Archive for May, 2008

Lestrarátak

Tuesday, May 27th, 2008

Ég er byrjuð í lestrarátakinu mínu. Síðan prófum lauk er ég búin með:


Bréf til Láru
eftir Þórberg Þórðarson

Umsögn: ég vissi það svosem eftir að ég las Íslenskan aðal, en nú er ég viss - ég fíla ekki Þórberg. Bara só sorrí.


Watchmen
, teiknimyndabók eftir Alan Moore með myndum Dave Gibbon

Umsögn: góð bók, en þó ekki jafn góð og ég bjóst við miðað við að gaurinn í Nexus segir að þeir taki ekki mark á fólki sem tjáir sig um teiknimyndasögur nema það hafi lesið Watchmen. Ádeilan á Kalda stríðið var hressandi.

Á eigin vegum eftir Kristínu Steinsdóttur

Umsögn: Fljótlesin, næm og falleg saga. Mér leið vel og var meyr innra með mér eftir að ég las hana.

Núna er ég að lesa Maí 68 - frásögn eftir Einar Má Jónsson og ljóðasafn Steins Steinarrs.

——————————————————————————

Annars vil ég þakka öllu góðu fólki fyrir skemmtunina á föstudaginn. Sleiktónleikarnir rokkuðu feitt! Þvílík mæting, þvílíkt stuð, þvílík ást, þvílíkir sleikir! Svona á djammið að vera.

Rokkum fyrir friði, frelsi og kærleika - og förum í sleik!

Wednesday, May 21st, 2008

Lifi sleikurinn!
Allir að mæta í fjörið á Organ á föstudagskvöldið!

koddisleikweb2.jpg

Mér er sama hvar ég lendi þegar ég dey, trallala!

Tuesday, May 13th, 2008

Ég held ég sé fyrir löngu búin að koma því á framfæri við þá sem málið varðar að ég myndi vilja láta kveikja í hræinu af mér þegar ég yfirgef þennan heim. Nú skilst mér að það sé líka möguleiki að láta einhvern frá Siðmennt halda ræðu um hvað ég var skemmtó í lifandi lífi, þannig að ég panta það. Fínt að spila Bítlana undir, og bjór og flatbrauð með hangikjöti á línuna. Og mér er nokk sama hvar athöfnin fer fram, hvort sem það verður í bænahúsi eða hlöðu. Væri samt kúl að hafa það í Gamla skóla - alltaf fínn andi þar.

Hver fær varnarmálastjóradjobbið?

Thursday, May 8th, 2008

Orðið á götunni er að Silja Bára Ómarsdóttir sé ein þeirra sem eru komin í gegnum aðra umferð starfsviðtalanna fyrir varnarmálastjóra-djobbið. Ljóst er að þegar hafa ófáir helst úr lestinni og nú er það bara toppbaráttan, hverjir fara í kaffi með ráðherra?

Það kemur hins vegar ekki á óvart að Silja sé komin svona langt, enda er hér súperhæf og flott kona á ferð. Áfram Silja Bára!

Kvenfyrirlitning í auglýsingum

Tuesday, May 6th, 2008

Í tíma um fjölskyldur og fjölskyldustefnur í vetur var nokkuð rætt um breytta stöðu kynjanna. Einn daginn sýndi kennarinn okkur þessa gömlu auglýsingu:

konaogkaffi.jpg

Þetta vakti mikla hneykslun í bekknum mínum, og margir hlógu af því hversu fáránlegt þetta hefði nú verið í gamla daga, að hugsa sér að auglýsa svona.

Mér var hugsað til auglýsingaherferðar sem Silja Bára bloggaði um í fyrra:

DB.JPG

Held að fólk ætti ekki að hlæja svo dátt yfir því hvað fólk var vitlaust í gamla daga. Það er nóg til af staðalímyndum og ranghugmyndum (eins og þessi mynd sem gefur í skyn að hópnauðgun sé sexý) ennþann dag í dag.

Lögmaður prestsins á Selfossi segir:

Tuesday, May 6th, 2008

“Mín skoðun er að unglingstúlkur eigi afskaplega erfitt með að gera sér grein fyrir hvar mörkin liggja í þessum efnum”
- Sigurður Þ. Jónsson, lögmaður prestsins á Selfossi

Hann sagði einnig að “meðal femínista hafi verið haldið úti háværum umræðum samfara miklum áróðri sem einkennst hefur að miklu leyti að því að karlmenn kunni að vera úlfar í sauðgæru sýni þeir á einhvern hátt umhyggju eða áhuga á viðkomandi”.

Mæli með fréttinni sem þetta kemur fram í. Í henni má finna áhugaverð dæmi um hroka, kreddur og niðurlægjandi tal um áhrifagjarnar og óharðnaðar unglingsstúlkur sem bara vita alls ekki neitt um kynferðisbrot, kjánarnir a tarna!

Það segir sitt um prestinn að lögmaður hans skuli tala svona.

Skilgreining Moggans á furðulegum borgarstjórum

Saturday, May 3rd, 2008

Á vef mbl.is er frétt um nýja borgarstjóra Lundúnarborgar. Hann er í fyrirsögn kallaður furðufugl. Eftir lestur fréttarinnar kemur fram að það helsta sem er furðulegt við hann sé:

- Hann hefur óhefðbundna framkomu og skoðanir. Ekki er það nánar útlistað í fréttinni.
- Hann átti í leynilegu sambandi við blaðakonu og laug þegar hann afneitaði sambandinu.
- Hann var rekinn úr starfi sem fréttamaður fyrir að “hafa beislað skáldafákinn í frétt einni”.
- Hann fer allra sinna ferða á reiðhjóli
- Hann er með skrítna hárgreiðslu (orðrétt: “hárgreiðslan minnir óneitanlega á fuglahræðu”).

Þetta eru nú öll skringilegheitin. Mest er ég sjokkeruð yfir að maðurinn hafi skrítna hárgreiðslu og ferðist á reiðhjóli. Á REIÐHJÓLI - hugsið ykkur.

Ég geri ráð fyrir að næst muni mbl.is fjalla um borgarstjóra Reykjavíkur, en hann á ýmislegt sameiginlegt með kollega sínum í Lundúnum. T.d. er engum blöðum um að fletta að hann hefur mjög óhefðbundna framkomu og áhugaverða hárgreiðslu, auk þess sem hann hefur eftirminnilega beislað skáldafákinn nokkrum sinnum.

1. maí

Thursday, May 1st, 2008

“Og þó að í vindunum visni
á völlum og engjum hvert blóm,
og haustvindar blási um heiðar
með hörðum og deyðandi róm

og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó,
hún lifir í hug mér sú lilja
og líf hennar veitir mér fró.

Þessi lilja er mín lifandi trú.
Þessi lilja er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mín og yndi.
Þessi lilja er mín lifandi trú.”

Gleðilegan baráttudag - við berjumst ennþá.