Archive for April, 2008

Kjúklingablætið

Wednesday, April 30th, 2008

Voruð þið ekki alveg örugglega búin að sjá þetta?

Já, og Elli tæpir á kjúklingablæti Ungra Jafnaðarmanna í þessari stuttu en skemmtilegu grein.

Ba-gak!

Ungir Jafnaðarmenn vs eldri jafnaðarmenn í skólagjaldaumræðunni

Monday, April 28th, 2008

Formaður Ungra Jafnaðarmanna skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hún harðneitar því að Samfylkingin sé opin fyrir upptöku skólagjalda. Það fannst mér æðislegt. Alla vega ansi miklu æðislegra heldur en greinin sem jafnaðarmaðurinn Stefán Jón Hafstein skrifaði í 24 Stundir um daginn þar sem hann af gæsku sinni upprætir “goðsagnir” um skólagjöld, rekur fyrir þeim áróður og til að taka steininn úr, sakar námsmenn um að vera að skjóta sér undan ábyrgð með því að reka hagsmunabaráttu gegn skólagjöldum. Það var lítið skemmtileg grein, svona um það bil jafn lítið skemmtileg og þegar að varaformaður menntamálanefndar Alþingis, Samfylkingarmaðurinn Einar Már Sigurðsson, útilokaði ekki upptöku skólagjalda á dögunum, heldur tók upp línu Sjálfstæðismannsins og baráttumannsins fyrir skólagjöldum, Sigurðar Kára Kristjánssonar: “að við eigum að fara yfir efnið fordómalaust”. Hmmm já af því að það eru bara fordómar að vera á móti skólagjöldum í opinberum skólum, þá veit ég það…

Já, mér líkar klárlega betur við hljóðið í formanni UJ heldur en þessum félögum hennar, og sömuleiðis líkar mér betur við hana heldur en ráðherrana hennar, Ingibjörgu Sólrúnu og Björgvin G. Sigurðsson, en þau hafa áður gælt við skólagjöld.

E.S. Kommentakerfið enn í ruglinu.

Lake of Fire

Friday, April 25th, 2008

Ég er alveg búin að gleyma að mæla með kvikmyndinni Lake of Fire. Feminíski leshringurinn okkar skellti sér á þessa heimildamynd um fóstureyðingar í Bandaríkjunum. Myndin sýnir sjónarhorn beggja hópa, þeirra sem eru á móti fóstureyðingum og þeirra sem eru með, auk viðtala við marga áhugaverða fræðimenn, s.s. Noam Chomsky.

Í stuttu máli er myndin sjokkerandi. Hún er reyndar næstum jafn góð heimild um kristna ofsatrúarmenn eins og hún er um fóstureyðingar. Myndefnið er frá ca ‘88 til byrjunar þessa áratugs (sést á hárgreiðslunum). Maður fær því stundum á tilfinninguna að eitthvað af upplýsingunum séu svoldið úreltar, t.d. get ég varla trúað því að það sé ekki búið að setja reglur um hversu langt þarf að vera liðið á meðgöngu til þess að fóstureyðing verði ólögleg í Bandaríkjunum, það er að segja í þeim fylkjum þar sem þær eru leyfðar yfir höfuð (í myndinn virtust ekki vera nein takmörk). Myndin er líka aðeins of löng, aðeins of markar eldræður ofsatrúarmanna. Við vorum löngu búnar að ná því, þeir eru geggjaðir.

En myndin er samt hrikalega áhrifamikil og upplýsandi og ég mæli eindregið með henni (nema kannski fyrir viðkvæma). Lesið endilega líka það sem Þórhildur og Drífa skrifuðu um myndina.

“Þeir eru að berja Íslendinga!”

Wednesday, April 23rd, 2008

Ungur maður sást í sjónvarpsfréttum RÚV (fyrstu frétt kl. 19:00) dreginn af vettvangi mótmælanna við Rauðavatn, öskrandi “Þeir eru að berja Íslendinga! Þeir eru að berja samlanda sína!”.

Því ef þeir hefðu verið að berja útlendinga, þá hefði það verið minna mál? Er það málið?

(mæli með að þið horfið á þetta fréttaskot og athugið hvort þið þekkið manninn)

Fjölmiðlamenn eru vitlausir

Tuesday, April 22nd, 2008

Fjölmiðlamenn eru almennt mjög vitlausir.

“Hugur fjölmiðlamanna vinnur ekki með líkama þeirra, sem hefur ekki undan að framleiða hugbreytandi hormón. Hormónin gera það að verkum að fjölmiðlamenn fá ranghugmyndir um eigið ágæti þrátt fyrir að berjast við minnimáttarkennd á háu stigi. Þannig eru fjölmiðlamenn og verða alltaf vitlausari en annað fólk, enda er hegðun þeirra almennt á skjön við gildi samfélagsins. Þetta er ekki bara mín skoðun heldur óhagganleg vísindaleg staðreynd”.

