Ég þoli ekki bíladaga á Akureyri.
- Bútar úr fréttum af visi.is, ruv.is, akureyri.net og úr Fréttablaðinu frá því í dag og síðustu 2 daga.
“Í hádegisfréttum kvaðst verslunareigandi í miðbæ Akureyrar vera mjög ósáttur við bíladaga og sagði þá snúast um fyllerí, óspektir, eiturlyfjaneyslu og leiðindi og hafa skaðleg áhrif á ímynd Akureyrar”
“Lögreglan á Akureyri býst við því að talsverður fjöldi af kærum vegna líkamsárása verði lagðar fram eftir helgina”
“Fangageymslu fylltust af fólki og mikill aðsúgur var gerður að lögreglumönnum. Hafa þeir raunar sjaldan kynnst öðru eins og munu lætin hafa verið verri en á nokkrurri verslunarmannahelgi hingað til”
“Þá var gæslumaður á tjaldstæði sleginn tvívegis í andlitið og rúður brotnar víðs vegar um bæinn auk þess sem fjöldi kvartana barst vegna spólkeppni sem frá lagði mikinn reyk og illan daun. Alls var tilkynnt um 7 líkamsárásir.”
“Á þriðja tímanum í nótt var skoteldatertu skotið lárétt yfir Ráðhústorg og beint að lögreglumönnum og öðrum sem þar voru. Mildi var að enginn slasaðist og óskar lögreglan eftir upplýsingum um þá sem þarna voru að verki. Þá virtist sem fleiri skoteldar væru í umferð og tók lögreglan m.a. rakettu af einum manni. Nokkru síðar var gerður aðsúgur að lögreglumönnum sem voru að handtaka mann og reynt að hindra handtökuna. Komu aðrir lögreglumenn til aðstoðar og þurftu þeir að beita bæði kylfum og varnarúða. Mikil ólæti voru síðan fram undir morgun”
“Þetta er annað árið í röð sem skemmtanahöld í kringum bíladaga fara úr böndunum”
Nú veit ég fullvel að einhverjum þyki Bíladagar skemmtilegt fyrirbæri og meðal þeirra er vissulega mikið af mætu fólki. Eftir sem áður þá er ólíklegt að lögreglumennirnir sem urðu fyrir aðsúg, bílaeigendurnir sem komu að bílunum sínum dælduðum eftir flöskur eða með brotnar rúður, þeir sem að eru á þessu augnabliki væntanlega í símanum við BYKO að panta nýjar rúður í stað þeirra sem einhverjir besefar brutu, bæjarbúar sem vaknaði um miðjar nætur við reykspólandi fávita á nærliggjandi plani, eða fólkið sem varð fyrir líkamsárásum, fylli þann flokk. Heldur ekki starfsmenn slysó sem að kviðu fyrir helginni sem var að líða, eða þeir Akureyringar sem einfaldlega flúðu úr bænum.
Af þessum hátíðarhöldum hefur verið gríðarlegt ónæði og um þau mikill og neikvæður fréttaflutningur sem á eftir að koma niður á Akureyrarbæ, skýrast í formi neikvæðar ímyndar. Það sem mér finnst langverst er að alltaf er reynt að splæsa þessari (já ég leyfi mér að nota gríðarlega gildishlaðið orð hér, svo mikil er óbeit mín) lágkúru saman við stúdentahátíðirnar 16. og 17. júní, að ekki sé talað um fjölskylduhátíðina á þjóðhátíðardaginn. Það persónulega pirrar mig að þessum 2 hátíðum sé troðið saman, því ég frábið mér aðra en vil ekki fyrir nokkurn mun missa af hinni.
Og þarmeð er ég farin norður, fyrst í Skagafjörð og svo alla leið á Akureyri á morgun. Vonandi verða bílabullurnar farnar heim þá.
E.S. Dagskrá Bíladaga hófst með hóprúnti um bæinn. Hóprúnti. Má ég frekar biðja um 24 tíma marathon af Stubbunum…