Ég er ótrúlega sátt með frammistöðu ungliða á landsfundi Vinstri grænna sem fram fór um helgina. Við náðum öllum okkar markmiðum: komum okkar manneskju í stjórn, 6 ungliðum í flokksráð (20% af flokksráði - og næsti maður inn var ungliði líka!), fengum allar lagabreytingar sem við lögðum til í gegn og allar ályktanir samþykktar svo til óbreyttar. Af þeim var ég sérstaklega ánægð með ályktunina um félagshyggjustjórn sem Ung vinstri græn lögðu fram, en í henni felst að Vinstri græn útiloka samstarf við Sjálfstæðifsflokkinn að loknum kosningum og sækjast eftir að mynda félagshyggjustjórn í vor!
Ekki var ég minna ánægð með að hafa loksins fengið í gegn ályktun um að stefna skuli að aðskilnaði ríkis og kirkju, og að ein hjónabandslög skuli vera á Íslandi, veraldleg og trúarleg lífsskoðunarfélög njóti jafnræðis, guðlastslög skuli afnumin, virða beri rétt foreldra til að ráða trúaruppeldi barna sinna og lögum um trúfélagsskráningu barna verði breytt svo að forsjáraðilar njóti þar jafnræðis. Nýja Ísland - já takk!
En þetta er náttúrulega aðalmálið: Vegur til framtíðar. Þarna eru kosningaáherslur Vinstri grænna settar fram; Lýðræðisumbætur, ráðist gegn spillingu, áhersla á þátttöku almennings, tryggjum fólki húsnæði, gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir börn, kjarajöfnun, vinna gegn kynbundnu ofbeldi, atvinnusköpun á forsendum sjálfbærrar þróunar, verjum velferðina, sanngirni í skattamálum, leggjum niður Varnarmálastofnun, sérkjörin burt, lækkum vexti og fleiri góð mál! Við ætlum að byggja upp þetta samfélag og gera það réttlátara, mannvænlegra og á allan hátt betra. Vinstristjórn í vor!
———————
Eitt enn: Sjálfstæðismenn skila framlagi frá Neyðarlínunni en finnst fínt að Geiri á Goldfinger styrki flokkinn. Ég er svo hissa…