Af yfirráðum og bloggkennslu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins

„Vilji Sjálfstæðisflokkurinn halda yfirráðum sínum yfir sjávarútvegsauðlindinni, þá hafnar Sjálfstæðisflokkurinn aðild að Evrópusambandinu.“

Sigurður Kári Kristjánsson á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag.

Og gleymið því ekki!

##########

 

Meira af landsfundi Sjallanna, þeir eru með mjög áhugaverða dagskrá blessaðir. Þar á meðal er þetta:

Laugardagur 28. mars kl. 10.00

Bloggnámskeið Óðinsmanna, í Óðinsstofu, 1. hæð í Laugardalshöllinni.

Og ekki má gleyma þessu: 

Kl. 12.00 - 18.00
Námskeið: Maður á mann – tölvukennsla í Sal I.

Sem sé: ég spái svona 100-200 nýjum moggabloggurum eftir helgi…

2 Responses to “Af yfirráðum og bloggkennslu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins”

  1. Óli Gneisti says:

    Ég vona að Gísli Freyr kenni bloggnámskeiðið.

  2. Snærós says:

    you have got to be kiddin’ me!