar á það sem Dr. Phil segir.

————————————————————————————————–
Platan:
Not a pretty girl með Ani Difranco

Besta lagið: Sorry I am