Archive for the ‘Uncategorized’ Category

ESB-meirihluti?

Sunday, April 26th, 2009

Nú tala sumir um að mögulegt sé fyrir Samfylkingu að mynda þriggja flokka ESB-stjórn á þingi. Þessi möguleiki hefur kannski fyrst og fremst verið viðraður sem svipa fyrir Samfylkinguna til að nota á Vinstri græn í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna.

En er meirihluti innan þessara þriggja flokka fyrir ESB?

Rétt upp hendi sem halda að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknar og landsbyggðarþingmennirnir Gunnar Bragi Sveinsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Birkir Jón Jónsson séu ESB-sinnar…

Góður dagur til að kjósa

Saturday, April 25th, 2009

Ég ætla bara að vera hreinskilin.

Ég er búin að streða fyrir þessum degi síðan ég var 16 ára, í þarsíðustu Alþingiskosningum. Þá mátti ég ekki kjósa. Samt veggfóðraði ég hurðina mína á heimavistinni í MA af pólitískum skilaboðum, herbergisfélaganum til takmarkaðar ánægju. 

Þetta hefur skipt mig máli lengi, gerir ennþá og mun alltaf gera. Og ég fékk að heyra að ég væri alltaf á móti, að ég hefði engar lausnir, að ég myndi vaxa uppúr þessu. Biddu fyrir þér, fékk fékk að heyra þetta allt.

Sex árum síðar gengur mér ennþá jafn illa að vaxa uppúr þessu, sem betur fer. Hvernig vex fólk líka uppúr því að berjast fyrir friði og jafnrétti, réttlæti og velferð? 

Ég er búin að kjósa. Hef alltaf kosið utan kjörfundar. Setti X við V og sendi það heim í sveitina mína. Ég hef gert mitt til að kjósa hrunið burt, og kjósa velferð og heiðarleika í staðinn. Ég gleðst með öðrum sem gera slíkt hið sama.

Ég veit ekki hvað fleira á að segja. Ég horfi til skiptis útum gluggan á góða veðrið og á blómin á borðinu sem að maðurinn minn færði mér í gær. Og ég veit að þetta verður góður dagur. 

Ég óska ykkur gleðilegs kjördags.

Framsóknarmenn og vanhæfu skoðanirnar

Tuesday, April 14th, 2009

Framsóknarmenn hafa sótt það hart að ýmsar breytingar verði gerðar á fyrirkomulaginu á þingi, s.s. persónukjör og stjórnlagaþing. Þær áherslur hafa notið hylli almennings - þó að það hafi ekki skilað sér til baka í skoðanakönnunum fyrir Framsóknarflokkinn. En betur má ef duga skal og Framsóknarmenn eru ekki að baki dottnir. Þeirra nýjasta útspil er ansi róttækt, en það gengur út á að ráðherrar séu vanhæfir til að úrskurða í máli, hafi þeir skoðun á því. 

Eða kannski væri réttara að segja, þeir eru náttúrulega vanhæfir, ef þeir hafa ekki sömu skoðun og Framsóknarmenn á málinu. Ætli það sé ekki mergurinn málsins…

Kannabisið búið?

Wednesday, April 1st, 2009

Bíddu nú við, enginn kannabissverksmiðja í fréttunum í gær. Hvað er í gangi?

Eru mótmæli einhvers staðar eða?

Skattahækkanir Sjálfstæðisflokksins

Tuesday, March 31st, 2009

Í stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins frá því á landsfundi þeirra síðustu helgi segir m.a. að nú eigi að hafna öllum nýjum sköttum á atvinnulífið og einstaklinga. “Núverandi vinstristjórn hefur boðað nýja skatta sem draga þrótt úr fólki og fyrirtækjum. Hærri skattar munu reynast þeim  ofviða” stendur orðrétt í ályktuninni.

Því skal af gefnu tilefni vitnað í áréttingu frá Vinstri grænum: “Engin áform eru uppi hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði um að taka aftur upp eignaskatt í fyrri mynd. Hræðsluáróður þess efnis að Vinstri græn hafi í hyggju að leggja á eignaskatt á meðaltekjufólk eða venjulegar eignir er algjörlega úr lausu lofti gripinn.

