Archive for August, 2007

Garden State

Friday, August 24th, 2007

Líkaminn minn hrundi, ég er með verstu hálsbólgu ever plús hita og hausverk, og kúldrast því undir sæng uppí sófa, horfi á vídjó og hlusta á Led Zeppilin. Þetta væri ekki sem verst ef ég gæti exjúlí étið eða drukkið eitthvað án þess að finna til.
Horfði á Garden State (sem er fín mynd og ég skal viðurkenna það núna að Natalie Portman getur alveg leikið) áðan og þar kom fyrir besta pickup-lína sem ég hef heyrt lengi:

Stelpan: So uh, I gotta go bury this hamster before the dogs eat him… You wanna help?

Og þessu fylgdi ómótstæðilegt bros og strákurinn og stelpan enduðu að sjálfsögðu saman. Ah, rómantík, ég sakna hennar.

Jafnrétti

Tuesday, August 21st, 2007

Í fréttum er það einna helst að félagsmálaráðherra hefur sett á legg nýtt jafnréttisráð. Þar sem ég hef ekki komið því í verk enn að setja upp moggabloggssíuna sem kemur í veg fyrir að öll heimskulegustu blogg landsins komi óhjákvæmilega upp á skjáinn hjá mér í hvert skipti sem ég skoða mbl.is, kemst ég ekki hjá því að taka eftir sárindum nokkra karlmanna yfir að í jafnréttisráði séu 6 konur og 3 karlar.

Það liggur náttúrulega í augum uppi að í karllægu samfélagi, þar sem að karlar hafa nú sem áður meiri völd og hærri laun og eru síður fórnarlömb kynbundins ofbeldis og oftar gerendur og þar sem tungumálið er karllægt og gamaldags staðalímyndir kynjanna eru algengar og klámvæðing sem gerir lítið úr konum er á þessari blússandi siglingu og konur hafa það gott í vinnunni hjá Geira á Goldfinger þar sem þær fá að glenna sig naktar fyrir framan ókunnuga karlmenn fyrir skít og kanil og hjá stærsta stjórnmálaflokki landsins sem er í ríkisstjórn er 1 kona ráðherra á móti 5 körlum og konur eru ekki eins áberandi í valdastöðum og fá þar af leiðandi síður að tækifæri til að taka mikilvægar ákvarðanir fyrir samfélagið,
já þá liggur það náttúrulega í augum uppi að við þurfum að gæta þess að ekki halli á karlmenn neins staðar!

Auk þess er mikilvægt að við förum ekki of geyst í að minnka völd karlmanna á sviðum þar sem miðað er að því að ná fram fullkomnu jafnrétti. Þeir hafa jú staðið sig vel hingað til, framtíð mín og barna minna er björt, ég hef engu að kvíða með þessa kalla í brúnni. Guð blessi status quo!

Bíódagar

Wednesday, August 15th, 2007

Bíódagar Græna Ljóssins hljóma hrikalega spennandi.

Curse.jpg death.jpg goodbye_bafana.jpg goyas_ghosts_poster.jpg sicko1_large.jpg thebridgeposterbig.jpg deliver_us_from_evil.jpg shortbus_xlg.jpg

Ég veit ekki hverja mig langar mest að sjá; nýjustu mynd snillingssins sem gerði House of flying Daggers, mynd þar sem að George Bush er ráðinn af dögum, mynd sem rekur sögu fangelsisvistar Nelson Mandela og áhugaverðu sambandi hans við fangavörð sinn, áhugaverða mynd um Goya þar sem ég gæti gefið Natalie Portman enn eitt tækifærið til að sanna að hún sé ekki alveg vonlaus, myndina þar sem Michael Moore hakkar í sig heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna, að ég ímynda mér sláandi kvikmynd um þá sem velja Golden Gate brúna sem sinn hinsta viðkomustað áður en þeir kveðja lífið, myndina um kaþólska barnaníðinginn sem ég er ekki einu sinni viss um að ég hafi hjarta í að sjá eða eitthvað allsvakalega ögrandi og skemmtilegt frá skapara Hedwig and the angry Inch!

