Archive for April, 2009

ESB-meirihluti?

Sunday, April 26th, 2009

Nú tala sumir um að mögulegt sé fyrir Samfylkingu að mynda þriggja flokka ESB-stjórn á þingi. Þessi möguleiki hefur kannski fyrst og fremst verið viðraður sem svipa fyrir Samfylkinguna til að nota á Vinstri græn í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna.

En er meirihluti innan þessara þriggja flokka fyrir ESB?

Rétt upp hendi sem halda að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknar og landsbyggðarþingmennirnir Gunnar Bragi Sveinsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Birkir Jón Jónsson séu ESB-sinnar…

Góður dagur til að kjósa

Saturday, April 25th, 2009

Ég ætla bara að vera hreinskilin.

Ég er búin að streða fyrir þessum degi síðan ég var 16 ára, í þarsíðustu Alþingiskosningum. Þá mátti ég ekki kjósa. Samt veggfóðraði ég hurðina mína á heimavistinni í MA af pólitískum skilaboðum, herbergisfélaganum til takmarkaðar ánægju. 

Þetta hefur skipt mig máli lengi, gerir ennþá og mun alltaf gera. Og ég fékk að heyra að ég væri alltaf á móti, að ég hefði engar lausnir, að ég myndi vaxa uppúr þessu. Biddu fyrir þér, fékk fékk að heyra þetta allt.

Sex árum síðar gengur mér ennþá jafn illa að vaxa uppúr þessu, sem betur fer. Hvernig vex fólk líka uppúr því að berjast fyrir friði og jafnrétti, réttlæti og velferð? 

Ég er búin að kjósa. Hef alltaf kosið utan kjörfundar. Setti X við V og sendi það heim í sveitina mína. Ég hef gert mitt til að kjósa hrunið burt, og kjósa velferð og heiðarleika í staðinn. Ég gleðst með öðrum sem gera slíkt hið sama.

Ég veit ekki hvað fleira á að segja. Ég horfi til skiptis útum gluggan á góða veðrið og á blómin á borðinu sem að maðurinn minn færði mér í gær. Og ég veit að þetta verður góður dagur. 

Ég óska ykkur gleðilegs kjördags.

Framsóknarmenn og vanhæfu skoðanirnar

Tuesday, April 14th, 2009

Framsóknarmenn hafa sótt það hart að ýmsar breytingar verði gerðar á fyrirkomulaginu á þingi, s.s. persónukjör og stjórnlagaþing. Þær áherslur hafa notið hylli almennings - þó að það hafi ekki skilað sér til baka í skoðanakönnunum fyrir Framsóknarflokkinn. En betur má ef duga skal og Framsóknarmenn eru ekki að baki dottnir. Þeirra nýjasta útspil er ansi róttækt, en það gengur út á að ráðherrar séu vanhæfir til að úrskurða í máli, hafi þeir skoðun á því. 

Eða kannski væri réttara að segja, þeir eru náttúrulega vanhæfir, ef þeir hafa ekki sömu skoðun og Framsóknarmenn á málinu. Ætli það sé ekki mergurinn málsins…

Kannabisið búið?

Wednesday, April 1st, 2009

Bíddu nú við, enginn kannabissverksmiðja í fréttunum í gær. Hvað er í gangi?

Eru mótmæli einhvers staðar eða?