Sú hugmynd hefur hins vegar eðlilega komið upp í grasrót hreyfingarinnar að skoða hvort einhver tegund skattlagningar á mjög tekjuhátt stóreignafólk komi til greina til að mæta þeim mikla fjárlagahalla ríkisins sem fyrirhugaður er á næstu árum. Slíka skattlagningu þyrfti að samræma fjármagnstekjuskatti og annarri skattheimtu sem óhjákvæmilegt er að gera einhverjar breytingar á til að borga þær gríðarlegu skuldir sem landsmenn sitja uppi með eftir efnahagsóstjórn Sjálfstæðisflokksins”.

Nánar má fræðast um skattatillögur VG hér

En fyrst við erum að tala um skatta, þá er áhugavert að minnast á að Sjálfstæðismenn, í samstarfi við Samfylkingu,  stóðu sjálfir að skattahækkun með lögum sem voru samþykkt 20. des. Geir H. Haarde lagði frumvarpið fram. Þar var um 1,25% hækkun á tekjuskatti að ræða auk þess sem hámarksútsvar sveitarfélaga var hækkað um 0,25%. 

Sjálfstæðismenn sem sé heldur hækka skatta með flatri hækkun en að beita úrræðum á borð við eignaskatt og hátekjuskatt. Feril málsins má sjá hér: http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=136&mnr=243

Auk þess hækkuðu hægrismenn skatta ósjálfrátt, þegar þeir skuldsettu þjóðarbúið um rúmlega 2.000 milljarða á einu bretti.

En þeir gleymdu að minnast á það í stjórnmálaályktuninni?

Af yfirráðum og bloggkennslu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins

Friday, March 27th, 2009

„Vilji Sjálfstæðisflokkurinn halda yfirráðum sínum yfir sjávarútvegsauðlindinni, þá hafnar Sjálfstæðisflokkurinn aðild að Evrópusambandinu.“

Sigurður Kári Kristjánsson á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag.

Og gleymið því ekki!

##########

 

Meira af landsfundi Sjallanna, þeir eru með mjög áhugaverða dagskrá blessaðir. Þar á meðal er þetta:

Laugardagur 28. mars kl. 10.00

Bloggnámskeið Óðinsmanna, í Óðinsstofu, 1. hæð í Laugardalshöllinni.

Og ekki má gleyma þessu: 

Kl. 12.00 - 18.00
Námskeið: Maður á mann – tölvukennsla í Sal I.

Sem sé: ég spái svona 100-200 nýjum moggabloggurum eftir helgi…

Að loknum landsfundi VG

Tuesday, March 24th, 2009

Ég er ótrúlega sátt með frammistöðu ungliða á landsfundi Vinstri grænna sem fram fór um helgina. Við náðum öllum okkar markmiðum: komum okkar manneskju í stjórn, 6 ungliðum í flokksráð (20% af flokksráði - og næsti maður inn var ungliði líka!), fengum allar lagabreytingar sem við lögðum til í gegn og allar ályktanir samþykktar svo til óbreyttar. Af þeim var ég sérstaklega ánægð með ályktunina um félagshyggjustjórn sem Ung vinstri græn lögðu fram, en í henni felst að Vinstri græn útiloka samstarf við Sjálfstæðifsflokkinn að loknum kosningum og sækjast eftir að mynda félagshyggjustjórn í vor! 

Ekki var ég minna ánægð með að hafa loksins fengið í gegn ályktun um að stefna skuli að aðskilnaði ríkis og kirkju, og að ein hjónabandslög skuli vera á Íslandi, veraldleg og trúarleg lífsskoðunarfélög njóti jafnræðis, guðlastslög skuli afnumin, virða beri rétt foreldra til að ráða trúaruppeldi barna sinna og lögum um trúfélagsskráningu barna verði breytt svo að forsjáraðilar njóti þar jafnræðis. Nýja Ísland - já takk!