Reyndar á ég ekki heiðurinn af þessum texta heldur Atli Fannar Bjarkason, blaðamaður á 24 Stundum. Það eina sem ég gerði var að skipta orðinu unglingar út fyrir fjölmiðlamenn.

Mér skilst að áðurnefndur Atli sé að fara að taka við tímaritinu Monitor. Tímaritið fjallar um poppmenningu og því er líklegt að það séu ófáir unglingar (það er að segja vitlausir unglingar) sem lesa blaðið. Ég er ekki í vafa um að tímaritið sé í góðum höndum og að nýi ritstjórinn verði í litlum vandræðum með að skrifa eitthvað vitlaust í blaðið fyrir þá sem honum finnst vitlausir.

Fylgisaukning VG og Miss Piggy

Monday, April 21st, 2008

Það var gaman að lesa um mikla fylgisaukningu VG í Fréttablaðinu í morgun. Fylgishrun Samfylkingarinnar kom ekki á óvart, en ég hefði frekar viljað sjá hrunið hjá samstarfsflokki Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokknum. Enda er efnahagsástandið meira þeim að kenna sem hafa verið í ríkisstjórn í sautján ár heldur en þeim sem hafa verið þar í eitt ár. Auk þess var ég að vona að það hefði einhver áhrif að þau eru að leiða heilbrigðiskerfið að einkavæðingarhöggstokknum. Kannski eru þau næst.

Í kvöld eru Vinstri græn svo með spjallfund um Evrópumál á Suðurgötu 3 kl. 20:00. Katrín Jakobsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Árni Þór Sigurðsson ræða málin.
—————————————————————————-

Ég var í Eymundsson í Kringlunni í fyrradag að reyna að velja kort á afmælispakka til litlu systur minnar, 12 ára. Eftir ítarlega leit sá ég mig tilneydda til að grípa nokkur kort úr rekkanum, fara með þau að afgreiðsluborðinu, sýna afgreiðslustúlkuni þau og spyrja svo hvort þau ættu nokkuð líka kort með myndum af konum með eðlilegt vaxtarlag (þar sem að konurnar á kortunum höfðu einungis mitti og brjóst, ekki mjaðmir eða axlir). Grey indæla afgreiðslustúlkan fór og skimaði yfir rekkann og neitaði svo, en tjáði mér að þau ættu blómakort…

Ég keypti kort með mynd af Miss Piggy. Hún er frek og búttuð með óbilandi sjálfstraust. Ég fíla hana betur en axlalausar gellur.

misspiggy.jpg

Óvelkomin bók

Friday, April 18th, 2008

Ég var að leita mér að hæfilega stórri töskutuðru til að skella örfáum námsbókum í áðan og þaðan var förinni heitið í Odda. Ég fann enga sem nær utanum A4-möppu en framboð á ópraktískum handtöskum var hins vegar meira en nóg…

Nema hvað, ég var að gramsa í efstu hillu fataskápsins innan um geisladiska og herðatré þegar ég rakst á bók þar útí horni. Bók sem ég kannast ekki við að a) hafa keypt, b) hafa fengið lánað, c) hafa lesið.

Bókin heitir “He’s just not that into you” - the no-excuses truth to understanding guys (bókin eftir höfund Sex and the City eins og þið vitið líklega mörg).

Nú er mér spurn:

Týndi einhver bókinni sinni heima hjá mér?
Er einhver að reyna að segja mér eitthvað?
Eða er þetta tákn að ofan?

Sjitt ég vona ekki…

Alla vega, ef einhver kannast við að eiga þessa bók þá er hún í sama rykuga horninu sem ég fann hana, en þangað henti ég henni með þjósti. Nú ætla ég að hringja í kæró og gera sleik-plön.
Ég er engrar andskotans forlagatrúar!

Góða helgi!

Hrós dagsins

Friday, April 18th, 2008

Rokkprik fyrir Norðmenn!

Konur í stjórnum

Thursday, April 17th, 2008

Ég hef rekist á fuss og svei nokkurra biturra kalla yfir því að í nýrri stjórn RÚV ohf séu 3 konur og 2 karlar. Það náttúrulega nær engri átt að í einhverri stjórn í þjóðfélaginu séu fleiri konur en karlar, er ekki kynjajafnrétti í þessu landi?!? Skítt með kynbundinn launamun og kynbundið ofbeldi, skítt með að konur séu færri á þingi, færri ráðherrar, færri forstjórar fyrirtækja og séu innan við 10% stjórnarmanna í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins, skítt með það, við skulum endilega argast útaf þessu!

Það sem ég bíð hins vegar spennt yfir að sjá eru tillögur fulltrúa biturra kalla um hvernig megi ná 50/50 kynjahlutfalli innan 5 manna stjórnar.

Ég bíð mjög spennt.

Ómaklegt?

Wednesday, April 16th, 2008

Ólafi F. Magnússyni þykir það ómaklegt að hann sé minntur á þær skoðanir sem hann hafði áður en hann smeygði sér í borgarstjórastólinn.

Ég vorkenni honum. Voðalega.