Archive for October, 2008

Áfram!

Thursday, October 30th, 2008

VG mælist með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn

og Stelpurnar okkar eru á leið á EM eftir glæsilegan sigur á Írum!

Pant að allir dagar verði svona ánægjulegir (mínus endajaxlatökuna sem ég fór í um hádegi, það var afar takmarkað skemmtilegt).

Tími til að breyta

Wednesday, October 29th, 2008

Nú, rétt eins og fyrir tæpum 19 árum, horfum við á þjóðskipulag byrja að hrynja til grunna. Þá byrjaði hrun sovétkommúnismans með falli Berlínarmúrsins sem var táknmynd þess þjóðskipulags. Hrun íslensku bankanna markar upphafið á falli nýfrjálshyggjunnar, sem er þjóðskipulag græðgi og sérhagsmuna. En hún fellur ekki ein, heldur tekur hún ævisparnað stórs hluta Íslendinga, sparnað sem átti að tryggja þeim áhyggjulaust ævikvöld, með sér í gröfina. Við syrgjum því ekki nýfrjálshyggjuna, heldur allt það sem hún tók frá okkur.

Fólk er, skiljanlega, reitt og sorgmætt. Þetta átti aldrei að gerast. Enginn getur sagt að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir þetta. Það er óþarfi að reyna að afsaka skefjalausa græðgi með því að tala um alþjóðafjármálakreppu, einfaldlega því að við sjáum að aðrar þjóðir eru ekki jafn djúpt sokknar og við. Þetta er sárt og þetta er ósanngjarnt því íslenskur almenningur á ekki sök á þessu. En við höfum hins vegar ekki rétt á því að láta sorgina og reiðina heltaka okkur. Við skuldum komandi kynslóð að þerra tárin, standa á fætur og hefja uppbyggingu.

Tækifærin eru til staðar á Íslandi og það sem mikilvægara er, þau eru enn sameign íslensks almennings, ekki séreign þeirra sem vilja skapa af þeim gróða fyrir sig eina. Sem betur fer voru sumir alsgáðir í einkavæðingarpartíinu og stóðu vörð um það sem við erum fegnust að eiga ennþá, nú þegar skóinn kreppir að. Þau tryggðu að orkulindir landsins yrðu áfram sameign þjóðarinnar. Þau börðust með kjafti og klóm gegn markaðsvæðingu heilbrigðis- og menntakerfisins og hafa varist stöðugum árásum nýfrjálshyggjunnar á velferðakerfið síðustu ár. Þau hafa staðið með íslenskri náttúru og hafa talað fyrir jafnrétti allra í þjóðfélaginu. Og þau standa enn vaktina fyrir íslensku þjóðina, því má hún treysta.

Ísland er ekki á hausnum. Það er fiskur í sjónum, matvælaframleiðsla í sveitum, orka og fegurð í náttúrunni, duglegt fólk á öllum aldri í framhalds-, iðn- og háskólum og útflutningsiðnaður í sókn. Við höfum tækifæri til menntunar, við höfum duglegt fólk sem ekki mun draga af sér við uppbygginguna og við höfum hvort annað. Við erum nógu klók til að læra af reynslunni og byggja ekki upp sama þjóðfélagsskipulag og var við lýði til þess eins að láta það hrynja undan okkur aftur.

Það er kominn tími til að breyta. Það er kominn tími til að bæði kynin komi í jöfnum mæli að ákvarðanatöku á öllum sviðum samfélagsins. Það er kominn tími til að aflétta leynd og pukri og gefa fólki aftur trú á lýðræðisleg stjórnmál. Það er kominn tími til að taka velferð þjóðarinnar fram yfir gróðavon einstaklinga. Og það er kominn tími til að stokka spilin og gefa aftur, því síðast var vitlaust gefið.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 24. október sl.

Laun nýju bankastýranna og smiðja á kaffi Hljómalind í kvöld!

Thursday, October 23rd, 2008

Ég skil ekki, bara skil ekki, hvers vegna við fáum ekki uppgefið hvað bankastýrur Nýja Landsbankans og Nýja Glitnis eru með í laun. Hvernig í ósköpunum geta þær komist upp með að greina frá því? Erum það ekki við sem borgum launin þeirra? Eða er kannski bara ekki búið að semja við þær? Hvað er í gangi? Af hverju fær venjulegt fólk aldrei að vita neitt í þessu samfélagi lengur?

——————————————————————-

Byggjum betra samfélag - Smiðja á Kaffi Hljómalind
Ung vinstri græn standa fyrir opnum fundi um stöðu kvenfrelsis og náttúruverndar á tímum kreppu á Kaffi Hljómalind kl. 20:00 fimmtudagskvöldið 23. október.