En þetta er náttúrulega aðalmálið: Vegur til framtíðar. Þarna eru kosningaáherslur Vinstri grænna settar fram; Lýðræðisumbætur, ráðist gegn spillingu, áhersla á þátttöku almennings, tryggjum fólki húsnæði, gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir börn, kjarajöfnun, vinna gegn kynbundnu ofbeldi, atvinnusköpun á forsendum sjálfbærrar þróunar, verjum velferðina, sanngirni í skattamálum, leggjum niður Varnarmálastofnun, sérkjörin burt, lækkum vexti og fleiri góð mál! Við ætlum að byggja upp þetta samfélag og gera það réttlátara, mannvænlegra og á allan hátt betra. Vinstristjórn í vor!

 

———————

Eitt enn: Sjálfstæðismenn skila framlagi frá Neyðarlínunni en finnst fínt að Geiri á Goldfinger styrki flokkinn. Ég er svo hissa…

Fórnarlambamaskúlismi

Sunday, March 8th, 2009

Í netheimum poppar nú upp hver spekúlantinn á fætur öðrum sem í trylltum dansi á lyklaborðinu krefst þess að ímyndaðar reglur þeirra um forval VG í Reykjavík standi sem meitlaðar í stein, þ.e.a.s. að karlar skuli hífðir upp fyrir konur á framboðslistum til að passa nú vel uppá það að engar breytingar verði á ósýnilegum og inngrónum kynjakvótunum á Alþingi sem eru körlum í hag.

Þó að þessar blessuðu reglur þeirra eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum, og þó að fæstir þeirra séu kjósendur Vinstri grænna, kemur það ekki í veg fyrir að þeir viti best. Því hvers eiga aumingja karlarnir í VG að gjalda að vera í feminískum flokki? Mikið er gott að það eru til kverúlantar í bloggheimum sem taka upp hanskann fyrir þá, þó ekki hafi ég heyrt VG-menn kvarta sjálfa.  Er þetta kannski fórnarlambamaskúlismi?

Auði Lilju á Alþingi!

Thursday, March 5th, 2009

Fyrir 10 árum síðan bauð Vinstrihreyfingin – grænt framboð fyrst fram til Alþingis. Hópur vinstrisinnaðra karla og kvenna ákvað þá að bjóða kjósendum uppá valkost við krataflokkinn Samfylkinguna. Almenningi gafst því kostur á að setja X-ið til vinstri – við velferð, kvenfrelsi, friðarstefnu og náttúruvernd. Að tíu árum liðnum sitja Vinstri græn í ríkisstjórn og sinna því erfiða, en nauðsynlega verkefni, að moka flórinn eftir 18 ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins – valdatíð sem einkenndist af spillingu, siðleysi og nýfrjálshyggjugeðveiki. Hún endaði í efnahagshruni sem afhjúpaði þá gjaldþrota stefnu sem flokkurinn stendur fyrir.

 

Vinstri græn hafa verið meðvituð um að flokkur miðaldra karlmanna getur ekki boðið konum uppá raunhæfan valkost, og hefur því sem betur fer haft róttæka jafnréttisstefnu að leiðarljósi við uppröðun á lista. En á sama hátt og miðaldra karlar geta ekki verið fulltrúar kvenna, þá getur miðaldra þingflokkur ekki verið fulltrúi ungs fólks. Meðalaldur þingflokks VG er 54 ár, og aðeins einn þingmaður VG er undir 48 ára aldri. Þessi hái meðalaldur þingflokksins endurspeglar ekki kjósendur flokksins sem lengi hefur átt mikinn stuðning hjá ungu fólki, en um þriðjungur flokksfélaga eru 30 ára og yngri.

