Archive for September, 2008

Sarah Palin og nauðgana-rukkanirnar

Friday, September 26th, 2008

Hingað til hef ég ekki bloggað um Söruh Palin. Það er enginn skortur á bloggum um hana og ég hef látið mér nægja að lesa Silju Báru, auk þess sem að Þórunn og Óli Gneisti draga þetta ágætlega saman.

En alltaf er að bætast við á afrekslista Palin. Í ritstjórnargrein í New York Times þann 24. september fjallaði greinarhöfundur um framkomu bæjaryfirvalda í Wasilla í Alaska gagnvart fórnarlömbum nauðgana. Stutt frá að segja þá hófu yfirvöld að rukka fórnarlömb nauðgana um kostnaðinn sem hlýst af læknis-rannsóknum á fórnarlömbunum (á ensku: rape kits and forensic exams). Sem sé, þegar fórnarlamb nauðgana leitaði sér aðstoðar þá var henni sagt að reiða upp budduna, nú þurfi hún að borga fyrir nauðgunina. Og bæjarstýra Wasilla á þessum tíma var auðvitað engin önnur en umrædd Sarah Palin.

Löggjafarþing Alaska afnam sem betur fer þessar niðurlægingargreiðslur árið 2000. Starfsmenn framboðs Palin hafa ekkert viljað láta upp um þátt varaforsetaefnisins í málinu. Ólíklegt verður hins vega að teljast að Palin hafi ekki vitað að þetta var gert, því hún skipti sér víst af öllu sem viðkom bæjarmálunum, meira að segja því hvaða bækur voru til á bókasafninu. Eftir að þessar rukkanir voru afnumdar kvartaði lögreglustjóri bæjarins (sem var sérvalinn til starfans af Söruh Palin) yfir því að skattgreiðendur væru látnir bera þennan kostnað.

Höfundi greinarinnar finnst líklegast að þessar rukkanir hafi verið tilkomnar vegna úrelts hugsunarháttar og það sem hún kallar “þöngulhausa-niðurskurðar” í útgjöldum bæjarins. Hins vegar hafa ýmsir velt upp þeirri tilgátu að þetta sé runnið undan rifjum Söruh Palin sjálfrar vegna harðar andstöðu hennar gagnvart fóstureyðingum. Palin er einmitt hörð á móti fóstureyðingum jafnvel þótt að getnaður eigi sér stað við nauðgun. Það þekkist á heilsugæslum að fórnarlömbum nauðgana sé látin “daginn-eftir-pillan” í té óski þau þess, og það eru víst margir í anti-fóstureyðingarhreyfingunni sem telja (ranglega) inntöku pillunnar jafngilda fóstureyðingu. Þetta eru þó bara getgátur en hitt er víst, að þessar rukkanir eru ekki aðeins sárlega niðurlægjandi fyrir fórnarlömb nauðgana og algerlega til skammar, heldur vernda þær líka nauðgarana þar sem þær valda því að færri fórnarlömb kæra glæpinn.

Í greininni er þess einnig getið að Joe Biden, varaforsetaefni Barack Obama, hafi mælt fyrir ákvæði í frumvarpi til laga á öldungadeildarþinginu um ofbeldi gagnvart konum, sem fól í sér að hægt væri að hætta fjárframlögum frá Bandaríkjunum til þeirra aðildaríkja sem rukka fórnarlömb nauðgana um kostnað vegna skoðunar. Vert er að taka fram að John McCain, frambjóðandi rebúblikana í forsetakosningunum, kaus á móti þessu í þinginu.

Hér er greinin í fullri lengd.

Vúhú!

Wednesday, September 24th, 2008

nylidakvold.jpg

Að geta ákveðið sín eigin laun

Thursday, September 18th, 2008

Já sæll. Af frétt á mbl.is:

“Kjararáð ákvað í lok ágúst að hækka laun forseta Íslands, alþingismanna, ráðherra, hæstaréttardómara og héraðsdómara um 20.300 kr. Ákvörðunin er afturvirk og miðast við 1. maí sl. Alls nemur því greiðslan 81.200 kr. fyrir sl. fjóra mánuði.”

- á kjaft, nota bene.

Þetta er þá í þriðja sinn frá því í júlí 2007 sem laun þessa hóps hækka.