Græðgisvæðing og sérhagsmunahyggja sem dyggilega hefur verið studd af stjórnvöldum hafa kallað yfir Ísland alvarlega efnahagskreppu sem því miður bitnar verst á almennum borgurum. Ljósið í myrkrinu er að nú við hrun nýfrjálshyggjunnar höfum við tækifæri til að reisa úr rústunum réttlátt þjóðfélag, mun betra en það sem fyrir var. Ung vinstri græn vilja búa til vettvang fyrir alla sem hafa fengið nóg af sérhagsmunabaraáttu og valdapoti til að koma saman og ræða hvaða gildi við viljum hafa í hávegum í nýju og réttlátu þjóðfélagi. Umræðuefni fundarins að þessu sinni eru staða kvenfrelsis og náttúruverndar á krepputímum og möguleg sóknarfæri. Framsögufólk eru Silja Bára Ómarsdóttir, feministi og forstöðukona Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, og Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur og stjórnarmeðlimur í Náttúruverndarsamtökum Íslands.

Kreppulesefni og fleira

Wednesday, October 22nd, 2008

Ekki láta þessa grein framhjá ykkur fara.

Ekki þetta heldur.

————————————–

Það er enginn hörgull á góðum bókum í kreppunni.

Var að klára Vonarstræti eftir Ármann Jakobsson, og hafði mikla ánægju af.

Hlakka svo til að byrja á þessari.

Gísli Marteinn lærir sögufalsanir og spuna í Edinborg

Tuesday, October 14th, 2008

Mér fannst ansi tæpt þegar ég komst að því að Gísli Marteinn Baldursson væri á launum sem borgarfulltrúi meðan hann stundar nám í Edinborg í borgarfræðum.

Enn verra finnst mér þó að komast að því að hann er greinilega ekki að læra borgarfræði, heldur leggja stund á spuna og sögufalsanir:

“í þeirri hörmulegu bankakreppu sem við erum komin í get ég ekki annað en hrósað happi yfir því að borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins skuli hafa tekist að stöðva samruna REI og Geysis Green Energy, sem var og er í eigu Glitnis”

Nema hann hafi misskilið og haldi að Svandís Svavarsdóttir sé með honum í flokki. Já og nema hans sé bara að djóka. Þetta er eiginlega of augljóslega kjaftæði til að hann geti verið að meina þetta.

Ef einhver er orðinn ryðgaður í REI+GGE málinu þá eru hér gamlar fréttir til upprifjunar.

Þegar Sjallarnir voru í algeru rugli

Þegar Svandís stóð vaktina

Þegar aukafundurinn var haldinn í borgarstjórn

Þegar að Sjallarnir vildu selja hlut OR í REI

Þegar stýrihópurinn undir forystu Svandísar Svavarsdóttur hafnaði samrunanum

Don’t worry, be happy!

Tuesday, October 14th, 2008

Á þessum síðustu og verstu tímum þegar maður virkilega kann að meta alveg ókeypis hluti sem koma manni til að brosa (eins og youtube!) langar mig að benda ykkur (og sér í lagi aðdáendum hins magnaða sjónvarpsþátts That 70’s show) á þetta.

Aldrei aftur

Friday, October 10th, 2008

Ljósi punkturinn við kreppuna :

Kannski gleymum við ekki hverjir bera ábyrgðina, og lærum af reynslunni í þetta skipti. Við skuldum komandi kynslóðum það.
Og kannski förum við núna líka að muna eftir því sem mestu skiptir í lífinu - hint: það eru ekki sólarlandaferðir og ipodar.

Að öllu öðru leyti er þessi kreppa alveg helvísk. Nýfrjálshyggjan er að falla, sem er gott, en hún tekur marga með sér niður í fallinu. Það er varla til sú fjölskylda sem ekki hefur orðið kreppunni að bráð og þarf að horfast í augu við að sparnaðinum þeirra hefur verið eytt í ofurlaun, einkaþotur og peningafyllerí braskara og lygara. Nýfrjálshyggjan, og hið yndislega frelsi sem henni fylgir, hefur kostað þorra íslensks almennings ævisparnaðinn og áhyggjulausa ævikvöldið.

Og svo segir þetta pakk að vinstri-menn kunni ekki að fara með peninga? Það var þá!

Það er augljóst að við verðum að hafna ríkjandi hugmyndafræði sem hefur komið okkur á þann stað sem við erum, og byrja upp á nýtt. Mótum það samfélag sem skal rísa úr rústunum á mannúð, jöfnum rétti alls fólks, umhyggju fyrir náunganum, virðingu fyrir umhverfinu og samræðustjórnmálum, í stað leyndar.

Aldrei aftur ofurlaun! Burt með einkaþoturnar!
Og aldrei, aldrei aftur skulum við taka gróðavon fárra fram yfir almannahagsmuni!

Það er ekkert grín…

Thursday, October 2nd, 2008

…hvað helgin mín verður skemmtileg!

Ekki einungis fæ ég að eyða henni með sósíalískum róttæklingum, feministum og náttúrubörnum, heldur fæ ég líka að vera á Akureyri! Betra verður það ekki.