 

Í vor ráðast úrslit kosninga af því hversu dugleg við verðum að moka Sjálfstæðisflokksflórinn. En ekki af því einu. Eins og fyrir 10 árum þá er það mikilvægt nú að fólk hafi alvöru valkost. Í kjölfar hrunsins varð ungt fólk meðvitara um það hver það eru sem að raunverulega gæta hagsmuna þeirra – það gerir það náttúrulega enginn betur en við sjálf. Þess vegna þarf ungt fólk sína fulltrúa á þingi. Og það er valkosturinn sem við verðum að bjóða ungum kjósendum í vor. Flokkur sem að stillir ungu fólki aðeins upp sem „listaskrauti“ er ekki raunverulegur valkostur fyrir ungt fólk.

 

Að því sögðu lýsa undirrituð hér með yfir stuðningi við unga og öfluga konu, Auði Lilju Erlingsdóttur, í 2. til 3. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík 7. mars. Auður Lilja er 29 ára gömul, stjórnmálafræðingur með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og starfar sem mannauðsráðgjafi. Hún var formaður Ungra vinstri grænna á árunum 2006-2008 og undir hennar stjórn efldist ungliðahreyfing Vinstri grænna og gat hreyfingin sér gott orðspor fyrir að vera fylgin sér, öflug, skemmtileg og hugmyndarík.

 

Auður Lilja hefur víðar lagt lóð sín á vogarskálar Vinstri grænna, en hún sat m.a. í stjórn Vinstri grænna í Reykjavík og er nú varamaður í stjórn Vinstri grænna. Þá er hún fyrsti varaþingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og hefur í tvígang tekið sæti á Alþingi á yfirstandandi kjörtímabili. Þar lagði hún meðal annars fram frumvarp um breytingu á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna og þingsályktunartillögu um úttekt á kjörum og réttindum námsmanna. Auður Lilja er nýr varaformaður Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

 

Auður Lilja er stjórnmálakona með ástríðu fyrir því að berjast fyrir betra samfélagi. Það hefur hún gert í grasrót Vinstri grænna um áraraðir og verið okkur félögum hennar stuðningur, innblástur og góður félagi. Við treystum engum betur til að vera okkar fulltrúi á Alþingi Íslendinga og hvetjum fólk til að veita henni og ungu fólki stuðning í forvali Vinstri grænna í Reykjavík 7. mars nk.

 

Steinunn Rögnvaldsdóttir, formaður Ungra vinstri grænna

Þórhildur Halla Jónsdóttir, ritari Ungra vinstri grænna

Erlendur Jónsson, gjaldkeri Ungra vinstri grænna

Andrés Rúnar Ingason, meðstjórnandi í stjórn UVG

Höfundar sátu í stjórn UVG með Auði Lilju Erlingsdóttur á árunum 2006-2008

Greinin birtist á Smugunni 5. mars 2009

Frítt far

Saturday, February 28th, 2009

Smugan skoðaði málið með þingsályktunartillöguna sem ég bloggaði um í gær:

“Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra segir að nú sé unnið að því í ráðuneytinu ásamt ÁTVR að breyta reglum áfengissölunnar um móttöku og dreifingu til þess að jafna stöðu að framleiðenda á landsbyggðinni við að koma vörunni á markað.

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði í vikunni fram þingsályktunartillögu um að fela fjármálaráðherra að taka til endurskoðunar reglur um móttöku og dreifingu ÁTVR í þeim tilgangi að jafna stöðu fyrirtækja á landsbyggðinni. Steingrímur segir hana seint á ferðinni hjá honum.

„Hann hefur haft ærinn tíma með sína menn í fjármálaráðuneytinu til að gera eitthvað í málinu. Það hefur verið mikill þrýstingur á þetta mál, sérstaklega  af norðan, í nokkur ár, en það hefur ekkert gerst,“ segir Steingrímur og bætir við: „En nú kemur hann með þingsályktunartillögu þegar hann er kominn í minnihluta. Af hverju beitti hann sér ekki fyrir þessu þegar hann var í fjárlaganefnd og flokksbróður sinn í ráðuneytinu?“

Nánar á Smugunni.

Kannski ég verði að taka hrósið til baka, það er sjaldnast ástæða til að hrósa fólki fyrir að “fríræda”.