“Skólaprestur er mjög dýr á mælikvarða skólastarfs enda eru byrjunarlaun hans um þrefalt hærri en byrjunarlaun kennara sem þó er fagmenntaður til starfa með börnum. Fram kemur í skýrslunni að hörð andstaða sé innan skólanna gegn því að greiða kostnaðinn enda þurfi þá að skerða aðra þjónustu. Vinaleið í Garðabæ var fjármögnuð að mestu leyti með framlagi eins foreldris en auk þess lagði kirkjan til fjármagn auk Álftaness. Komi til framhalds á starfsemi vinaleiðar er ljóst að sveitarstjórnir þurfa að taka formlega afstöðu til hennar og jafnframt að tryggja fjárveitingar. Skýrsluhöfundar mæla ekki með framhaldi á starfsemi vinaleiðar [...] Af lestri skýrslunnar má sjá að vinaleið er klúður og best færi á því að henni væri hætt með öllu, þó ekki sé nema vegna barnanna sjálfra”.
Þetta er partur úr grein eftir Brynjólf Þorvarðarson sem ber heitið “Vinaleiðin klúður” og fjallar um þessa skýrslu um vinaleið. Greinin birtist í 24 Stundum í dag. Feitletranir eru mínar.
————————————————————————————————–
Er að lesa Píkusögur eftir Eve Ensler og hlusta á plötuna Raising Sand með Robert Plant og Alison Krauss. Hvoru tveggja mæli ég hiklaust með.