Og verðlaunin fyrir að vera leiðinlegasta námsefnið hlýtur Max Weber!
Freyr kom á skriðdrekanum sínum og skutlaðist með mig í Bónus. Nú á ég mat og er búin að redda öllum jólagjöfunum (nema hálfri, skrepp útí bóksölu á næstu dögum og redda því). Fyrir þau sem vilja gefa mér jólagjafir eru tígris-svín, vörur frá Body-Shop, hlý ullarföt og lærdómsrit hins íslenska bókmenntafélags í sérstöku uppáhaldi. Nexus lumar líka alltaf á einhverju skemmtilegu.
Eftir þessa dauða-próftíð taka við stutt jól. 4 dagar í sveitinni og svo aftur suður að vinna og skrifa ritgerð. Áramótin verða sérstök, þetta verður í fyrsta skiptið sem ég verð ekki heima í sveit. Það er eiginlega frekar ömurlegt, sem setur aukna pressu á fólkið sem ég ætla að hanga með á gamlárskvöld, eins gott fyrir þau að vera skemmtileg.
Hins vegar er ég búin að panta mér flug til Akureyrar þriðjudagsmorguninn áttunda janúar. Ég óska þess vegna eftir einnar nætur gistingu einhvers staðar í höfuðstað Norðurlands (tilboðum skal skilað inn annars staðar en í kommentadraslinu, það er bilað).
Þaðan fer ég svo heim í sveit og kjamsa á afgangsjólasmákökunum ef þær verða einhverjar, þangað til skólinn byrjar 14. jan.
En fyrst er að klára þessi satans próf…
E.S. Við skulum nú ekki gera of mikið úr því hvað Weber er leiðinlegur. Þetta er þó flott:
“Certainly all historical experience confirms the truth - that man would not have attained the possible unless time and again he had reached out for the impossible. But to do that a man must be a leader, and not only a leader but a hero as well, in a very sober sense of the word. And even those who are neither leaders nor heroes must arm themselves with that steadfastness of heart which can brave even the crumbling of all hopes. This is necessary right now, or else men will not be able to attain even that which is possible today. Only he has the calling for politics who is sure that he shall not crumble when the world from his point of view is too stupid or too base for what he wants to offer. Only he who in the face of all this can say “In spite of all!” has the calling for politics.”