“Frá því í júlí 2007 hafa laun æðstu ráðamanna þjóðarinnar hækkað þrisvar sinnum. Þann 1. júlí í fyrra hækkuðu mánaðarlaun forseta Íslands, alþingismanna og ráðherra um 2,6%. Í janúar sl. hækkuðu launin um 2% og nú hafa launin verið hækkuð aftur.”

“Kjararáð er skipað fimm ráðsmönnum og fimm til vara. Þrír eru kosnir af Alþingi, Hæstiréttur skipar einn og fjármálaráðherra einn. Ráðið kýs sér sjálft formann og varaformann.”

Jahá! Niðurstaða: mikið væri gott að geta sjálf ráðið því hvað ég fengi í laun. Sérstaklega hentugt í kreppu.

Me and Armini með Emilíönu Torrini

Sunday, September 14th, 2008

Ég fjárfesti í list í síðustu viku og það einni mögnuðustu list sem ég hef fjárfest í. Nefnilega plötu Emilíönu Torrini, Me and Armini.

Í stuttu máli er þetta ein allra besta plata sem ég hef hlustað á nokkurn tíman. Ég er manneskja sem þarf yfirleitt að að láta plötuna rúlla í nokkra daga áður en ég er farin að ná henni. Við fyrstu hlustun vekja kannski 1/3 laganna athygli mína ef platan er góð, en ég þarf svona viku til að fara að meta hin lögin að verðleikum. Þetta var ekki raunin með þessa plötu. Nánast hvert einasta lag náði mér strax í fyrstu hlustun.

Besta lag plötunnar er hið skuggalega Gun, hádramantískt með sjúklega seiðandi takti, frábærum undirleik og rödd Emilíönu er eins og bergmál úr fjarska. Fast á hæla Gun kemur Beggar’s prayer, ótrúlega fallegt og ljúft lag með millikafla sem er ú-aður og svo flottur að mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds og líður eins og trúuðum manni í kirkju við hlustunina.
Hold Heart er í svipuðum dúr og Beggar’s Prayer, sorglegt og ægilega fallegt. Me and Armini er hressara og auðvelt að fá það á heilann enda bráðskemmtilegt. Í Heard it all before rokkar Emilíana meira heldur en við eigum að venjast en hún gerir það vel og þetta er eitt allra skemmtilegasta lag plötunnar.
Fireheads, Jungle Drum, Ha ha, Big Jumps og Birds eru æðisleg hvert á sinn hátt, en Bleeder og Dead duck reka lestina og eru ekkert sérlega spennandi.

En með 10 lög sem slá í gegn af 12 laga plötu er niðustaðan augljós, þessi plata er hrein snilld og allir eiga að kaupa hana. Mikið vona ég að Emilíana komi sem fyrst til landsins og haldi nokkra tónleika.

emili.jpg

Tilboð ríkisins til ljósmæðra

Friday, September 12th, 2008

Í umræðuþættinum Silfri Egils síðasta sunnudag lét Björgvin G. Sigurðsson viðskiptamálaráðherra hafa eftir sér að eftirfarandi um kjarabaráttu ljósmæðra:

“Það er engin spurning um að þessi deila verður leyst. Það er tilboð á borðinu, mjög myndarlegt tilboð frá ríkinu… og ég efast ekkert um að ljósmæður og viðsemjendur ná saman eftir helgina”

Nú er komið í ljós hvert myndalega tilboðið er: Ríkið stefnir ljósmæðrum vegna ólöglegra fjöldauppsagna!

Rosa gott tilboð. Húrra fyrir Árna Mathiesen og ríkisstjórn Íslands…

Föðurlandssvikarinn

Thursday, September 4th, 2008

Ef McCain veit hvernig á að ná í skottið á Bin Laden (sem ég persónulega tel að sé steindauður nú þegar en notaður sem Grýla á óþæga bandaríska kjósendur) af hverju hefur hann ekki sagt góðvini sínum og flokksbróður George Bush frá lausninni?

Föðurlandssvikari?

Hundruðir milljóna fyrir heri - smánarlaun fyrir ljósmæður

Wednesday, September 3rd, 2008

Þessi ríkisstjórn horfir ekki í budduna þegar kemur að því að halda tilgangslausar heræfingar og loftrýmiseftirlit fyrir fleiri hundruð milljónir á hverju ári.

En að semja við ljósmæður svo þær fái sanngjörn laun og mæður og börn góða þjónustu á mikilvægustu augnablikum lífs síns?

Neeeeeiiiii, glætan.

Er þetta hægt?

E.S. Kata Jak var flott í dag um þetta mál