Næsta ár panta ég löng jól, ekki síðasta próf 21 des og vinnu 27. des. Já, og ekki ritgerð sem á að skila 2. janúar. Foj.
Stuttu jólin voru samt mjög góð. Yndislegt að komast heim í sveit og þrífa og skreyta og baka piparkökur. Dásamlegur matur og gríðarlega skemmtilegar gjafir. Sérstök verðlaun fá Inga Vala og Kristján Ketill fyrir að gefa mér sömu múmínálfabókina, óumbeðna, en alveg einstaklega skemmtilega. Það veit bara á gott þegar að besta vinkonan frá 0 ára aldri og kærastinn manns eru á sömu nótum.
—————————————————————————————————————
Undir jólatrénu leyndist líka frumraun snillinganna í Bloodgroup, Sticky Situation. Hann er nú stöðugt í spilun, en hálferfitt að læra við hann því mig langar bara að hoppa og dansa við hann, ekki vitundarögn að læra. Ekki er mikið betra að hlusta á Mugiboogie hans Mugisons, líka alltof skemmtileg tónlist til að ég geti einbeitt mér að hnattvæðingu. Þetta eru hálfgerð vandræði.
—————————————————————————————————————
Og bíddu nú við, er eðlilegt að fyrirtæki gefi ráðherrum jólagjafir? Sér í lagi fjármálarisar? WTF???