Nú tala sumir um að mögulegt sé fyrir Samfylkingu að mynda þriggja flokka ESB-stjórn á þingi. Þessi möguleiki hefur kannski fyrst og fremst verið viðraður sem svipa fyrir Samfylkinguna til að nota á Vinstri græn í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna.
En er meirihluti innan þessara þriggja flokka fyrir ESB?
Rétt upp hendi sem halda að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknar og landsbyggðarþingmennirnir Gunnar Bragi Sveinsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Birkir Jón Jónsson séu ESB-sinnar…
Ég sest ofan á báðar hendurnar mínar…
Framsókn snýst alltaf með vindinum og það verður lítið mál fyrir þá að verða ESB-sinnar ef svo viðrar. Framsókn hefur þá einu hugsjón að ná völdum.