Það er náttúrulega alger óskhyggja að ég nái að sjá allar þessar myndir, en ef ykkur langar að sjá einhverja þessara kvikmynda og vantar bíófélaga þá væri ekki svo vitlaust að taka upp tólið og síma til mín. Ég er afskaplega þægilegur bíófélagi, nema ég hlæ hátt (á réttum augnablikum þó), krem hendur ef mér bregður og ét alltaf allt poppkorn sessunauta minna!
Það síðarnefnda var reyndar lygi…

Atómstöðin

Tuesday, August 14th, 2007

“Uppúr síðustu eiðum ráðherrans var hætt að ræða sölu landsins um skeið. Nú átti að bíða í ár og hafa alþíngiskosníngar um málið, en reyna á meðan að fá fulltrúa heimsveldisins til að lina orðalagið á umsókninni, biðja ekki um stöð til sóknar og varnar í atómstríði, heldur afdrep fyrir góðgerðaleiðángra sem kynnu að verða sendir á stað að sefa þjáningar evrópskra kynflokka.”

- Atómstöðin e. Halldór Laxness, skrifuð 1947.

Og 60 árum seinna þegar að herinn er loksins búin að drulla sér úr landi erum við ekki lengur svo ómerkileg að lúffa fyrir “fulltrúum heimsveldisins”, nei við göngum lengra. Við eyðum milljónum í að fá þá til að koma og æfa sig í að drepa fólk á landinu okkar. En það er náttúrulega enn einn góðgerðarleiðangurinn, eins og alltaf. Veifum þeim svo brosandi bless og óskum þeim góðrar ferðar til Íraks þar sem þeir geta vonandi haldið sér í æfingu blessaðir. Og rétt eins og ráðherran sagði að Ísland skyldi aldrei aldrei aldrei verða selt, þá segir ráðherran að Ísland sé herlaust land. Það var þá.

Einlífið góða

Monday, August 13th, 2007

Þórunn systir er í heimsókn hjá mér og hefur verið síðustu daga. Mér finnst það mjög gott að fá hana í heimsókn, það minnir mig á það hversu frábært mér finnst að búa ein. Lifi einlífið!
Þó skal tekið fram að Þórunn er mjög fyrirferðalítil manneskja, sem sýnir líklega hversu óumburðarlynd ég er orðin á þessum síðustu og verstu tímum…

————————————————————————————————————————–

Sníkjublogg er þegar einn bloggari finnur rosalega vel skrifuð og skemmtileg blogg og linkar á þau í stað þess að skrifa eitthvað skemmtilegt sjálf(ur). Lifi endurvinnslan!

Ég ætla að sníkja þetta flotta blogg og þetta snilldarblogg.

Og að lokum bendi ég á þetta.

21

Thursday, August 9th, 2007

Á afmælisdaginn minn…

er klukkunum hringt í Nagasaki.

Ást & fridur og þúsund þakkir allir sem sendu sms, hringdu og hittu mig í dag. Ég er heppin að eiga ykkur að.

Að hlaupa af mér hornin

Monday, August 6th, 2007

Þessa daga og vikur er ég önnum kafin við að hlaupa af mér hornin, enda ekki seinna vænna. Þrír dagar í tuttugastaogfyrsta afmælisdaginn og það má alltaf vona að ég vendi mínu kvæði í kross og fari að fullorðnast. Ætli það muni lækka í mér rostann, bjórútgjöld minnki, ég eyði verðandi frídögum í ástundun heilbrigðs lífernis, lestur merkilegra bóka og heimspekilegra umræður í stað þess að reika um í þynnkuþoku heilu og hálfu dagana? Nei nú fær móðir mín blessuð slag þegar hún les þetta. Þetta er allt í lagi mamma, ég er bara að hlaupa af mér hornin og þau virðast reyndar vera stærri en ég hélt…

þó þetta séu kannski ýkjur…

Drekar í vinnunni

Thursday, August 2nd, 2007

Ég segi draumfarir mínar ekki sléttar. Svaf harla lítið í nótt, þar sem ég var alltaf að hrökkva upp með andfælum og hélt í sérhvert skiptið að ég væri að verða of sein í vinnuna. Þegar ég náði að festa blund aftur dreymdi mig alltaf eitthvert sambland af vinnunni og einhverjum fönkí ævintýraheimi.

Það er öðru hverju allt í hers höndum í vinnunni og það er nóg að þurfa að kljást við það, án þess að þurfa að standa í svona rugli í draumheimum líka. Og þegar að mig er farið að dreyma úttjékkunarvesen og yfirbókanir og annað venjulegt rugl í vinnunni, nema hvað það eru líka drekar á svæðinu, þá er eiginlega farið að harðna ískyggilega mikið á dalnum…