Í stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins frá því á landsfundi þeirra síðustu helgi segir m.a. að nú eigi að hafna öllum nýjum sköttum á atvinnulífið og einstaklinga. “Núverandi vinstristjórn hefur boðað nýja skatta sem draga þrótt úr fólki og fyrirtækjum. Hærri skattar munu reynast þeim ofviða” stendur orðrétt í ályktuninni.
Því skal af gefnu tilefni vitnað í áréttingu frá Vinstri grænum: “Engin áform eru uppi hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði um að taka aftur upp eignaskatt í fyrri mynd. Hræðsluáróður þess efnis að Vinstri græn hafi í hyggju að leggja á eignaskatt á meðaltekjufólk eða venjulegar eignir er algjörlega úr lausu lofti gripinn.
Sú hugmynd hefur hins vegar eðlilega komið upp í grasrót hreyfingarinnar að skoða hvort einhver tegund skattlagningar á mjög tekjuhátt stóreignafólk komi til greina til að mæta þeim mikla fjárlagahalla ríkisins sem fyrirhugaður er á næstu árum. Slíka skattlagningu þyrfti að samræma fjármagnstekjuskatti og annarri skattheimtu sem óhjákvæmilegt er að gera einhverjar breytingar á til að borga þær gríðarlegu skuldir sem landsmenn sitja uppi með eftir efnahagsóstjórn Sjálfstæðisflokksins”.
Nánar má fræðast um skattatillögur VG hér.
En fyrst við erum að tala um skatta, þá er áhugavert að minnast á að Sjálfstæðismenn, í samstarfi við Samfylkingu, stóðu sjálfir að skattahækkun með lögum sem voru samþykkt 20. des. Geir H. Haarde lagði frumvarpið fram. Þar var um 1,25% hækkun á tekjuskatti að ræða auk þess sem hámarksútsvar sveitarfélaga var hækkað um 0,25%.
Sjálfstæðismenn sem sé heldur hækka skatta með flatri hækkun en að beita úrræðum á borð við eignaskatt og hátekjuskatt. Feril málsins má sjá hér: http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=136&mnr=243
Auk þess hækkuðu hægrismenn skatta ósjálfrátt, þegar þeir skuldsettu þjóðarbúið um rúmlega 2.000 milljarða á einu bretti.
En þeir gleymdu að minnast á það í stjórnmálaályktuninni?
Eru ekki of mörg núll í þessari tölu?
Jú að sjálfsögðu. Sver að það var óvart og laga það
og biðst afsökunar að sjálfsögðu