Tengsl Guðlaugs Þórs við ráðgjafafyrirtækin

Guðlaugur Þór Þórðarson telur að Ögmundur Jónasson sé að reyna að koma höggi á sig með því að upplýsa þjóðina um hvernig Guðlaugur Þór ráðstafaði 24 milljónum af fjármunum í heilbrigðisráðuneytinu  í aðkeypta ráðgjafaþjónustu. 

Ef að ekkert er óeðlilegt við þessar fjárfestingar Guðlaugs á fjármunum skattgreiðenda, af hverju ætti hann að taka því sem svo að Ögmundur sé að reyna að koma á hann höggi? Er ekki eðlilegt að upplýsa skattgreiðendur um það í hvað er gert við skattpeningana þeirra? 

Og hverjir eiga ráðgjafafyrirtækin sem hér er um að ræða. Í hvaða stjórnum viðkomandi sátu og með hvaða fyrrverandi heilbrigðisráðherra til dæmis - ekki að það sé neitt óeðlilegt við það!

Hverju getum við komist að með smá gúgli…?

 

Reykjavík Economics (Magnús Árni Skúlason)
13. júní – 5. okt. 2008
Ýmis sérfræðistörf fyrir ráðherra.
Kr. 924.138. 

Magnús Árni sat í stjórn SUS með Guðlaugi Þór

 

 Rannsóknir og Greining ehf (Inga Dóra Sigfúsdóttir)
Maí 2008 – nóvember 2008:
Vinna við mótun, gerð og kynningu á heilsustefnu auk vinnu við gerð frumvarps um Lýðheilsustöð og mótun hugmynda að framtíðarskipulagi málefna Lýðheilsustöðvar,  Landlæknis og fleira.
Kr. 1.494.000

Inga Dóra sat í stjórn SUS með Guðlaugi Þór

 

DP Lögmenn/DP Fasteignir (Dögg Pálsdóttir)
5. okt. - 22. maí 2008
Vinna við frumvarp um sjúkraskrár og frumvarp um heilbrigðisstarfsmenn.
Kr. 1.322.344

Dögg Pálsdóttir er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins

 

2.  Hið íslenska ráðgjafahús (Kristján Vigfússon)
Sept. 2007 – okt. 2008
Ráðgjafavinna vegna lyfjamála.
Kr. 2.540.424

Kristján Vigfússon er ráðgjafi Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins

 

Argyron ehf (Ragnar Þórir Guðgeirsson)
20. ágúst 2008 – 31. jan. 2009
Úttekt á Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, ráðgjöf vegna breytinga á skipulagi heilbrigðisstofnana, aðild að nefnd um málefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Kr. 10.672.762

Ragnar Þórir tók við formennsku í stjórn Fjölnis þegar að Guðlaugur Þór hætti. Stuttu seinna (undir stjórn Ragnars Þóris) var Guðlaugur Þór gerður að heiðursformanni Fjölnis. 

 

 Franca ehf (Eggert Skúlason)
Des. 2007 – nóv. 2008
PR vinna fyrir ráðherra/ráðuneyti/fjölmiðlaþjálfun forstöðumanna
Kr. 2.528.816

Samkvæmt gúgli er þessi herramaður PR-maður Íslands. Því er ekkert skrítið að Orðið á götunni (færsla nú glötuð) hafi greint frá því að Guðlaugur Þór hafi ráðið hann í prófkjörsbaráttunni fyrir síðustu kosningar.

 

(Upplýsingar fengnar frá Eyjunni og google).

3 Responses to “Tengsl Guðlaugs Þórs við ráðgjafafyrirtækin”

  1. Þetta er með ólíkindum. En samt ekki.. Svona vinnubrögð eru regla í Sjálfstæðisflokknum. Ekki undantekning.

    Þú átt hrós skilið fyrir að fletta ofan af þessu.

  2. Skipti hann við fleiri ráðgjafafyrirtæki eða ráðgjafa, eða er þetta allt? (ég hef ekki fylgst nógu vel með)

  3. Steinunn says:

    Eyjan nefnir 2 önnur, S&G ráðgjöf (Guðjón Magnússon) og Andi ehf (Þorgrímur Þráinsson). Samtals rúmlega 4 milljónir þar. Ég veit ekki um tengingu milli þessara manna/fyrirtækja og fyrrverandi heilbrigðisráðherra.

    http://eyjan.is/blog/2009/02/23/gudlaug-thor-greiddi-um-24-milljonir-fyrir-radgjof-utan-heilbrigdisraduneytis/