Guðlaugur Þór Þórðarson telur að Ögmundur Jónasson sé að reyna að koma höggi á sig með því að upplýsa þjóðina um hvernig Guðlaugur Þór ráðstafaði 24 milljónum af fjármunum í heilbrigðisráðuneytinu í aðkeypta ráðgjafaþjónustu.
Ef að ekkert er óeðlilegt við þessar fjárfestingar Guðlaugs á fjármunum skattgreiðenda, af hverju ætti hann að taka því sem svo að Ögmundur sé að reyna að koma á hann höggi? Er ekki eðlilegt að upplýsa skattgreiðendur um það í hvað er gert við skattpeningana þeirra?
Og hverjir eiga ráðgjafafyrirtækin sem hér er um að ræða. Í hvaða stjórnum viðkomandi sátu og með hvaða fyrrverandi heilbrigðisráðherra til dæmis - ekki að það sé neitt óeðlilegt við það!
Hverju getum við komist að með smá gúgli…?
Reykjavík Economics (Magnús Árni Skúlason)
13. júní – 5. okt. 2008
Ýmis sérfræðistörf fyrir ráðherra.
Kr. 924.138.
Magnús Árni sat í stjórn SUS með Guðlaugi Þór
Rannsóknir og Greining ehf (Inga Dóra Sigfúsdóttir)
Maí 2008 – nóvember 2008:
Vinna við mótun, gerð og kynningu á heilsustefnu auk vinnu við gerð frumvarps um Lýðheilsustöð og mótun hugmynda að framtíðarskipulagi málefna Lýðheilsustöðvar, Landlæknis og fleira.
Kr. 1.494.000
Inga Dóra sat í stjórn SUS með Guðlaugi Þór
DP Lögmenn/DP Fasteignir (Dögg Pálsdóttir)
5. okt. - 22. maí 2008
Vinna við frumvarp um sjúkraskrár og frumvarp um heilbrigðisstarfsmenn.
Kr. 1.322.344
Dögg Pálsdóttir er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins
2. Hið íslenska ráðgjafahús (Kristján Vigfússon)
Sept. 2007 – okt. 2008
Ráðgjafavinna vegna lyfjamála.
Kr. 2.540.424
Kristján Vigfússon er ráðgjafi Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins
Argyron ehf (Ragnar Þórir Guðgeirsson)
20. ágúst 2008 – 31. jan. 2009
Úttekt á Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, ráðgjöf vegna breytinga á skipulagi heilbrigðisstofnana, aðild að nefnd um málefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Kr. 10.672.762
Ragnar Þórir tók við formennsku í stjórn Fjölnis þegar að Guðlaugur Þór hætti. Stuttu seinna (undir stjórn Ragnars Þóris) var Guðlaugur Þór gerður að heiðursformanni Fjölnis.
Franca ehf (Eggert Skúlason)
Des. 2007 – nóv. 2008
PR vinna fyrir ráðherra/ráðuneyti/fjölmiðlaþjálfun forstöðumanna
Kr. 2.528.816
Samkvæmt gúgli er þessi herramaður PR-maður Íslands. Því er ekkert skrítið að Orðið á götunni (færsla nú glötuð) hafi greint frá því að Guðlaugur Þór hafi ráðið hann í prófkjörsbaráttunni fyrir síðustu kosningar.
(Upplýsingar fengnar frá Eyjunni og google).