Ung vinstri græn álykta:
Aðgerðir Ísraelshers kalla á alþjóðlegt viðskiptabann
Ung vinstri græn fordæma grimmdarverk Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni og taka undir kröfu félagsins Íslands-Palestínu um að öllum stjórnmálasamskiptum Íslands við Ísraelsríkis verði hætt þar til það lætur af grimmdarverkum sínum.
Ung vinstri græn telja að aðgerðir Ísraelsstjórnar kalli á alþjóðlegt viðskiptabann líkt og komið var á gagnvart Suður-Afríku þegar aðskilnaðarstefnan var þar við líði. Stefna Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni er enda ekkert annað en aðskilnaðarstefna, og raunar mun harkalegri og ofbeldisfyllri en sú sem rekin var í Suður-Afríku. Með alþjóðlegu viðskiptabanni yrði með friðsamlegum hætti settur þrýstingur á Ísraelsríki um að virða mannréttindi palestínsku þjóðarinnar. Ung vinstri græn hvetja íslensku ríkisstjórnina til að beita sér fyrir slíku viðskiptabanni.
———————————————————————————-
Og við þetta má svo bæta að ég hvet alla til að mæta á útifund á Lækjartorgi kl. 16:00 í dag til að sýna samstöðu með fórnarlömbum blóðsúthellinganna á Gaza og andúð á mannréttindabrotum Ísraelshers.